Fréttablaðið - 14.06.2012, Síða 24
24 14. júní 2012 FIMMTUDAGUR
Þann 4. júní sl. sendi Eignar-haldsfélagið Fasteign hf. frá
sér fréttatilkynningu vegna fjár-
hagslegrar endurskipulagning-
ar félagsins. Samkvæmt fund-
argerðum Reykjanesbæjar var
þetta mál á dagskrá bæjarráðs
þann 18. maí sl. og hlaut þar sam-
þykki allra bæjarráðsmanna sem
eru fulltrúar þriggja stjórnmála-
flokka (Sjálfstæðisflokks, Sam-
fylkingar og Framsóknarflokks).
Haft er eftir Árna Sigfússyni,
stjórnarformanni Fasteignar hf.
og bæjarstjóra Reykjanesbæjar,
á vef Víkurfrétta að sveitarfé-
lögin sem stærstu eigendur hafi
náð fram öllum sínum samnings-
markmiðum.
Ekki er á nokkurn hátt hægt að
lesa út úr þessari fréttatilkynn-
ingu eða bókun bæjarráðs frá
18. maí hvaða áhrif þessi meinta
endurskipulagning hefur á fjár-
hag Reykjanesbæjar til lengri eða
skemmri tíma. Notað er orðalag
eins og ásættanleg niðurstaða,
veruleg lækkun og óvissu eytt,
svo að eitthvað sé nefnt.
Fyrir mig sem íbúa, vekur
þetta upp fleiri spurningar en ég
fæ svarað.
Ætla ég þess vegna að leyfa
mér að setja hér fram nokkrar
spurningar sem ég fer fram á að
kjörnir fulltrúar svari. Vænti ég
þess að þeir hafi svör við þessum
spurningum á reiðum höndum,
þar sem ég geri ráð fyrir að þeir
hafi byggt ákvörðun sína á svip-
uðum vangaveltum og ég set hér
fram.
Eignarhaldsfélagið Fasteign
hf. var stofnað á árinu 2003. Inn-
borgað hlutafé Reykjanesbæjar
var á þeim tíma rúmar 500 millj-
ónir.
1. Hvað er þetta hlutafé metið
á núvirði?
2. Hvað verður um þetta hlutafé
í þeirri endurskipulagningu Fast-
eignar sem nú fer fram?
3. Hversu háa fjárhæð þarf að
afskrifa í bókum Reykjanesbæjar
vegna þessarar endurskipulagn-
ingar?
4. Hvað á Reykjanesbær stóran
hlut í nýrri Fasteign í prósentum
talið og hvers virði er hann?
5. Mun Reykjanesbær þurfa
að leggja til fjármuni til kaupa á
hlutafé í nýrri Fasteign?
Skv. fréttatilkynningu verð-
ur Eignarhaldsfélagið Fasteign
í eigu níu sveitarfélaga ásamt
Arion Banka. Gamla Fasteign var
m.a. í eigu Íslandsbanka eða for-
vera hans.
6. Hver er ástæða þess að ný
fjármálastofnun kemur að rekstri
Fasteignar?
Skv. fréttatilkynningu verður
nýja Fasteign hreint leigufélag,
þ.e. mun ekki sjá um viðhald eign-
anna eins og hingað til hefur við-
gengist. Viðhaldið og rekstur fast-
eignanna mun því alfarið lenda
á Reykjanesbæ. Viðhald eigna
er auðvitað mismunandi eftir
ástandi þeirra og aldri en hægt
er að gera sér grein fyrir ein-
hverjum meðaltalskostnaði með
því að skoða heildarkostnað við-
halds yfir eitthvert tiltekið árabil.
7. Hver hefur árlegur viðhalds-
kostnaður Fasteignar hf. verið
að meðaltali vegna þeirra eigna
sem Reykjanesbær hefur leigt af
félaginu, frá þeim tíma sem Fast-
eign hf. var stofnað?
8. Hvað getur Reykjanesbær
reiknað með að þurfa að eyða í
viðhald og rekstur fasteignanna?
Svar óskast sem prósentuhlut-
fall af virði fasteignanna.
Í fréttatilkynningu er greint
frá því að gert sé ráð fyrir að
leigugreiðslur lækki um og yfir
50% fyrstu árin frá því sem nú er.
9. Hversu lengi er gert ráð fyrir
að þetta lækkunarástand vari?
10. Hver verður árleg húsaleiga
til Fasteignar á meðan lækkunar-
ástand varir?
11. Hvað tekur við eftir að
lækkunarástandi lýkur?
Í fréttatilkynningu er sagt frá
því að leigutakar eigi þess kost að
kaupa leigueignir á mun hagstæð-
ara verði en núverandi samning-
ar gera ráð fyrir. Það gefur leigu-
tökum mikið svigrúm er varðar
endurfjármögnun og endurskipu-
lagningu á þeirra eigin fjárhag.
12. Við hvaða mikla svigrúm
er átt?
13. Hafa kjörnir fulltrúar í bæj-
arstjórn Reykjanesbæjar látið
skoða þetta mikla svigrúm og velt
því fyrir sér hvort nýta megi það
til hagsbóta fyrir íbúa Reykjanes-
bæjar?
Sagt er í fréttatilkynningu að
leigan muni þó fylgja kostnaði
félagsins og geti því tekið breyt-
ingum verði breytingar á ytri
aðstæðum.
14. Óskað er eftir sundurlið-
un á því hvaða kostnaður verður
lagður til grundvallar húsaleigu,
þannig að hver kostnaðarþáttur
verði sýndur sem prósenta af
virði eigna.
Vegna þess að rekstur fasteigna
er svo stór þáttur í rekstrarkostn-
aði sveitarfélaga skiptir máli að
þeim fjármunum sé varið eins vel
eins og kostur er.
Það skiptir líka máli að ekki
þurfi að koma til verulegra
afskrifta á fjármunum sveitar-
félaga vegna illa ígrundaðra
ákvarðana kjörinna fulltrúa. Það
sýnist mér vera að eiga sér stað í
tilfelli Fasteignar. Það hlýtur því
að vera réttmæt krafa að kjörn-
ir fulltrúar geri íbúum grein
fyrir þeim ákvörðunum sem þeir
taka og varða íbúa miklu. Ekkert
hefur birst opinberlega um þetta
mál annað en fréttatilkynning frá
Fasteign hf. og tilvitnanir í þann
aðila sem býr við það hlutskipti að
sitja beggja vegna borðs í málinu.
Flikkað upp á Fasteign?
Fjármál
Guðbrandur
Einarsson
íbúi í Reykjanesbæ
Það skiptir líka
máli að ekki þurfi
að koma til verulegra
afskrifta á fjármunum
sveitarfélaga vegna illa
ígrundaðra ákvarðana
kjörinna fulltrúa. Það
sýnist mér vera að eiga sér
stað í tilfelli Fasteignar.
www.kexsmidjan.is