Fréttablaðið - 14.06.2012, Page 25
FIMMTUDAGUR 14. júní 2012 25
Þann 12. apríl sl. var met-anólverksmiðja Carbon
Recycling International (CRI)
í Svartsengi formlega opnuð.
Stuttu áður birtist frétt í Morg-
unblaðinu undir yfirskriftinni
„Metanól gæti komið í stað
bensíns á Íslandi“ þar sem rætt
er við framkvæmdastjóra við-
skiptaþróunar CRI sem segir að
það séu „engin mikil ljón í veg-
inum“ fyrir að reisa nýja met-
anólverksmiðju á höfuðborgar-
svæðinu.
Metanól, betur þekkt sem tré-
spíri, berst inn í mannslíkamann
við neyslu, snertingu eða inn-
öndun þar sem það veldur skæð-
um eituráhrifum. Neysla á 0,01
lítrum af metanóli veldur varan-
legri blindu í fólki og eins lítið
og 0,03 lítrar getur valdið dauða.
Vegna þessarar heilsuhættu
kveða Evrópureglur á um að
hámarksmagn metanóls í bens-
íni sé innan við 3%. Þrátt fyrir
þetta stefnir CRI á að framleiða
50.000.000 lítra af metanóli á ári
í nýju verksmiðjunni. Jafnframt
hefur fyrirtækið ítrekað verið
með yfirlýsingar um að metanól-
væða bílaflota Íslands með allt
að 75% metanólblöndu. Er sem
sagt búið að tryggja að þessar 50
milljónir lítra á ári, auk þeirr-
ar framleiðslu sem nú þegar er
hafin í Svartsengi, muni ekki
komast í snertingu við fólk og
eru lýðheilsusjónarmið ekki ljón
í veginum?
Einhliða markaðssetning
Carbon Recycling International
hefur alfarið sneitt fram hjá
umræðu um eituráhrif met-
anóls í kynningarstarfi sínu.
Þess í stað er umhverfissjón-
armiðum flaggað og tréspírinn
markaðssettur sem „vistvænt
metanól“. Nafnavalið er skiljan-
legt. Metanól hljómar líkt öðrum
umhverfisvænum orkugjöfum,
þ.e.a.s. metan og etanól og ruglar
fólk þessum orkugjöfum gjarn-
an saman. Ekki láta blekkjast,
við drekkum etanól þegar við
neytum áfengis og myndum
metan í meltingarvegi okkar á
meðan hálft staup af metanóli
veldur nægilega miklum tauga-
skemmdum til að blinda fullvax-
inn mann.
Mótrök framleiðanda
Undirritaður hefur áður fjallað
um eðli metanóls, áhrif, tak-
markaða notkun þess á heims-
vísu og ástæður í greinaskrif-
um sínum í Fréttablaðinu 17. og
26. nóvember. Helstu mótrök
sem bárust frá CRI voru þau að
bensín innihaldi ýmis skaðleg
efni og að „við umgöngumst elds-
neyti daglega án þess að bera
skaða af“.
Þessi fullyrðing er einkenn-
andi fyrir óábyrga markaðs-
setningu fyrirtækisins. Það er
rétt að í bensíni er að finna ýmis
skaðleg efni. Áður fyrr innihélt
það blý og inniheldur m.a. efnið
bensen sem er hættulegt krabba-
meinsvaldandi efni. Langt er
síðan bensín varð blýlaust og
hefur magn bensens í bensíni
lækkað úr >5% í u.þ.b. 1% í flest-
um bensínblöndum í dag. Stað-
reyndin er sú að undanfarna ára-
tugi hefur þróunin verið á þá leið
að minnka magn heilsuspillandi
efna í bensíni. Carbon Recycling
International er greinilega með
aðrar hugmyndir.
Liðkun regluverks
Til þess að standa vörð um lífs-
gæði og heilsu, hafa víðtækar
regluverksbreytingar farið fram
undanfarna áratugi í Evrópu
og víðar sem gagngert tak-
marka magn skaðlegra efna í
bensíni. Tréspíri (metanól) er
eitt slíkt efni og þess vegna
eru reglugerðir sem kveða á
um hámarksmagn þess, sem er
mjög lágt (<3%). Í fyrstu ætlar
CRI að blanda metanóli í bens-
ín á Íslandi sem nemur þessu
hámarki.
Skv. öðrum reglum ESB eru
settar takmarkanir á heildar-
magn eiturefna í bensíni á sum-
armánuðum, þegar uppgufun
þeirra er hvað mest. Þessa til-
skipun er verið að innleiða á
Íslandi en fyrirhuguð íblöndun
metanóls í 3% styrk brýtur í
bága við hana. Með íblönduninni
fer heildarmagn hættulegra efna
í bensíni yfir þessi mörk. Nú er
til skoðunar innan umhverfis-
ráðuneytisins að breyta þessum
reglum og auka leyfilegt hámark
þessara efna.
Hvað vilja Íslendingar?
Þetta vekur upp ýmsar spurn-
ingar. Er þetta eingöngu til þess
fallið að liðka fyrir íblöndun met-
anóls og stuðla að auknu magni
eiturefna í bensíni þvert gegn
þróuninni undanfarna áratugi?
Er hér verið að tefla með heilsu
landsmanna í tilraunaskyni og er
þetta það sem við viljum? Vega
umhverfissjónarmið þyngra en
lýðheilsusjónarmið í þessu sam-
hengi eða er hér verið að fara úr
öskunni í eldinn?
Aðkoma heilbrigðisyfirvalda?
Eitt er ljóst, yfirlýsingar Carbon
Recycling International eru
algjörlega úr takti við lýðheilsu-
sjónarmið og reglur þar að
lútandi. Allt tal þeirra um að
metanól taki við af jarðolíu er
óábyrgt svo ekki sé meira sagt.
Tímabært er að heilbrigðis-
yfirvöld hafi afskipti af þessum
áformum til að stemma stigu við
þeirri einhliða markaðssetningu
sem hér hefur átt sér stað út frá
umhverfissjónarmiðum eingöngu.
Til eru aðrir umhverfisvænir
orkugjafar s.s. rafmagn, metan og
etanól sem ekki krefjast sérstakr-
ar meðhöndlunar skv. Alþjóða-
heilbrigðismálastofnuninni vegna
eituráhrifa sinna á fólk. Annað er
að segja um metanól.
Metanól í bensín – markaðssetning tréspíra á Íslandi
Orkugjafar
Hjalti
Andrason
líffræðingur
Metanól hljómar
líkt öðrum um-
hverfisvænum orku-
gjöfum, þ.e.a.s. metan
og etanól og ruglar fólk
þessum orkugjöfum
gjarnan saman.