Fréttablaðið - 14.06.2012, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 14.06.2012, Blaðsíða 26
26 14. júní 2012 FIMMTUDAGUR Undanfarin ár hefur verið unnið að endurskoðun gildandi laga um dýravernd. Áhugasamir um bætta og siðlega meðferð dýra, ekki síst eldisdýra, hafa gert sér vonir um að ný og endurskoðuð lög bönnuðu alfarið kvalafulla og hrottafengna meðferð þeirra en nú er starfsmönnum eldisbúa heimilt að framkvæma þjáningarfullar aðgerðir á eldisdýrum án deyf- ingar eða annarrar kvalastillandi meðferðar. Rökin fyrir þessu siðlausa hátta- lagi eru að fram að tilteknum aldri sé tilfinninga- og sársaukaskyn dýranna það vanþroskað að slíkar aðgerðir valdi þeim ekki ama svo sennilega sem það kann að hljóma. Nú má t.d. klippa í sundur tennur og hala grísa deyfingarlaust og gelda unggelti á sama máta allt að viku gamla. Þessi mörk gætu allt eins verið tvær vikur eða fimm, jafnvel þrír mánuðir, allt eftir því hvað hentaði eldisiðnaðinum. Þeir sem purkunarlaust réttlæta siðlausa og ólíðandi meðferð dýra halda því iðulega fram að þeir sem andmæli henni þekki ekki „lífsins gang“. Það er nokkuð til í því enda leggur iðnaðurinn mikla áherslu á að sannleikanum um skelfilegan aðbúnað og meðferð eldisdýra sé haldið frá almenningi. Verksmiðju- búin, gluggalaus óskapnaðurinn, eru falin bak við grjótgarða og kyrfilega lokuð óviðkomandi. Myndatökur óheimilar. Íslenskum neytendum gafst nýverið sjaldgæft færi á að kom- ast nær sannleikanum um „lífsins gang“ því í sjónvarpi var sýndur nokkurra ára gamall matreiðslu- þáttur þar sem stjörnukokkurinn Jamie Oliver hvetur breska neyt- endur til að auka viðskipti sín við þarlenda framleiðendur svínaaf- urða. Jamie vildi kynna áhorfend- um lífshlaup gríss frá goti til gaff- als eins og hann orði það. Meðal þess sem bauðst að horfa á og ekki síður að heyra, var deyfingarlaus gelding unggaltar. Aðgerðin var langdregin og óhugguleg. Beitt var hnífi og prjóni til að skrapa út eistu og vefi úr kvið galtarins ólánssama. Kvalastríð og þján- ingavein dýrsins munu seint líða þeim úr minni sem urðu vitni að óþverraskapnum. Það ætti hverjum þeim sem á horfði að vera ljóst hve skefjalaus illmennska, grimmd og heimska er að fara svona með bjargarlausa vesalingana og réttlæta það með því að verið sé að taka tillit til bragðsmekks neytenda og aðhalds í kostnaði. Það vakna óneitanlega upp spurningar varðandi það hvort mannskepnunni sé ekkert heilagt og hvort bregða megi mælistiku arðsemi á hvaðeina en láta mann- úð og manngildi reka á reiðanum. Ef þessar aðferðir valda aligelt- inum litlum ama, eins og tals- menn iðnaðarins vilja halda fram, hvers vegna skyldi þeim þá ekki vera beitt þegar heimilisdýr eiga í hlut, t.d. hundar og kettir? Eigend- urnir gætu þá jafnvel sjálfir gert aðgerðir á dýrunum og á þann hátt sparað sér læknis- og lyfjakostnað. Þegar nýtt frumvarp til laga um velferð dýra er skoðað má sjá að ráðherra málaflokksins ásamt ráð- gefandi nefnd, að hluta til skipaðri dýralæknum, hefur látið undan þrýstingi hagsmunaaðila um að fá að halda deyfingarlausa hrotta- skapnum til streitu. Þetta er gert þrátt fyrir að markmið laganna sé að dýrin „séu laus við vanlíðan, hungur og þorsta, ótta og þjáningu, sársauka, meiðsli og sjúkdóma, í ljósi þess að dýr eru skyni gædd- ar verur“. Þannig er í lögum sem veita eiga dýrum vernd gegn illri meðferð veitt heimild til að beita þau óbærilegu kvalræði til þess eins að þjóna arðsemissjónarmið- um framleiðenda og neytenda. Það er siðferðisleg skylda löggjafans að gera lög um dýravelferð þannig úr garði að þau banni fortakslaust og á afgerandi hátt alla illa með- ferð dýra. Hér er ekki einungis um að ræða spurningar um dýravernd heldur er um að ræða fjölmörg og knýjandi siðferðisleg álitaefni. Að misþyrma dýrum á skipu- legan hátt í ágóðaskyni og vegna þess að þau geta ekki varið sig eða eiga sér ekki málsvara, er lítil- mannlegt og siðlaust og ekki sam- boðið íslensku samfélagi. Það er því nöturleg tilhugsun að í alls- nægtasamfélaginu verði þjáning- arfull hrottameðferð eldisdýra varin í lögum til frambúðar. Það að stjórnmálamenn sem um véla láti sér lynda að bjargarlaus dýr, sem alfarið eru háð náð og miskunn þeirra sem með þau fara, séu kval- in og pínd að þarflausu, einungis til að þjóna hagsmunum fram- leiðenda og neytenda er ósvinna. Framleiðendur fela síðan ósóm- ann og þeir neytendur sem þekkja „lífsins gang“ líta undan og þegja. Það er að sönnu tilefni til að Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands rannsaki þau samfélags- legu viðhorf sem liggja að baki ákvörðunum eins og þeim að verja með lögum níðingsskap gagnvart varnarlausum dýrum sem eiga sér enga undankomuleið því þau eru svo ólánssöm að verða manninum samferða á skammri lífsleið. Kvalastríð og þjáningavein dýrs- ins munu seint líða þeim úr minni sem urðu vitni að óþverraskapnum. Lögleiðing siðleysis Að mati flestra hefur ekki fund-ist betra fyrirkomulag við fiskveiðistjórnun en aflamarks- kerfi þar sem aflaheimild hvers skips er á hreinu en ríkið skipt- ir sér að öðru leyti sem minnst af veiðunum svo sem því hvort heimildirnar skipti um hendur eða ekki. Frjálst framsal aflaheim- ilda er lykilatriði í því að ná sem mestri hagkvæmni í sjávarútveg- inum. En einn hængur er á þessu fyrirkomulagi sem hefði átt að taka á strax í upphafi. Það er hin upphaflega útdeiling á kvótunum og að auðlindarentan skuli ekki nema að óverulegu leyti skila sér til eigenda auðlindarinnar, sem að mati flestra er þjóðin öll. Þetta er það atriði sem er meginorsök úlf- úðar um fiskveiðistjórnunina. Ganga þarf beint til verks Í stað þess að taka beint á þess- um vanda hefur regluverkið um veiðarnar orðið æ flóknara og er uppfullt af sérákvæðum, tak- mörkunum og hindrunum. Nú eru uppi á borðinu stjórnarfrumvörp sem virðast vera af þessu tagi. Það getur ekki verið leiðin til að sætta þjóðina að auðlindaarður- inn hverfi í óhagkvæmum útgerð- arháttum. Undirritaður hefur tekið þátt í vinnu og umræðu um þessi mál allt frá upphafi kvótakerfisins 1983 og hefur verið í hópi þeirra sem hafa um áratugaskeið mælt með markaðsleið til lausnar úr þessari úlfakreppu. Leiðin felst í því að útgerðin taki kvótana á leigu á því verði sem hún er fús til að greiða; við því markaðsverði sem fengist með uppboðum, ekki einhverju verði sem stjórnmála- menn ákvarða. En sérhver breyt- ing verður að hafa sanngjarna aðlögun sem best felst í því að núgildandi réttur fyrnist smám saman. Það undarlega er að ætl- aðir talsmenn frjálsra viðskipta og markaðslausna eru helstu and- stæðingar þessarar hugmyndar, með undantekningum þó. Pétur H. Blöndal alþm. hefur nú sem og fyrr lagt fram frv. í þessa veru. Hvað vill stjórnlagaráð? Stjórnlagaráð tók á þessum útdeil- ingar- og arðsvanda, eins og því bar að gera. Ráðið fjallar um nýtingu takmarkaðra auðlinda í þjóðareigu í 34. gr. frv. síns. Þar segir að fyrir hagnýtinguna eigi að greiða „fullt gjald“, sem er orðalag sótt í ákvæði núgildandi stjórnarskrár um eignarnám. Jafnframt er tilskilið að nýtingar- rétturinn skuli veittur á „jafnræð- isgrundvelli“. Fyrirkomulag upp- boða með fyrningaraðlögun fellur vel að þessum ákvæðum. Aðlögun er að vísu ekki beinlínis tilgreind í tillögugreininni en liggur í hlut- arins eðli. Sé hún ekki strax við- höfð í löggjöf til fyllingar stjórn- arskrárákvæðinu, sem væri hið skynsamlega, er viðbúið að dóm- stólar myndu kveða upp úr um hana. Sé byggt á fyrningu þarf í þessu skyni að ákveða fyrning- arhlutfall sem er t.d. 2,5% í frv. Péturs H. Blöndals. Það merkir að með aðlöguninni fá núverandi kvótahafar að halda um helmingi af núvirði auðlindaarðsins um alla framtíð. Í útfærslu sem við Jón Steinsson unnum fyrir sátta- nefndina svokölluðu var hlutfallið jafngildi 5% sem svarar til þess að um þrír fjórðuhlutar arðsins renni til þjóðarinnar. Að auki ber að hafa í huga að ýmsar leiðir geta rúmast innan ráðgerðs stjórnar- skrárákvæðis aðrar en uppboðs- og fyrningarleiðin. Stjórnlagaráð leggur ekki á ráðin um fiskveiðistjórnun Tilefni þessara skrifa eru orð hins virta pistlahöfundar Þorsteins Pálssonar laugardaginn 9. júní hér í blaðinu þar sem hann segir „[A]fleiðingin [af nýju stjórn- arskránni] er þá sú að útilokað verður um alla framtíð að reka sjávarútveg á Íslandi með hag- kvæmasta hætti.“ Þessari sterku fullyrðingu verður að andmæla. Tillögur stjórnlagaráðs fjalla einvörðungu um útdeilinguna og skiptingu arðsins. Þær segja ekk- ert um fyrirkomulag fiskveiði- stjórnunar að öðru leyti. Það hefur margoft komið fram hjá hagfræð- ingum að markaðsákvarðað veiði- gjald ásamt vissri opnun fyrir nýliða með fyrningarákvæðinu myndi fremur en ekki auka heild- ararðsemi greinarinnar þegar til lengdar er litið. Þá býður fyrir- komulagið ekki þeirri hættu heim, sem pólitískt ákvarðað veiðigjald gerir, að veiðar verði ekki stund- aðar í fullum mæli. Löggjöf um skipulag fiskveiða sem leitt getur til óskilvirkrar útgerðar verður ekki réttlætt með tillögum stjórn- lagaráðs. Slíkt væri engan veginn á ábyrgð ráðsins. Tillögur stjórn- lagaráðs vega ekki að hagkvæmni í útgerð, heldur þvert á móti. Vega tillögur stjórnlagaráðs að hagkvæmni í útgerð? Dýravernd Óskar H. Valtýsson neytandi og félagi í Dýraverndarsambandi Íslands Sjávarútvegsmál Þorkell Helgason sat í stjórnlagaráði ÓDÝRASTI ÍSINN Í BÓNUS Á ÞRIÐJA HUNDRAÐ EURO SHOPPER VÖRUTEGUNDIR Í BOÐI 398 kr. 12 stk. 498 kr. 8 stk. 298 kr. 3 stk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.