Fréttablaðið - 14.06.2012, Page 24

Fréttablaðið - 14.06.2012, Page 24
24 14. júní 2012 FIMMTUDAGUR Þann 4. júní sl. sendi Eignar-haldsfélagið Fasteign hf. frá sér fréttatilkynningu vegna fjár- hagslegrar endurskipulagning- ar félagsins. Samkvæmt fund- argerðum Reykjanesbæjar var þetta mál á dagskrá bæjarráðs þann 18. maí sl. og hlaut þar sam- þykki allra bæjarráðsmanna sem eru fulltrúar þriggja stjórnmála- flokka (Sjálfstæðisflokks, Sam- fylkingar og Framsóknarflokks). Haft er eftir Árna Sigfússyni, stjórnarformanni Fasteignar hf. og bæjarstjóra Reykjanesbæjar, á vef Víkurfrétta að sveitarfé- lögin sem stærstu eigendur hafi náð fram öllum sínum samnings- markmiðum. Ekki er á nokkurn hátt hægt að lesa út úr þessari fréttatilkynn- ingu eða bókun bæjarráðs frá 18. maí hvaða áhrif þessi meinta endurskipulagning hefur á fjár- hag Reykjanesbæjar til lengri eða skemmri tíma. Notað er orðalag eins og ásættanleg niðurstaða, veruleg lækkun og óvissu eytt, svo að eitthvað sé nefnt. Fyrir mig sem íbúa, vekur þetta upp fleiri spurningar en ég fæ svarað. Ætla ég þess vegna að leyfa mér að setja hér fram nokkrar spurningar sem ég fer fram á að kjörnir fulltrúar svari. Vænti ég þess að þeir hafi svör við þessum spurningum á reiðum höndum, þar sem ég geri ráð fyrir að þeir hafi byggt ákvörðun sína á svip- uðum vangaveltum og ég set hér fram. Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. var stofnað á árinu 2003. Inn- borgað hlutafé Reykjanesbæjar var á þeim tíma rúmar 500 millj- ónir. 1. Hvað er þetta hlutafé metið á núvirði? 2. Hvað verður um þetta hlutafé í þeirri endurskipulagningu Fast- eignar sem nú fer fram? 3. Hversu háa fjárhæð þarf að afskrifa í bókum Reykjanesbæjar vegna þessarar endurskipulagn- ingar? 4. Hvað á Reykjanesbær stóran hlut í nýrri Fasteign í prósentum talið og hvers virði er hann? 5. Mun Reykjanesbær þurfa að leggja til fjármuni til kaupa á hlutafé í nýrri Fasteign? Skv. fréttatilkynningu verð- ur Eignarhaldsfélagið Fasteign í eigu níu sveitarfélaga ásamt Arion Banka. Gamla Fasteign var m.a. í eigu Íslandsbanka eða for- vera hans. 6. Hver er ástæða þess að ný fjármálastofnun kemur að rekstri Fasteignar? Skv. fréttatilkynningu verður nýja Fasteign hreint leigufélag, þ.e. mun ekki sjá um viðhald eign- anna eins og hingað til hefur við- gengist. Viðhaldið og rekstur fast- eignanna mun því alfarið lenda á Reykjanesbæ. Viðhald eigna er auðvitað mismunandi eftir ástandi þeirra og aldri en hægt er að gera sér grein fyrir ein- hverjum meðaltalskostnaði með því að skoða heildarkostnað við- halds yfir eitthvert tiltekið árabil. 7. Hver hefur árlegur viðhalds- kostnaður Fasteignar hf. verið að meðaltali vegna þeirra eigna sem Reykjanesbær hefur leigt af félaginu, frá þeim tíma sem Fast- eign hf. var stofnað? 8. Hvað getur Reykjanesbær reiknað með að þurfa að eyða í viðhald og rekstur fasteignanna? Svar óskast sem prósentuhlut- fall af virði fasteignanna. Í fréttatilkynningu er greint frá því að gert sé ráð fyrir að leigugreiðslur lækki um og yfir 50% fyrstu árin frá því sem nú er. 9. Hversu lengi er gert ráð fyrir að þetta lækkunarástand vari? 10. Hver verður árleg húsaleiga til Fasteignar á meðan lækkunar- ástand varir? 11. Hvað tekur við eftir að lækkunarástandi lýkur? Í fréttatilkynningu er sagt frá því að leigutakar eigi þess kost að kaupa leigueignir á mun hagstæð- ara verði en núverandi samning- ar gera ráð fyrir. Það gefur leigu- tökum mikið svigrúm er varðar endurfjármögnun og endurskipu- lagningu á þeirra eigin fjárhag. 12. Við hvaða mikla svigrúm er átt? 13. Hafa kjörnir fulltrúar í bæj- arstjórn Reykjanesbæjar látið skoða þetta mikla svigrúm og velt því fyrir sér hvort nýta megi það til hagsbóta fyrir íbúa Reykjanes- bæjar? Sagt er í fréttatilkynningu að leigan muni þó fylgja kostnaði félagsins og geti því tekið breyt- ingum verði breytingar á ytri aðstæðum. 14. Óskað er eftir sundurlið- un á því hvaða kostnaður verður lagður til grundvallar húsaleigu, þannig að hver kostnaðarþáttur verði sýndur sem prósenta af virði eigna. Vegna þess að rekstur fasteigna er svo stór þáttur í rekstrarkostn- aði sveitarfélaga skiptir máli að þeim fjármunum sé varið eins vel eins og kostur er. Það skiptir líka máli að ekki þurfi að koma til verulegra afskrifta á fjármunum sveitar- félaga vegna illa ígrundaðra ákvarðana kjörinna fulltrúa. Það sýnist mér vera að eiga sér stað í tilfelli Fasteignar. Það hlýtur því að vera réttmæt krafa að kjörn- ir fulltrúar geri íbúum grein fyrir þeim ákvörðunum sem þeir taka og varða íbúa miklu. Ekkert hefur birst opinberlega um þetta mál annað en fréttatilkynning frá Fasteign hf. og tilvitnanir í þann aðila sem býr við það hlutskipti að sitja beggja vegna borðs í málinu. Flikkað upp á Fasteign? Fjármál Guðbrandur Einarsson íbúi í Reykjanesbæ Það skiptir líka máli að ekki þurfi að koma til verulegra afskrifta á fjármunum sveitarfélaga vegna illa ígrundaðra ákvarðana kjörinna fulltrúa. Það sýnist mér vera að eiga sér stað í tilfelli Fasteignar. www.kexsmidjan.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.