Fréttablaðið - 14.06.2012, Síða 16
14. júní 2012 FIMMTUDAGUR16
Hummel International A/S hefur innkallað peysur af
gerðunum Georgia í stærðunum 8-10-12 og Classic
Bee hoodie í stærðunum 8-10-12 ára, að því er kemur
fram á vef Neytendastofu. Hættan er sögð felast í því
að bönd í hettum eða í hálsmáli geta valdið hættu
á kyrkingu. Af öryggisástæðum vill Hummel Inter-
national A/S benda þeim sem keypt hafa umræddar
peysur á að fjarlægja böndin úr peysunum, eða skila
þeim gegn endurgreiðslu til næsta söluaðila.
Neytendastofa bendir á að í fötum fyrir börn að 7 ára (upp í 1,34 m hæð)
megi ekki vera bönd eða reimar í hettu eða hálsmáli. Í fatnaði fyrir börn 7-14
ára mega bönd eða reimar í hálsmáli ekki standa lengra en 75 mm út úr flíkinni.
16
hagur heimilanna
Þeir sem eru með innbú
tryggt fyrir fimm milljónir
króna fá aðeins 250 þúsund
krónur í bætur fyrir stolna
skartgripi þótt verðmæti
þeirra sé miklu meira. Þetta
er vegna þess að skartgrip-
ir eru ekki tryggðir nema
fyrir fimm prósent af heild-
arvátryggingarupphæð inn-
bús samkvæmt skilmálum
tryggingafélaganna.
Hákon Hákonarson, eigandi
Tryggingar og ráðgjafar sem
býður upp á Tryggingavaktina,
segir nokkuð ljóst að skartgripir á
mörgum heimilum geti verið mörg
hundruð þúsunda ef ekki milljóna
króna virði. „Þess vegna er mikil-
vægt að innbústryggingar endur-
spegli verðmæti innbúsins eða að
keypt sé sérstök trygging fyrir svo
verðmæta skartgripi.“
Að sögn Hákonar koma þessir
skilmálar tryggingafélaganna um
skartgripi viðskiptavinum sem
brotist hefur verið inn hjá á óvart.
„Fólk sem ekki hefur áttað sig á
þessu er mjög ósátt. Því er almennt
ekki bent sérstaklega á þetta þegar
það kaupir tryggingar og fær þá
kannski ekki upplýsingar um þessa
skilmála nema það spyrji sérstak-
lega um skartgripi. Þeir sem hafa
til dæmis keypt 10 milljóna króna
innbústryggingu eru ósáttir við að
vera háðir einhverjum takmörkun-
um með skartgripina.“
Hákon bendir á að skartgripir
séu meðal þess helsta sem inn-
brotsþjófar sækjast eftir.
„Þeir eru auðveldir í meðför-
um og það er mjög auðvelt að
koma þeim í verð. Það má reynd-
ar segja að ef fólk er með heima
hjá sér aðra verðmæta hluti, eins
og til dæmis málverk, sé ástæða
til að tryggja þá sérstaklega. Því
betur sem menn huga að þessum
málum, þeim mun auðveldara er
að fá bætur frá tryggingafélögun-
um. En auðvitað þarf að grípa til
ráðstafana þegar farið er að heim-
an til þess að gera innbrotsþjófum
erfiðara fyrir.“
ibs@frettabladid.is
Bætur fyrir skartgripi
5% af innbústryggingu
ÞÝFI Skartgripir eru meðal þess helsta sem innbrotsþjófar sækjast eftir.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
12.650
Í 100 g af rækjum eru 150 mg af kólesteróli. Sá sem borðar 200 g
af rækjum er þar með búinn að fá þau 300 mg af kólesteróli
sem er hámarksdagskammtur samkvæmt ráðleggingum
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, að því er segir
á fréttavef Aftenposten. Til samanburðar er bent á að í
kjúklingi, sardínum og feitum osti séu um 70 til 110 mg af kólesteróli í hverjum
100 g. Norski næringarfræðingurinn Marte Gjeitung Byfuglien segir að þeir sem
séu með mikið kólesteról í líkamanum eigi ekki að borða hrognin í rækjunum.
Í ferskum rækjum sé minna af hrognum á sumrin en á veturna en í frystum
rækjum geti verið mikið af hrognum.
■ Matvæli
Rækjur innihalda mikið magn af kólesteróli
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur stöðvað sölu og innkallað Maggi kjúklingasúpu
með núðlum. Um er að ræða pakka með þremur bréfum með strikanúmerinu
2761010030019, að því er segir á vef Matvælastofnunar. Merkingum á ytri
umbúðum vörunnar ber ekki saman við merkingar á innri umbúðum hennar. Ekki
kemur fram á ytri umbúðunum að varan innihaldi mjólk en mjólk og mjólkuraf-
urðir eru á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda. Aðrar athugasemdir eru einnig gerðar
við merkingar vörunnar. Heilbrigðiseftirlitið hefur einnig stöðvað sölu á fæðubótar-
efnum með vörumerkinu MusclePharm sem seld eru á netinu, að því er greint
er frá á vef Matvælastofnunar. Vörurnar, sem nefnast Assault, Re-Con, Armor-V,
Shred Matrix og Battle Fuel, innihalda B-flokkuð innihaldsefni og efni sem þarfnast
flokkunar Lyfjastofnunar, óleyfileg steinefni og viðbætt koffín.
■ Matvæli
Kjúklingasúpa og fæðubótarefni innkölluð
GÓÐ HÚSRÁÐ Grasgræna í fötum
Nýmjólk og uppþvottalögur
Þegar sólin skín nánast allan sólarhringinn er
gaman að fara í útilegu, spila fótbolta, kasta
frisbídiskum og fara í brennó. Grænt grasið í
stórkoslegri náttúru Íslands hefur þó þann ókost
að geta litað föt. Grasgrænu má þó ná úr fötum á
einfaldan hátt.
Ef örlítið af nýmjólk og uppþvottalegi er hellt
yfir blettinn og líninu nuddað saman þar sem
bletturinn er má ná grasgrænunni úr fötunum.
Mjólkina og sápuna má svo skola úr með vatni.
Það má reyndar segja
að ef fólk er með
heima hjá sér aðra verðmæta
hluti, eins og til dæmis
málverk, sé ástæða til að
tryggja þá sérstaklega.
HÁKON HÁKONARSON
EIGANDI TRYGGINGAR OG RÁÐGJAFAR
KRÓNUR kostuðu 1.000 kílóvattstundir af rafmagni í Reykjavík í maí síð-
astliðnum samkvæmt mælingu Hagstofu Íslands. Verðið var 9.852 krónur í
maí 2010 og hefur því hækkað um ríflega 28 prósent á tveimur árum.
„Einu sinni keypti ég mér skylmingaskó sem voru einum þriðja úr númeri
of litlir. Ég borgaði dýrt fyrir þá með fjórum tánöglum,“ sagði Þorbjörg
Ágústsdóttir skylmingakona.
Þorbjörg segist samt hafa mátað skóna áður en hún dró upp veskið. „Jú
ég mátaði þá, en þetta var ný týpa og þeir áttu að gefa aðeins eftir. Maður
vill hafa skóna rosalega þétta svo þeir fylgi fætinum alveg eftir. Ég var að spá
í að kaupa mér þriðjungi stærri skó en gerði það ekki af því að skórnir sem
ég átti á undan gáfu svo mikið eftir. En ekki þessir,“ sagði Þorbjörg hlæjandi
og bætti við: „Ég var að keppa rosalega mikið á þessum tíma og þetta var
alveg hræðilegt.“
Þorbjörg segist hafa skipt þeim fljótt út. „Ég notaði skóna í sex mánuði
eða þangað til að ég gat fengið mér nýja. Þetta var svo sárt.“
Þorbjörg sagðist eiga erfiðara með að nefna hver séu bestu kaupin.
„Bestu nýlegu kaupin eru rauðar Lee-gallabuxur sem ég elska. Svo hef ég
keypt mér nokkrar peysur á útsölumarkaði Birnu, það er algjör eðall. Þær
eru flottar og endast að eilífu.“
Svo skiptir Þorbjörg um skoðun. „Nei, bestu kaupin eru
eiginlega Macintosh PowerBook-tölvan mín. Hún entist
í átta ár og dó síðasta haust. En átta ára ending á tölvu,
það eru náttúrlega bestu kaup sem þú getur gert.“
Tölvan hafði fylgt Þorbjörgu lengi. „Ég notaði hana í
háskólanum og svo fór hún með mér í allar keppnis-
ferðir, heimsálfanna á milli. Hún var alltaf hjá
mér,“ sagði Þorbjörg, sem hefur lokið meistara-
námi í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands.
Þorbjörg var í óða önn að pakka niður í
ferðatösku þegar Fréttablaðið náði tali af
henni. Hún er á leið á Evrópumótið í
skylmingum sem haldið er á Ítalíu um
þessar mundir. Þorbjörg sagðist ekki
fara tölvulaus í ferðina. „Ég fékk
Ipad í afmælisgjöf þannig að ég
er svo heppin að geta tekið hann
með mér. Hann er töluvert
léttari en tölvan svo ég
sligast ekki undan hand-
farangrinum.“
NEYTANDINN: ÞORBJÖRG ÁGÚSTSDÓTTIR SKYLMINGAKONA
Borgaði með tánöglum
■ Barnaföt
Hummel varar við böndum í hálsmáli
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
B
irt
B
ir
m
eð
fy
rir
va
ra
u
e
m
p
re
nt
vi
l
n
lu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
k
a
ilj
a
sé
r
r
s
ét
t
til
le
ið
ré
t
ng
a
ng
a
tin
g
á
s
lík
u.
h.
A
th
. a
ð
v
e
g
e
g
e
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
re
ys
ff
á
n
fy
rir
v
yr
i
yr
ar
a.a.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
52
95
6
frá kr. 114.900
í Tyrklandi
11 nætur með allt innifalið
Heimsferðir bjóða ferðir til Tyrklands í allt sumar og fram á
haust. Núna erum við með sérstakt tilboð á Bitez Garden
Life Hotel & Suites og Royal Arena Resort & Spa í Tyrklandi.
Frá 119.900 Royal Arena Resort & Spa
með allt innifalið í 11 nætur
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í fjölskyldu
herbergi. Netverð m.v. 2 fullorðna í herbergi kr. 154.400 á mann.
Sértilboð 22. júní í 11 nætur.
Frá 114.900 Bitez Garden Life Hotel & Suites
með allt innifalið í 11 nætur
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í fjölskyldu
herbergi. Netverð m.v. 2 fullorðna í herbergi kr. 144.900 á mann.
Sértilboð 22. júní í 11 nætur.
Bodrum 22. júní í 11 nætur
Ótr
úleg
t ve
rð!