Fréttablaðið - 14.06.2012, Qupperneq 44
14. júní 2012 FIMMTUDAGUR32
BAKÞANKAR
Friðriku
Benónýs
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. stagl, 6. 950, 8. ról, 9. fugl, 11. í
röð, 12. bolur, 14. gróðabrall, 16. tveir
eins, 17. gerast, 18. bjálki, 20. frá, 21.
tegund.
LÓÐRÉTT
1. samtals, 3. samtök, 4. tungumál,
5. skjön, 7. andmæli, 10. sægur, 13.
viðmót, 15. töng, 16. stefna, 19. pfn.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. tafs, 6. lm, 8. ark, 9. lóm,
11. aá, 12. stofn, 14. brask, 16. áá, 17.
ske, 18. tré, 20. af, 21. tagi.
LÓÐRÉTT: 1. alls, 3. aa, 4. franska, 5.
ská, 7. mótbára, 10. mor, 13. fas, 15.
kefi, 16. átt, 19. ég.
Hugsum okkur að yfir standi Evrópu-meistaramót í knattspyrnu kvenna.
Sent er beint frá öllum leikum, áhorfið er
gífurlegt og spennan mikil. Á Facebook
skiptast menn á skoðunum um gæði liða og
leikja, halda fram sínum konum og ulla á
hinar. En hvað er nú þetta? Hver karlinn á
fætur öðrum setur inn Facebook-status þar
sem hann tjáir sig í löngu máli um stælta
rassa og stinn læri stúlknanna inni á vellin-
um. Þetta gengur náttúrulega ekki og við-
brögð kvenna og meðvitaðra karla láta ekki
á sér standa. Þetta er karlremba af verstu
sort, niðurlæging fyrir konurnar sem
hafa lagt hart að sér við æfingar og
keppni og lýsir engu öðru en ógeðslegu
innræti skrifarans. Og hana nú!
AUÐVITAÐ er þetta algjörlega
ímyndað dæmi. Þessi staða
gæti aldrei komið upp. Karlmenn
sem skrifuðu svona yrðu ofsóttir
vikum saman. Enda dytti engum
karli með vott af sjálfsvirðingu og
greindarvísitölu yfir 80 í hug að
láta svona vitleysu frá sér fara.
Þetta gæti bara gerst í ímynd-
uðum heimi.
Í RAUNVERULEIKANUM
stendur yfir Evrópumeistara-
mót í knattspyrnu karla. Sent er
beint frá öllum leikjum, áhorfið
er gríðarlegt og spennan mikil.
Umræðan á Facebook litast af knatt-
spyrnuáhuganum og menn ræða kost
og löst á leikjum og liðum. En hvað er
nú þetta? Hver konan eftir aðra setur
inn Facebook-status þar sem hún fer
fögrum orðum um stinna rassa og stælt
læri leikmannanna á vellinum. Og það
sem enn furðulegra er, þessir statusar
vekja hrifningu annarra kvenna. Þær
komm enta í röðum og lýsa yfir svipuðum
skoðunum á líkamshlutum leikmanna,
setja inn broskarla, blikkkarla og upp-
hrópunarmerki í löngum bunum. Enginn
minnist á niðurlægingu fyrir karlana
sem hafa lagt hart að sér við æfingar og
keppni. Enginn talar um ógeðslegt inn-
ræti, hvað þá karlfyrirlitningu. Þetta
þykir bara svakalega svalt og sanna hvað
konur séu nú orðnar frjálsar. Og svo
skilja þær ekkert í því að ekki skuli vera
fengnar fleiri konur til að tjá sig opinber-
lega um fótboltann.
ÉG HEF horft á fótbolta síðan ég man
eftir mér. Spilaði hann á yngri árum, á
mitt uppáhaldslið og leikmenn og breyt-
ist í ofstækisfulla fótboltabullu í mánuð
annað hvert ár þegar EM og HM fara
fram. Horfi á alla leiki sem ég get, hoppa
og öskra og reyti hár mitt. Dáist að bolta-
meðferð, samspili, baráttuanda og glæsi-
legum mörkum. En læri og rassar leik-
manna hafa aldrei vakið athygli mína.
Ætli ég sé kannski ekki kona?
Læri, læri, tækifæri
Jæja, þá
erum við
tilbúnir fyrir
flugtak!
Bíddu
aðeins,
helduru að
hann sé
hræddur?
Lítur út fyrir
að vera
glaður!
Take
him
away!
En... mamma
má alls ekki
vita af
Roger
that!
Jæja, gerðist eitt-
hvað áhugavert í
dag, Palli?
Gaur! Loksins
hringirðu aftur!
Bíddu
þangað til þú
heyrir hvað
gerðist í dag!
Hmm...
nei.
Afsakið hversu lengi
þið hafið beðið eftir
matnum. Kokkurinn
er enn þá í mat.
Ég bý til
reglurnar!
Nei! Ég bý til
reglurnar!
Nei! Ég! Nei! Ég!
Hættið!
Ég er búin að fá nóg af því að
hlusta á ykkur rífast! Farið bara í
leikinn!
Hvaða leik?
þessu!
BORGARTÚNI 12-14 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 1111 - MYNDSENDIR 411 3071
Óveruleg breyting á
aðalskipulagi Reykjavíkur
2001-2024
Ásholtsreitur – Brautarholt 7
Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt tillögu að
breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024
varðandi skilgreiningu á þéttingarreit nr. 18, við
Ásholt. Breytingin felur í sér að heimilt verði að byggja
allt að 100 nemendaíbúðir á reitnum, einkum litlar
einstaklingsíbúðir. Breytingin hefur ekki í för með sér
aukningu byggingarmagns eða hækkun nýtingarhlutfalls
á reitnum, frá þeim heimildum sem eru í gildandi
aðalskipulagi um þéttingarreitinn. Breytingartillagan nær
til 5. myndar í Greinargerð I, (1. mynd í netútgáfu). Sjá
nánar um tillögu á vef skipulags- og byggingarsviðs
Reykjavíkurborgar, skipbygg.is.
Aðalskipulagstillagan hefur verið send Skipulagsstofnun
til staðfestingar, skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr.
123/2010 um óverulegar breytingar á aðalskipulagi.
Skipulagsstjórinn í Reykjavík.
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
BORGARTÚNI 12-14 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 1111 - MYNDSENDIR 411 3071
Óveruleg breyting á
aðalskipulagi Reykjavíkur
2001-2024
Reykjavegur – Ný undirgöng
Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt tillögu að
breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024
varðandi undirgöng undir Reykjaveg á móts við
Suðurlandsbraut. Breytingin felur í sér að heimila gerð
undirganga undir Reykjaveg til að greiða leið og auka
öryggi hjólreiðamanna og gangandi vegfarenda á stíg
meðfram Suðurlandsbraut. Breytingartillagan nær til
þéttbýlisuppdráttar aðalskipulagsins. Sjá nánar um tillögu
á vef skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar,
skipbygg.is.
Aðalskipulagstillagan hefur verið send Skipulagsstofnun
til staðfestingar, skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr.
123/2010 um óverulegar breytingar á aðalskipulagi.
Skipulagsstjórinn í Reykjavík.
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið