Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.06.2012, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 14.06.2012, Qupperneq 20
20 14. júní 2012 FIMMTUDAGUR S tundum getur ný löggjöf haft í för með sér miklar samfélags- breytingar, sem jafnvel verða svo örar að þær gera lögin sem komu þeim af stað fljótlega úrelt. Ákvæði barnalaga um forsjá barna eru ágætt dæmi um þetta. Þegar mögu- leikinn á að foreldrar semdu um sameiginlega forsjá kom í lög fyrir tuttugu árum ýtti það við foreldrum sem stóðu í skilnaði að hugsa vandlega hvernig þeir vildu haga forsjá barnanna. Áhrifin urðu þau að innan við áratug síðar valdi meirihluti fólks sem skildi sameiginlega forsjá. Þegar lögfest var árið 2006 að sameiginleg forsjá yrði megin- reglan var þannig í raun verið að lögfesta orðinn hlut, en um leið sendi löggjafinn þeim minni- hluta foreldra sem ekki gat komizt að samkomulagi um sameiginlega forsjá skýr skilaboð: Barnauppeldi er samvinnuverkefni, á jafna ábyrgð beggja for- eldra og á að vera það áfram þótt hjónabandi eða sambúð ljúki. Nú er svo komið að sameiginleg forsjá er valin í 85% tilvika. Það færist sömuleiðis mjög í vöxt að börn dvelji jafnlangan tíma hjá hvoru foreldri eftir skilnað, oft viku og viku til skiptis. Utan um þessa þróun hafa lögin ekki náð; það er til dæmis ennþá gert ráð fyrir að barn eigi lögheimili hjá öðru foreldrinu eingöngu og lögheimilinu fylgja síðan ýmis lagaleg réttindi, til dæmis barna- bætur og alla jafna meðlagsgreiðsla frá hinu foreldrinu. Breytingar á barnalögum sem Alþingi samþykkti fyrr í vik- unni eru skref í átt til þess að færa löggjöfina til samræmis við raunveruleikann. Þar eru ýmis ákvæði sem styrkja sameiginlega forsjá í sessi, til að mynda að foreldrum beri skylda til að leita sátta og ráðgjafar um forsjána áður en hægt er að fara í hart. Velferðarnefnd vann vinnuna sína í þessu máli; fólk valt ekki af eðlisávísun ofan í pólitískar skotgrafir eins og í svo mörgum málum á þingi þessa dagana heldur lagðist yfir málefnið og skilaði sameiginlegu áliti. Meðal annars sneri nefndin við þeirri ákvörðun Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra að fella út úr upphaflegum tillögum nefndar um breytingar á barnalögunum heimild til dómara að dæma sameiginlega forsjá. Rök ráðherra fyrir þeirri ákvörðun voru rýr, en rök nefndarinnar fyrir að setja ákvæðið inn aftur veigamikil. Velferðarnefnd telur ekki tímabært að lögfesta möguleika á tvöföldu lögheimili, en að huga eigi að því að taka upp slíkt kerfi hér á landi. Hún vill líka endurskoða meðlagskerfið sem allra fyrst „með það að leiðarljósi að færa meðlagskerfið nær hinni raunverulegu mynd þar sem sameiginleg forsjá foreldra er meginreglan og jöfn búseta barns verður sífellt algengari“. Stundum er því haldið fram að búið sé að gera forsjármál að jafn- réttismáli, sem snúist um jafna stöðu feðra og mæðra, í stað þess að horfa á hvað barninu sé fyrir beztu. Reynsla undanfarinna ára hefur hins vegar sýnt að þetta tvennt fer oftast saman, að minnsta kosti ef heilbrigð skynsemi er með í för. Jafn réttur og jöfn þátttaka foreldra í lífi barna sinna, bæði fyrir og eftir skilnað, er börnunum fyrir beztu. Áframhaldandi breytingar á löggjöfinni eiga að taka mið af því. FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 greinar@frettabladid.is Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN FRÁ DEGI TIL DAGS HALLDÓR Ágæti bæjarstjóri Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson. Ég vil þakka þér fyrir kveðjurnar sem þú sendir okkur skólamönnum undir þinni stjórn í tilefni af því að þú fékkst 23% launahækkun. Þú orðaðir það raun- ar svo og réttlættir þessa launahækkun eða leiðréttingu með eftirfarandi orðum í DV þann 10. júní: „Við skárum niður alls konar lúxus, sameinuðum skóla til dæmis og hag- ræddum á ýmsan hátt – ég man þetta ekki alveg akkúrat núna enda á leiðinni í flug.“ Með öðrum orðum; sameining skól- ans míns fyrrverandi, Digranesskóla, og Hjallaskóla í Álfhólsskóla er réttlæting þess að þú eigir rétt á 23% launaleiðrétt- ingu, svo að nú hefur þú eina og hálfa milljón í laun. Það vill svo til að ég vann að þessari sameiningu ásamt með öðru starfsfólki Álfhólsskóla. Ég varð aldrei var við viðveru þína í því ferli. Ég stóð aftur á móti í því streði og stend enn. Í Digranesskóla var ég deildarstjóri í deild þar sem voru 130 nemendur og 15 kennarar. Nú stýri ég deild í Álfhóls- skóla þar sem eru 450 nemendur og í kringum 50 kennarar. Ég mæti upp úr klukkan 7.30 á morgnana og fer þegar ég get ekki meira. Ég fæ sjaldan kaffitíma og borða oftast nær á hlaupum. Ég sinni nú starfi sem fjórir stjórnendur sinntu áður. Ef til vill var það ofmannað og vel í lagt – lúxus eins og þú segir í blaðinu, fitan sem skorin var í burtu. Við þessa aukningu á starfi jukust laun mín að ég held um tvo launaflokka, u.þ.b. 6%. Ég næ samt engan veginn þriðjungi þinna launa. Þar vantar tölu- vert upp á. Ég tel því að ég hafi verið verulega hlunnfarinn í þessari sameiningu og vil þess vegna fá þessa 23% launahækkun á þínum launakjörum því að þú vannst ekki fyrir henni heldur ég. Ef þú treystir þér ekki til þess að láta mig fá launahækkunina þína eða koma fram með aðra og síður móðgandi rétt- lætingu á henni hvet ég til að þú kallir mig á þinn fund þegar þú ert lentur og segir við mig þessi fleygu orð: Þú ert drekinn! Því sannarlega er ég og aðrir stjórn- endur Álfhólsskóla drekinn sem dregur þann vagn sem þú réttlætir launaleið- réttingu þína með. Svo má líka misskilja þessi orð. Eða láta þau hafa aðra merk- ingu og mundi ég ekki sýta það. Opið bréf til bæjarstjórans í Kópavogi Kjaramál Skafti Þ. Halldórsson deildarstjóri eldri deildar Álfhólsskóla Búið í Borgen Danir virðast geta allt þegar kemur að sjónvarpsþáttagerð og nú hefur þeim tekist það sem talið var ómögulegt, að gera stjórnmál spennandi. Nú er svo komið að þingmenn horfa öfundaraugum á Borgen og gráta eigið hlutskipti. Það gerði Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, í pontu í gær. Honum fannst ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur fara fram með offorsi og stunda lítt þá iðju „sem allir landsmenn hafa séð í fínum sjónvarps- þáttum á RÚV núna í vetur,“ nefnilega að semja í rólegheitum um mál. Já, lífið væri leikur ef það væri danskur sjónvarps- þáttur. Bókmenntalega sinnaður Mörður Árnason nefndi í gær þann möguleika að níu þingmenn legðu fram tillögu um að umræðu yrði slitið á þingi. Stjórnarandstað- an greip þetta á lofti sem hótun og Einar K. Guðfinns- son vitnaði í barnagælu þegar hann sagði Mörð vera „eins og Lilliputti spilamann sem kjaftar nú frá“. Þingmenn mættu vitna oftar í bókmenntir, þá væri skemmti- legra að fylgjast með þeim. Fjöltrúarforsetinn Forsetaembættið hefur af óskiljan- legum ástæðum verið samofið krist- inni trú. Nú hefur einn frambjóðandi til forseta stigið skrefið frá þessu, en Ari Trausti Guðmundsson sagðist á Bylgjunni í gær vera efasemdar- maður í trúmálum og virða lífs- og trúarskoðanir og telja þær jafn- réttháar. „Á ferðalögum mínum hef ég færst á þá skoðun að kristni sé ekki eina trúin sem er gildandi í alheimssamfélaginu.“ kolbeinn@frettabladid.is Orðnar og óorðnar breytingar á barnalögum: Jafnrétti er barni fyrir beztu Frábær orf fyrir heimilið, sumarhúsið og atvinnumanninn Sláttuorf ÞÓRHF Krókhálsi 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Lónsbakka 601 Akureyri Sími 461-1070 www.thor.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.