Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.06.2012, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 14.06.2012, Qupperneq 34
FÓLK|BÍLAR Aðalskoðun hf. er faggilt skoð-unarstofa sem stofnuð var árið 1994, skömmu eftir að opnað var fyrir samkeppni á sviði bifreiðarskoðunar hérlendis. Í dag rekur Aðalskoðun átta skoðunar- stöðvar víða um land, þar af fimm á suðvesturhorni landsins. Bergur Helgason, framkvæmdastjóri Aðal- skoðunar, segir mikla endurnýjun hafa átt sér stað undanfarin ár á húsnæði og búnaði skoðunarstöðv- anna. „Aðalskoðun leggur auk þess mikla áherslu á snyrtilegan aðbúnað fyrir viðskiptavini okkar og góða þjónustu. Viðskiptavinir okkar eru í góðum höndum þaulreyndra starfs- manna okkar sem eru þjónustuliprir fagmenn fram í fingurgóma. Margir þeirra hafa auk þess starfað hér frá stofnun fyrirtækisins. Nýlega opnaði Aðalskoðun nýja skoðunar- stöð á Grjóthálsi í Reykjavík. Um er að ræða tveggja brauta skoðunar- stöð með lyftu og gryfju sem hentar vel öllum almennum fólksbílum og jeppum. „Auk þess opnuðum við nýja stöð í Skeifunni í Reykjavík árið 2008. Ári síðar tókum við stöð okkar í Kópavogi alveg í gegn, stækkuðum hana um helming og settum inn nýjan búnað. Í Hafnarfirði endur- nýjuðum við lyftur og hemlabúnað nýlega.“ Aðalskoðun leggur að sögn Bergs mikla áherslu á góðan aðbúnað fyrir viðskiptavini. „Stöðvar okkar bjóða upp á kaffi og vatn, úrval tímarita og innan skamms verða komnir heitir reitir (Hotspot) á allar stöðvar okkar. Þá komast viðskiptavinir á netið á meðan þeir bíða eftir bílnum sínum. Þetta gerum við til að bregðast við snjallsímakynslóðinni sem vill frekar fara á netið í stað þess að lesa eldri tímarit.“ Vor- og sumartíminn er annasam- asti tími ársins hjá Aðalskoðun en auk þess er yfirleitt mikið álag á skoðunarstöðvum í lok hvers mán- aðar. Bergur segir mikilvægt að bíleigendur mæti tímanlega í skoðun til að forðast óþarfa biðraðir. „Of margir eru að bíða fram á síðustu daga mánaðarins til að koma með bílinn í skoðun. Þótt bíleigendur hafi rúman tíma gerist það samt of oft, þrátt fyrir að við sendum þeim bréf til áminningar. Það er líka óþarfi að fá á sig álagningu vanrækslugjalds.“ NÝ SKOÐUNARSTÖÐ Á GRJÓTHÁLSI 10 AÐALSKOÐUN KYNNIR Persónuleg og góð þjónusta er aðalsmerki Aðalskoðunar NÝ SKOÐUNARSTÖÐ Aðalskoðun opnaði ný- lega nýja skoðunarstöð á Grjóthálsi í Reykjavík. MYND/STEFÁN KARLSSON PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA „Viðskiptavinir okkar eru í góðum höndum þaulreyndra starfs- manna okkar sem eru þjónustuliprir fagmenn fram í fingurgóma,“ segir Bergur Helgason framkvæmdastjóri Aðal- skoðunar. MYND/STEFÁN KARLSSON SKOÐUNARSTÖÐVAR AÐALSKOÐUNAR: Reykjavík: Skeifan 5 og Grjótháls 10 Hafnafjörður: Hjallahraun 4 Kópavogur: Skemmuvegur 6 Reykjanesbær: Holtsgata 52 Grundarfjörður: Sólvellir 17a Ólafsfjörður: Múlavegur 13 Reyðarfjörður: Leiruvogur 6 Við hlökkum til að skoða bíla og ferða-vagna Hafnfirðinga og það er spennandi að vera loks kominn í bæinn,“ segir Orri Vignir Hlöðversson framkvæmdastjóri Frumherja sem í liðinni viku opnaði nýja og glæsilega skoðunarstöð að Dalshrauni 5 í Hafnarfirði. Orri segir nýju stöðina búna fullkomnum skoðunar- búnaði og frábærri aðstöðu fyrir viðskiptavini til að stytta biðina á meðan skoð- un fer fram. „Við skoðum ökutæki upp í fimm tonn af leyfðri heildar- þyngd og leggjum áherslu á þjónustu við eigendur ferða- vagna með sérstökum búnaði til skoðunar á fellihýsum, hjólhýsum og tjaldvögnum,“ segir Orri. Hjá Frumherja í Dals- hrauni er einnig boðið upp á ástandsskoðun bifreiða en sú þjónusta hefur verið í miklum vexti á síðastliðnum árum. „Fram að þessu var ástandskoðun að miklu leyti bundin við höfuðstöðvar okkar á Hesthálsi en í Dals- hrauni er nú líka til staðar sértækur búnaður og þekk- ing til ástandsskoðunar bif- reiða. Það er algjört lykilat- riði og sýnir sig æ ofan í æ að það margborgar sig að verja peningum í ástandsskoðun áður en gengið er frá kaupum á notuðum bíl,“ segir Orri. Frumherji er leiðandi og stærst fyrirtækja á meðal skoðunarstöðva og með sterka markaðshlutdeild á landsvísu. Stöðin í Hafnar- firði er áttunda stöð fyrirtæk- isins á höfuðborgarsvæðinu. „Í allt erum við með skoð- unarstöðvar á yfir þrjátíu stöðum á landinu og sama verð um land allt. Einnig færanlega skoðunarstöð fyrir fámennari byggðarlög og stóra viðskiptavini með stóran flota bíla til skoðun- ar,“ útskýrir Orri. Hann segir tímapant- anir að mestu hafa lagst af á höfuðborgarsvæðinu en enn kjósi margir á landsbyggð- inni að panta tíma fyrir bíl sinn í skoðun. „Hvarvetna leggjum við áherslu á góða þjónustu og stuttan biðtíma. Á meðan beðið er geta viðskiptavinir fengið sér hressingu, kíkt í blöðin eða tölvur og skráð sig í Lukkuleik Frumherja. Vinningur er eldsneyti að verðmæti 25 þúsund í hverri viku,“ segir Orri. Frumherji í Dalshrauni er opinn alla virka daga frá 8 til 17. Sjá freistandi opnunartil- boð á www.frumherji.is. TRAUSTUR, LIPUR OG REYNDUR FRUMHERJI KYNNIR Frumherji opnaði nýja og glæsilega skoðunarstöð í Hafnarfirði um nýliðna helgi. Þar er lögð áhersla á trausta bifreiðaskoðun, sérstaka þjónustu við eigendur ferðavagna og vandaða ástandsskoðun vegna kaupa á notuðum bílum. VELKOMINN Í HAFNARFJÖRÐ Við opnunina í Hafnarfirði bauð Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri Frumherja velkominn í bæinn og klippti á hátíðlegan borða í íslensku fánalitunum. Orri Vignir Hlöðversson framkvæmdastjóri stendur til vinstri við bæjarstjórann og hægra megin er Karl Sigurðsson sviðsstjóri ökutækjasviðs Frumherja. MYND/STEFÁN LANGÞRÁÐ STUND Frumherjamenn eru spenntir að geta loks þjónustað bíl- og ferðavagnaeigendur í Hafnarfirði. Frá vinstri: Hafsteinn Valgarðsson stöðvarstjóri nýju stöðvarinnar, Ebenezer Bárðarson skoðunarmaður og Orri Vignir Hlöðversson framkvæmdastjóri Frumherja. JÓMFRÚARFERÐ Bæjarstjórinn fékk þann heiður að aka fyrsta bílnum í gegnum brautina í nýju stöðinni. Hann er eðalvagn af gerðinni Chevrolet El Camino, árgerð 1971.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.