Fréttablaðið - 14.06.2012, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 14.06.2012, Blaðsíða 38
KYNNING − AUGLÝSINGKonur 50 plús FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 20124 ÁFENGI MINNKAR LÍKUR Á HEILABLÓÐFALLI Allt er gott í hófi. Rannsóknir hafa sýnt að konur sem drekka sjö vínglös eða bjóra á viku eru ólíklegri til þess að fá heilablóðfall en konur sem drekka ekkert áfengi. Rannsókn þessi var gerð á 83 þúsund konum sem fylgt var eftir í 26 ár. Áfengi er þó tvíeggjað sverð. Varast verður að drekka það í óhóflegu magni vegna þess að þá getur blóð- þrýstingurinn hækkað og hætta á gáttatifi eykst sem síðan eykur líkurnar á heilablóðfalli. Hugsan- legt er að áfengið sjálft hafi verndandi áhrif og dragi úr hættu á heilablóðfalli. Hófleg áfengis- neysla getur haft jákvæð áhrif á blóðfitur og dregið úr blóðsega- myndun. Því þurfa konur ekki að fá samviskubit yfir að fá sér vínglas með kvöldmatnum. MIÐALDRA KONUR MEÐ YNGRI MÖNNUM Seinustu ár hefur það færst í aukana að miðaldra konur séu farnar að yngja upp. Þær eru oft kallaðar „cougars“ á ensku. Slíkum konum er yfirleitt lýst sem konum sem eru öruggar með sjálfar sig, taki yfir- leitt stjórnina í sambandinu og séu kynþokkafullar. Yfirleitt eru það karlarnir sem leita sér að eldri konu. Þeir heillast af sjálfstraustinu og reynslunni og finnst gott að þurfa ekki að sjá um konuna fjárhagslega. Bíógestir sáu margir slíkt samband í fyrsta sinn í bandarísku kvikmyndinni The Graduate en einnig hafa margar Hollywood-stjörnur verið með yngri mönnum eins og til dæmis Demi Moore og Susan Sarandon. Enn eru þó margir sem líta slík sambönd hornauga þó svo að það hafi þótt eðlilegt í margar aldir að karlar séu í sambandi við yngri konur. Tímarnir eru þó að breytast og samfélagið er að taka þessi sambönd í sátt. BREYTT MATARÆÐI Eftir því sem við eldumst minnkar orkuþörf okkar. Ástæðuna má fyrst og fremst rekja til minni hreyfingar og vöðvarýrnunar. Þrátt fyrir það minnkar ekki þörfin fyrir vítamín, prótín, steinefni og trefjaefni. Því þarf að huga vel að innihaldi og næringargildi matarskammta á efri árum svo þeir innihaldi öll nauðsynleg næringarefni samkvæmt vef Lýðheilsustöðvar. Þar er meðal annars bent á að ráðlegt sé að borða fituskerta fæðu og þá sérstaklega að sneiða hjá mettaðri fitu. Mælt er með hæfilegri hreyfingu til að minnka líkur á hægðatregðu. Til að vinna bug á henni er mælt með aukinni neyslu ávaxta, grænmetis og grófs kornmetis. Með jafn trefja- ríkum mat er nauðsynlegt að drekka nóg af vatni og er mælt með átta glösum á dag. Algengt er að járnskortur láti á sér kræla hjá eldra fólki og fyrir því geta verið margar ástæður. Því er nauðsynlegt að auka daglega neyslu á járnríkri fæðu eins og til dæmis rauðu kjöti, járnbættu kornmeti, kornmeti og grænlaufagrænmeti. Til að hámarka á sama tíma frásogið á járninu úr fæðunni er gott að neyta fæðu sem er C-vítamínrík, til dæmis ávaxta eða glass af hreinum ávaxtasafa og neyta grænmetis með hverri máltíð. Margir kannast við að kunna sér ekki hóf þegar kemur að sælgætis- neyslu. Þetta er oftast vítahringur sem stafar af mataræði. Til dæmis getur óhófleg saltneysla aukið þörf- ina fyrir sykur. Sykurinn veldur vímu sem dettur snögglega niður og sykurþörfin rís á ný. Hvað er til ráða? 1. Prótín. Sumir upplifa sykurþörf þegar líkaminn kallar á prótín. Eggjahvítur og skyr eru góðir prótíngjafar. 2. Fjarlægið freistingar. Farið í gegnum skápana og losið ykkur við sætindin. Reynið að forðast að kaupa meira í búðinni. 3. Fáið ykkur göngutúr í staðinn fyrir eftirrétt. Ef löngunin er enn til staðar eftir tíu mínút- ur skuluð þið bursta tennurnar en eftirbragðið blandast ekki vel við sætubragð svo löngun- in ætti að hverfa. 4. Dreifið huganum. Besta ráðið er að reyna að gleyma löngun- inni. Lesið bók, spilið á hljóð- færi, sinnið erindagjörðum eða hreinlega leggið ykkur. Forð- ist að sitja við eldhúsborðið og hugsa um sælgæti. 5. Skiptið sætindum út fyrir ávexti. Ávaxtasykur er hollari en hvítur sykur og trefjarnar í ávöxtunum hægja á upptöku sykursins. 6. Veljið vel. Ef þið ætlið að gera vel við ykkur á laugardagskvöldi skuluð þið frekar fá ykkur tvo bita af 70% súkkulaði heldur en mjólkursúkkulaði eða lakkrís. 7. Lesið á umbúðir. Það er ótrú- legt hversu mikill hvítur sykur leynist í matvörum sem við neytum dagsdaglega. Sniðgang- ið þær allra sætustu. 8. Drekkið vatn. Það er ótrúlegt hvað tvö stór vatnsglös geta gert. 9. Ekki borða sykraðan morgun- mat og reynið að forðast sykur þangað til í kaffitímanum. Syk- urneysla fyrri part dags kveikir á sykurþörfinni yfir daginn og getur valdið ógleði og óþægind- um í maga. 10. Hafið hollt snakk til reiðu. Fros- in vínber og bananar eru hrein- asta sælgæti! Að lokum er gott að hafa í huga að enginn breytist á einum degi og þess vegna er best að taka þetta í litlum skrefum. Annars er hætta á að falla í freistni og jafnvel tapa sér algjörlega. halla@365.is Sætindi og gotterí
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.