Fréttablaðið - 14.06.2012, Side 52
14. júní 2012 FIMMTUDAGUR40 40tónlist
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Í SPILARANUM
Edward Sharpe And The
Magnetic Zeros - Here
Iggy Pop - Aprés Dexys - One Day I‘m
Going To Soar
tonlist@frettabladid.is
Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds-
son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Skýringar:
TÓNLISTINN
Vikuna 7. - 13. júní 2012
LAGALISTINN
Vikuna 7. - 13. júní 2012
Sæti Flytjandi Lag
1 Loreen ..................................................................Euphoria
2 Jason Mraz .............................................. I Won‘t Give Up
3 Ásgeir Trausti ................................................Sumargestur
4 Tilbury ................................................................Tenderloin
5 Carly Rae Jepsen ...................................Call Me Maybe
6 KK ................................................................................ Frelsið
7 Maroon 5 / Wiz Khalifa .................................Payphone
8 Olly Murs .................................Dance With Me Tonight
9 Valdimar ............................................................ Þú ert mín
10 Train ........................................................................Drive By
Sæti Flytjandi Plata
1 Sigur Rós ...................................................................Valtari
2 Of Monsters And Men ...........My Head Is An Animal
3 Ýmsir .................Eurovision Song Contest 2012: Baku
4 Bubbi Morthens......................................................Þorpið
5 Ýmsir ................................................................. Pottþétt 57
6 Hafdís Huld .....................................................Vögguvísur
7 Mugison ....................................................................Haglél
8 Tilbury .....................................................................Exorcise
9 Adele .................................................................................. 21
10 Ýmsir .................................Sjómenn: Íslenskir við erum
Það hefur oft gefið góða raun að yngri tónlistarmenn taki gamlar
og gleymdar hetjur upp á arma sína og geri með þeim plötur. Það
svínvirkaði þegar Rick Rubin gaf Johnny Cash nýtt líf með Americ-
an Recordings plöturöðinni, og ekki síður þegar Jack White tók upp
plötuna Van Lear Rose með Lorettu Lynn.
Damon Albarn hefur stundum fengið eldri listamenn til að syngja
inn á plötur Gorillaz. Einn þeirra er Bobby Womack sem söng og
samdi texta við smellinn Stylo
á plötunni Plastic Beach árið
2010. Í kjölfarið fór Bobby í
tónleikaferð með Gorillaz og
svo ákváðu þeir að Damon
tæki upp plötu með honum. Sú
plata, The Bravest Man In The
Universe, kom út á mánudag-
inn hjá XL-fyrirtækinu, en
forstjóri þess Richard Russell
vann líka við upptökurnar.
Bobby Womack fæddist árið
1944 í Cleveland í Ohio. Hann
byrjaði ungur að spila á gítar
og syngja með hljómsveit fjöl-
skyldunnar. Þegar Sam Cooke
stofnaði SAR-plötufyrirtækið
árið 1961 gerði hann samning
við hljómsveit Bobbys og bróð-
ur hans Curtis, The Valentinos.
Bobby samdi lög fyrir sveitina, eitt þeirra, It’s All Over Now, varð
smellur þegar Rolling Stones gerðu sína útgáfu af því.
Eftir að Sam Cooke var myrtur í desember 1964 giftist Bobby
ekkju hans. Það fór illa í marga tónlistarmenn og Bobby dró sig út úr
sviðsljósinu og einbeitti sér að hljóðversvinnu. Hann sneri aftur 1968
með sólóplötu. Hans frægasta plata er sennilega Across The 110th
Street, frá 1972, með tónlist við samnefnda blaxploitation-mynd.
Nýja platan er í anda klassísku Bobby Womack-platnanna, en samt
með nútímalegum raftónlistarskotnum hljómi. Hún hefur fengið
ágæta dóma.
Bobby í boði Damons
UPPREISN ÆRU Fyrsta sólóplata Bobby
Womack í langan tíma var gerð með Damon
Albarn.
KIRIYAMA FAMILY með Kiriyama family er plata vikunnar ★★★★
„Vönduð og fjölbreytt plata frá nýrri íslenskri popphljómsveit.“ - tj
Heilmyndir af látnu goðsögnunum
Jim Morrison og Jimi Hendrix eru
í undirbúningi og því styttist í að
haldnir verði tónleikar með þeim.
Mikið hefur verið rætt um heil-
myndir síðan rapparinn Tupac
Shakur steig óvænt á svið á Coac-
hella-hátíðinni í apríl. Það voru
félagarnir Dr. Dre og Snoop Dogg
sem stóðu á bak við uppátækið.
Í viðtali við Billboard sagði Jeff
Jampol, sem annast málefni Jims
Morrison, að það hafi verið í skoð-
un í næstum áratug að endurskapa
Morrison í þrívídd. Vonast hann til
að úr verði margmiðlunarupplifun
ásamt hljómsveitinni The Doors.
„Vonandi getur Jim Morrison
gengið upp að þér, horft í augun á
þér, sungið til þín, snúið sér við og
gengið í burtu,“ sagði hann.
Einnig er vitað til þess að Janie,
systir Jimi Hendrix, hafi starfað
með fyrirtækinu Musion System
að gerð sýndarútgáfu af gítar-
snillingnum.
Goðsagnir snúa aftur
JIM MORRISON Söngvari The Doors gæti
snúið aftur sem heilmynd.
The Smashing Pumpkins
gefur út sína fyrstu plötu
í fimm ár á mánudaginn.
Hún er hluti af 44-laga
verkefninu Teargarden By
Kaleidyscope.
Sjöunda hljóðversplata The Sma-
shing Pumpkins, Oceania, kemur
út á mánudaginn á vegum EMI.
Upptökur fóru fram í hljóðveri for-
sprakkans Billy Corgan í Chicago
með gítarleikaranum Jeff Schroe-
der, trommaranum Mike Byrne og
bassaleikaranum og söngkonunni
Nicole Fiorentino.
Að sögn Corgan er Oceania
„plata innan í annarri plötu“, eða
hluti af 44-laga verkefninu Tear-
garden By Kaleidyscope en fyrsta
lagið þaðan kom út 2009.
The Smashing Pumpkins var
stofnuð í Chicago 1988 af Corgan og
gítarleikaranum James Iah. Til liðs
við þá gengu bassaleikarinn D´arcy
Wretzky og trommarinn Billy
Chamberlin. Sveitin náði athygli
tónlistarunnenda fimm árum síðar
á grunge-tímabilinu með annarri
plötu sinni Siamese Dream. Aðdá-
endahópurinn stækkaði enn frek-
ar með hinni tvöföldu Mellon Col-
lie and the Infinite Sadness en bæði
hún og Siamese Dream fengu frá-
bæra dóma gagnrýnenda.
Eftir að hafa verið ein vinsælasta
rokksveit heims á tíunda áratugn-
um fór að halla undan fæti. Cham-
berlin var rekinn vegna eiturlyfja-
neyslu sinnar og Pumpkins gaf í
framhaldinu sem tríó út plötuna
Adore. Hún fékk heldur slakar við-
tökur. Árið 2000 kom út Machina/
The Machines of God, með Cham-
berlin aftur um borð. Skömmu síðar
ákvað Corgan að leggja Pumpkins
niður eftir að Machina II/The Fri-
ends & Enemies of Modern Music
leit dagsins ljós, eingöngu á netinu.
Árið 2005 tilkynnti Corgan svo
um endurkomu Pumpkins en hvorki
Iah né bassleikarinn Melissa Auf
der Maur, sem hafði gengið til liðs
við sveitina í stað Wretsky, höfðu
áhuga á að taka þátt. Corgan og
Chamberlin tóku því aleinir upp
Zeitgeist árið 2007. Hún fékk mis-
jafna dóma og töldu margir að
hljómsveitin væri ekki söm eftir
að Iah og D´Arcy hættu.
Corgan er samt ekki af baki dott-
inn og er ánægður með hljómsveit-
ina. „Jeff, Mike og Nicole eiga stór-
an þátt í hljómi og áferð Oceania.
Hún er ólík öllum öðrum plötum
sem ég hef gert.“
freyr@frettabladid.is
Plata innan í annarri plötu
FORPSRAKKI Billy Corgan er forsprakki bandarísku rokksveitarinnar The Smashing Pumpkins. NORDICPHOTOS/GETTY
Heilsueldhúsið
M
xys
stage
Whitley
y Tommy
ges)