Fréttablaðið - 14.06.2012, Page 70

Fréttablaðið - 14.06.2012, Page 70
14. júní 2012 FIMMTUDAGUR58 „Þessi fjöldi kemur mér mjög skemmtilega á óvart,“ segir Hild- ur Sverrisdóttir. Tæplega eitt hundrað kyn- ferðislegar fantasíur höfðu verið sendar inn á vefsíðuna fantasiur. is í síðustu viku í tengslum við væntanlega bók Hildar. Frestur til að skila inn fantasíum renn- ur út 19. júní. Þá ætlar Hildur að taka þær saman og nota í bók sína um fantasíur íslenskra kvenna sem er væntanleg síðsumars eða í haust, eins og Fréttablaðið hefur áður greint frá. Til að fá betri yfirsýn yfir verkefnið ákvað Hildur að hætta að skoða fantasíurnar sem komu inn á síðuna í síðustu viku og ætlar ekki að líta aftur á þær fyrr en að umsóknarfrestinum loknum. „Það sem ég var búin að skoða áður en ég hætti sýnir að þetta er fjölbreytt og greinilega skrifað af konum á öllum aldri og þarna eru íslenskir staðhættir,“ segir hún en ein fantasían ger- ist í víkingaskála. „Það eru bara sverð og skildir sem er mjög hressandi. Ég held það gerist ekki mikið íslenskara en það.“ Bæði stuttar fantasíur og lengri, sem nánast eru eins og fullbúnar smásögur, hafa verið sendar inn á síðuna. „Þær eru margar hverjar stutt atvikalýs- ing allt upp í vel útfærðar sögur með inngangi og öllum þessum smáatriðum sem konur eru svo hrifnar af.“ -fb SUMARFRÍIÐ Þær eru margar hverjar stutt atvika- lýsing allt upp í vel útfærðar sögur með inngangi og öllum þessum smáatriðum sem konur eru svo hrifnar af HILDUR SVERRISDÓTTIR LÖGFRÆÐINGUR „Ég er bara virkilega spenntur yfir þessu og auðvitað smá stress- aður líka,“ segir Benedikt Valsson annar umsjónamaður Hraðfrétta sem hann sér um ásamt Fannari Sveinssyni en félagarnir ganga til liðs við Ríkissjónvarpið og Kast- ljós í haust. Hraðfréttir slógu í gegn á vef- varpi Mbl.is síðastliðinn vetur en þar fóru þeir Benedikt og Fannar yfir atburði líðandi stundar á met- hraða. Benedikt segir að velgegni þáttanna hafi komið þeim í opna skjöldu þó að vissulega hafi þeir vitað að grínið mundi hitta í mark hjá ákveðnum hóp. „Velgengn- in fór fram úr öllum væntingum svo þegar við höfðum lokið við 10 þætti á vefnum fóru ákveðnar þreifingar af stað um framhaldið,“ segir Benedikt og viðurkennir að þeir hafi verið eftirsóttir. Það hafi samt ekki komið annað til greina þegar Sigmar Guðmundsson, rit- stjóri Kastljóss, hafði samband í vor. „Það er ákveðinn draumur að rætast að komast loksins að hjá fjölmiðlahöllinni, eins og við kjós- um að kalla Efstaleitið.“ Það má segja að þeir Fannar og Benedikt verði áberandi næsta haust. Hraðfréttir verða með 3-4 mínútna innslög í Kastljósi á hverj- um föstudegi og fer fyrsti þáttur- inn í loftið í október. Ásamt því birtast þættirnir á vefnum Rúv.is en einnig verða Benedikt og Fann- ar með þátt á Rás 2. „Það má segja að við séum að sölsa undir okkur miðlana. Við höfum verið að grínast með það að nú verðum við að finna eitt- hvert blað til að skrifa í til að full- komna þetta,“ segir Benedikt sem nemur stjórnmála- og fjölmiðla- fræði við Háskóla Íslands en starf- ar sem flugþjónn í sumar. Fannar er hjá vefvarpi Mbl.is þar sem hann meðal annars er hægri hönd Gunnars Sigurðssonar í þáttunum Gunnar á Völlum. Ár er síðan félagarnir, sem einn- ig eru sambýlingar, fengu hug- myndina að Hraðfréttum. „Okkur fannst þetta sniðug hugmynd, eins konar óður til amerískrar frétta- mennsku, þar sem allt er stutt, frekar brjálað og æst þannig að klippt er á viðmælendur í miðju viðtali,“ segir Benedikt sem hlakk- ar til að hefjast handa og útbúa Hraðfréttir fyrir sjónvarp allra landsmanna. alfrun@frettabladid.is BENEDIKT VALSSON: ÓÐUR TIL AMERÍSKRAR FRÉTTAMENNSKU Hraðfréttirnar í Kastljósið Á LEIÐINNI Á SKJÁINN Þeir Fannar Sveinsson og Benedikt Valsson, umsjónarmenn Hraðfrétta, ganga til liðs við Ríkissjónvarpið og verða meðal annars sem vikuleg innslög í Kastljósi frá og með næsta hausti. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Hundrað fantasíur komnar inn GÓÐAR VIÐTÖKUR Íslenskar konur hafa verið duglegar að senda Hildi Sverris- dóttur fantasíurnar sínar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Ég ætla ekkert að reyna að reyta af mér brandarana heldur einbeiti mér bara að því að sinna þessu hlutverki með sóma,“ segir leikarinn Ólafur Darri Ólafsson en hann er kynnir á Grímunni sem haldin er hátíðleg í Hörpu í kvöld. Þetta er í fyrsta sinn sem Ólafur Darri bregður sér í hlutverk kynnis og spurður hvort hann sé stressað- ur svarar hann neitandi. „Nei, ég er ekkert stressaður enda finnst mér ólíklegt að ég fari í eitthvert hlut- verk á sviðinu. Þetta snýst um að halda utan um batteríið,“ segir Ólaf- ur Darri og þvertekur fyrir að taka sér erlenda kynna, á borð við Ricky Gervais til fyrirmyndar, sem þekkt- ir eru fyrir að vera með brandara fyrir neðan beltisstað. Gríman var fyrst haldin árið 2003 en hún er uppskeru- og verðlaunahá- tíð fyrir sviðslistir á Íslandi. „Þetta er kjörið tækifæri fyrir okkur að koma saman eftir erfiðan vetur, skemmta okkur og klappa þeim á bakið sem eiga það skilið,“ segir Ólafur Darri en í ár er þema Grím- unnar ungt fólk í sviðslistum. „Það verður áhersla á þau sem eru að stíga sín fyrstu skref og þau verða að kynna verðlaunin og sprella eitt- hvað inn á milli. Það er mikið af efnilegum ungum leikurum sem gaman er að kynnast betur.“ Hljómsveitin Orphic Oxtra leikur fyrir dansi eftir hátíðina og enn er hægt að nálgast miða en sérstakur þáttur um hátíðina verður sýndur á Stöð 2 á föstudaginn. - áp Ætlar ekki að reyna að vera fyndinn KYNNIR GRÍMUNA Ólafur Darri Ólafsson ætlar að sinna hlutverki kynnis vel á Grímunni í kvöld en þemað í ár er ungt fólk í sviðslistum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Ég stefni á að fara á Mæru- daga á Húsavík í lok júlí með manni og barni og helst að taka þátt í einu hlaupi í leiðinni.“ Fríða Rún Þórðardóttir, hlaupari og næringarráðgjafi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.