Fréttablaðið - 14.06.2012, Side 66
14. júní 2012 FIMMTUDAGUR54
golfogveidi@frettabladid.is
Laxinn togar í marga en
það er ekkert leyndarmál
að verð á laxveiðileyfum
er hátt. Fréttablaðið hefur
tekið saman nokkur lax-
veiðisvæði þar sem hægt
er fá leyfi undir 20 þúsund
krónum og töluvert góð von
er á að krækja í lax. Hafa
ber í huga að þessi listi er
engan veginn tæmandi.
Korpa - laxveiði í Reykjavík
Úlfarsá, sem oftast er kölluð Korpa,
er tveggja stanga á þar sem á hverju
sumri veiðast um og yfir 200 laxar. Við
ána er ágætist veiðihús með salerni þar
sem veiðimenn geta borðað og hvílt
sig. Á ódýrasta tíma kosta veiðileyfin
frá 14.900 upp í 21.500. Veiðifélagið
Hreggnasi selur leyfi í Korpu.
Ferjukotseyrar í Hvítá
Á Ferjukotseyrum í Hvítá í Borgarfirði
eru ódýrustu dagarnir á 6.800 krónur
stöngin en þeir dýrustu kosta í 10.800
krónur. Laxavonin er ágæt enda
gengur laxinn, sem fer upp í Norðurá,
Gljúfurá, Þverá og Grímsá, þarna fram
hjá. Sem sagt tugir þúsunda laxa á
hverju sumri. Ekkert veiðihús er á
svæðinu. Lax-Á selur leyfin.
Grjótá og Tálmi
Áin Grjótá fellur í Tálma sem fellur
síðan í Hítará rétt ofan Langadráttar.
Aðeins tveir dagar eru lausir í júní
og kostar stöngin tæpar 20 þúsund
krónur. Ágætis veiðihús fylgir þessu
svæði. SVFR selur leyfin.
Þrjú vötn og litlar ár
Vatnasvæði Lýsu er við rætur
Snæfellsjökuls. Svæðið samanstendur
af þremur meginvötnum, Torfavatni,
Reyðarvatni og Lýsuvatni og litlum
ám sem á milli þeirra renna. Þó
svæðið sé auglýst sem silungasvæði
veiðast ríflega 100 laxar þarna á
hverju sumri. Ekkert veiðihús fylgir
og kostar stöngin undir 10 þúsund
krónum. SVFR selur leyfin.
Lax í Steingrímsfirði
Miðdalsá í Steingrímsfirði í Stranda-
sýslu á efstu upptök sín í litlum
pollum suður undir Gilsfirði. Töluvert
af sjóbleikju hefur veiðst í Miðdalsá
en annars er lítið vitað um ána því
ekkert hefur verið skráð í veiðibækur.
Þarna mun vera nokkur laxavon og
BLEIKJUR veiddust í
Vatnsdalsá sumarið 20111.342URRIÐAR veiddust í Vatnsdalsá í fyrrasumar2.700
Laxveiðileyfi undir 20 þúsund
1
6
13
17
2
7
14
3
8
15
4
10
16
5
12
9
11
18
*Silungasvæði með góðri laxavon ** Breytilegt eftir svæðum og tímabilum hvaða agn er leyft *** Bara fluga yfir hásumarið
hægt er að fá veiðileyfi frá 4.900
krónum. Lax-Á selur leyfin.
Stórlaxavon í Vatnsdalsá
Hægt er að fá veiðileyfi vel undir 20
þúsund krónum á silungasvæðinu í
Vatnsdalsá. Fyrir utan gríðarlega mikla
silungaveiði er töluvert góð von á laxi
þegar hann byrjar að ganga upp ána.
Ekki skemmir fyrir að Vatnsdalsá er
þekkt stórlaxaá. Alls eru tíu stangir
á silungasvæðinu og gott veiðihús
fylgir. Athugið að aðeins er leyfð
fluguveiði og skylt er að sleppa öllum
laxi. G og P selur leyfi í Vatnsdalsá.
Falleg á í Húnaþingi
Gljúfurá í Húnaþingi er falleg tveggja
stanga á. Áin er lítil og nett og eins
og nafnið gefur til kynna fellur hún
víða um falleg gljúfur. Meðalveiðin
er um 100 laxar á ári og fylgir gott
veiðihús ánni. Frá veiðihúsinu er
aðeins spölkorn niður í Hóp þar sem
silungur veiðist í miklu magni. Hregg-
nasi selur leyfin.
Veitt skammt frá Vaglaskógi
Góð veiði hefur verið í Fnjóská
undanfarin ár. Síðustu fjögur ár
hefur meðalveiðin verið 665 laxar
á sumri. Áin er stór og kraftmikil og
meðalþyngd laxa er tæp 10 pund. Í
september er hægt að fá leyfi undir
20 þúsund krónum og fylgir gott
veiðihús. SVFR og Stangaveiðifélagið
Flúðir selja leyfin.
Skjálfandafljót
Í Skjálfandafljóti er hægt að kaupa
silungsveiði með laxavon. Því svæði
er skipt í austurbakka og vesturbakka
og eru tvær stangir hvoru megin.
Svæðið er fjölbreytt og náttúran stór-
brotin. Hægt er kaupa leyfi frá tæpum
5 þúsund krónum upp í 13 þúsund.
Lax-Á selur leyfin.
Torfurnar í Aðaldal
Veiðisvæðin kennd við Staðartorfu
og Múlatorfu í Laxá í Aðaldal eru
kunn urriðaveiðisvæði en síðsumars
er ágætis laxavon þarna og þá auð-
vitað stórlaxavon. Í júní er hægt að fá
gistingu í Árnesi en eftir þann tíma
fylgir ekki veiðihús svæðinu. Aðeins
er leyft að veiða á flugu og kosta
ódýrustu veiðileyfin undir 15 þúsund
krónum. SVFR selur leyfin.
Reykjadalsá í Þingeyjarsýslu
Skammt frá Laxá er önnur skemmtileg
á sem margir vita ekki af. Reykjadalsá
er fyrst og fremst frábær urriðaá en
þar veiðast á hverju sumri einnig um
100 laxar. Þeir sem þekkja ána vilja
halda henni fyrir sig en dýrustu leyfin
kosta 18.900 krónur. Ágætt veiðihús
fylgir ánni. G og P selur leyfin.
Laxveiði í Álftafirði
Selá í Álftafirði er nánast mitt á milli
Hafnar í Hornafirði og Djúpavogs. Þar
eru tvær stangir og ágætis veiðihús.
Áin er falleg og hlykkjast um kjarrivax-
ið gljúfur og líparítkletta. Fram undir
miðjan júlí og í september er hægt að
fá veiðileyfi á um 15 þúsund krónur.
Affallið í Landeyjum
Affallið er skemmtileg fjögurra stanga
á þar sem hægt er að gera góða veiði
enda skilar áin töluvert mörgum
löxum per stöng. Allt svæðið er mjög
þægilegt yfirferðar. Frá 1. til 15. júlí
kosta veiðileyfin í Affallinu frá 15 og
upp í 20 þúsund krónur. Gott veiði-
hús fylgir. Ranga.is selur leyfin.
Skemmtileg á í Fljótshlíð
Þverá í Fljótshlíð er samsafn áa
í Fljótshlíð sem saman mynda
Þveránna. Allar eiga þær upptök sín
á heiðunum ofan við Fljótshlíðina
og eru að uppistöðu lindár með
dragáreinkennum. Ódýrustu leyfin
kosta 10 þúsund en þau dýrustu 20
þúsund. Ágætt veiðihús fylgir.
Ranga.is selur leyfin.
Hólsá á Suðurlandi
Hægt er að gera góða veiði við vestur-
bakka Hólsár. Fyrir þá sem ekki vita
þá tekur Hólsáin við af Ytri Rangá og
því mikið af laxi sem gengur þar upp.
Tvær stangir eru á svæðinu og ágætt
veiðihús. Í júlí er hægt að fá veiðileyfi
frá um 11 þúsund krónum upp í 20
þúsund. Lax-Á selur leyfin.
Ytri-Rangá
Þessa á þarf nú vart að kynna fyrir
veiðimönnum. Mörg þúsund laxar
veiðast í ánni á hverju ári. Í júní og
október kosta leyfin frá 15 þúsund
upp í 17 þúsund krónur. Ekkert veiði-
hús fylgir þessum ódýru veiðleyfum.
Lax-Á selur leyfin.
Tvö svæði í Soginu
Alviðra og Þrastarlundur í Soginu eru
aðrir staðir þar sem veiðileyfi eru á
þokkalega hagstæðu verði. Þar kosta
ódýrustu dagarnir 19.900 stöngin.
Athugið að það er bara ein stöng í
Þrastarlundi og því fylgir ekkert veiði-
hús svæðinu. Í Alviðru eru hins vegar
þrjár stangir og fínt veiðihús fylgir því
svæði. SVFR selur leyfin.
trausti@frettabladid.is
Ódýrar laxveiðiár: veiðileyfi undir 20 þúsund krónum
Agn Stangir
1 Korpa ........................................................................ .................... 2
2 Ferjukotseyrar ......................................................... ............ 2
3 Grjótá-Tálmi ........................................................... .................... 2
4 Vatnasvæði Lýsu ................................................... ............ 6
5 Miðdalsá í Steingrímsfirði ................................... .................... 2
6 Vatnsdalsá* ............................................................. .............................. 10
7 Gljúfurá .................................................................... .............................. 2
8 Fnjóská** ................................................................. .. 6-8
9 Skjálfandafljót* ...................................................... ............ 4
Agn Stangir
10 Reykjadalsá ............................................................. .............................. 6
11 Laxá í Aðaldal - Staðartorfa og Múlatorfa* . .................... 2-4
12 Selá í Álftafirði ........................................................ ..................... 2
13 Affall í Landeyjum ................................................ ..................... 4
14 Þverá í Fljótshlíð .................................................... ..................... 4
15 Ytri-Rangá*** .......................................................... .. 14-20
16 Vesturbakki Hólsár ................................................ ............ 2
17 Þrastarlundur (Sogið) .......................................... ............ 1
18 Alviðra (Sogið) ...................................................... ............ 2