Fréttablaðið - 19.06.2012, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 19.06.2012, Blaðsíða 10
19. júní 2012 ÞRIÐJUDAGUR10 MÓTMÆLT Á SPÁNI Mótmælandi heldur á björgunarhring fyrir framan höfuðstöðvar Bankia-bankans í Madríd á Spáni um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/AP GRIKKLAND, AP Antonis Samaras, leiðtogi Nýja lýðræðisflokksins í Grikklandi, fékk formlegt umboð frá forsetanum Karolos Papouli- as til að mynda ríkisstjórn í gær- morgun. Til þess hefur hann þrjá daga, og forsetinn sagði mikil- vægt að ný stjórn yrði mynduð sem allra fyrst. „Landið má ekki við því að vera stjórnlaust í svo mikið sem klukkustund.“ Samaras sagðist í gær ætla að leita leiða til þess að breyta skil- málum í björgunaráætl- un Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins. Í gærmorgun varð hækkun á mörgum m ö rk u ð u m ve g n a úrslita kosninganna, en það entist ekki lengi, sem þykir gefa til kynna að sérfræðingar hafi ekki trú á því að með úrslitunum sé vandi evrusvæðisins nú að minnka. Samaras fundaði með leiðtoga Syriza, róttæka vinstribanda- lagsins, í gær. Leiðtoginn, Alexis Tsipras, sagði flokk sinn ætla að vera í stjórnarandstöðu og kljást við stjórnvöld. „Hlutverk sterkr- ar og ábyrgrar stjórnarandstöðu er að hafa áhrif og grípa inn í og þetta er það sem ég fullvissaði herra Samaras um að við munum gera.“ Þrátt fyrir viðbrögð Tsipras sagði Samaras að nauðsynlegt væri að mynda ríkisstjórn í þjóð- arsátt með eins mörgum flokkum og hægt er. Hann fundaði með leiðtoga sósíalistaflokksins Pakos, Evangelos Venizelos, seinni part- inn í gær. Flokkarnir tveir gætu myndað meirihluta en Samaras vill fleiri flokka með til þess að hafa stærri meirihluta í þinginu og meiri stöðugleika. Venizelos sagði í gær að nauðsynlegt væri að ríkisstjórn hefði verið mynduð fyrir lok dagsins í dag. Þegar öll atkvæði höfðu verið talin hafði Nýi lýðræðisflokkur- inn fengið 29,7 prósent atkvæða og 129 þing- sæti. Syriza hlaut 26,9 prósent og 71 sæti og Pasok 12,3 prósent og 33 sæti. Flokkurinn sem hlýtur flest atkvæði í kosningum í Grikklandi fær alltaf 50 sæti til við- bótar; þannig fékk Nýi lýðræðisflokkurinn í raun 79 þingsæti í kosn- ingunum. Stjórnmála- skýrendur hafa bent á að einungis fjörutíu prósent kjósenda hafi valið flokka sem gefa sig sérstaklega út fyrir að styðja björgunaráætlunina frá ESB og AGS. Þrátt fyrir þetta var niðurstöð- unum fagnað í Evrópu. Fjármála- ráðherrar evruríkjanna sautján gáfu út yfirlýsingu þar sem fram kom að besta leið Grikkja út úr kreppunni væri að halda áfram endurbótum. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hringdi í Samaras þegar úrslitin voru ljós og óskaði honum til hamingju og minnti á mikilvægi þess að ríkið héldi áfram að vinna að björgun- aráætluninni. thorunn@frettabladid.is Landið má ekki við því að vera stjórn- laust í svo mikið sem klukkustund. KAROLOS PAPOULIAS FORSETI GRIKKLANDS VIÐSKIPTI Breska efnahagsbrota- deildin, Serious Fraud Office (SFO), hætti í gær rannsókn sinni á fjárfestinum Vincent Tchengu- iz. Áður hafði dómari sagt SFO hafa sýnt algera vangetu við með- höndlun sína á rannsókn sem deildin hefur verið með í gangi á Vincent og bróður hans Robert. Vincent Tchenguiz var hand- tekinn í mars 2011, húsleitir framkvæmdar á skrifstofum fjárfestingafélags hans og lagt hald á mikið magn af lausum og rafrænum gögnum. Rannsókn SFO á Tchenguiz-bræðrunum sneri meðal annars að 35 millj- arða króna láni sem þeir fengu hjá Kaupþingi í mars 2008. SFO þufti síðar að viðurkenna að margþættar rangfærslur hefðu verið í þeim gögnum sem lögð voru fram þegar heimild fyrir aðgerðunum var tryggð fyrir dómstólum. Rannsókn á Robert Tchenguiz verður haldið áfram. Samband hans við Kaupþing var nánara en bróður hans, en Robert sat meðal annars í stjórn Existu, sem nú heitir Klakki, stærsta eiganda bankans fyrir fall hans. Í fréttatilkynningu sem Vin- cent sendi frá sér í gær var haft eftir honum að „skugga hefur verið lyft og ég get haldið áfram að byggju upp líf mitt og við- skiptahagsmuni“. Enn eigi hins vegar eftir að gera upp tjónið sem hann hafi orðið fyrir. Bresk- ir fjölmiðlar voru sammála um það í gær að hann myndi líklega höfða skaðabótamál gegn SFO. - þsj Breska efnahagsbrotadeildin viðurkennir mistök eftir að sýnt var fram á rangfærslur í rannsóknargögnum: SFO hætt að rannsaka Vincent Tchenguiz VINCENT TCHENGUIZ Rannsókn SFO sneri meðal annars að 35 milljarða króna láni sem Tchenguiz-bræður fengu að láni frá Kaupþingi. MYND/BLOOMBERG E N N E M M / S ÍA / N M 5 2 9 2 6 Ergo vill aðstoða þig við að eignast farartæki Með því að lækka lántökugjöld um 50% vill Ergo auðvelda þér að taka lán fyrir farartækinu sem þig dreymir um. Á ergo.is finnur þú nánari upplýsingar um bílalán, græn lán og ferðavagnalán. Reiknaðu með Ergo. 50% lægri lántökugjöld* Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is *Tilboðið gildir til 15. júlí Vilja mynda stjórn í dag Mynda þarf ríkisstjórn með eins mörgum flokkum gríska þingsins og hægt er, sagði leiðtogi Nýja lýð- ræðisflokksins í gær. Hann fékk stjórnarmyndunar- umboð og vill breyta skilmálum björgunaráætlunar. FUNDAÐ Í ÞINGINU Antonis Samaras og Alexis Tsipras hittust á fundi í gær. Tsipras segir flokk sinn verða í stjórnarandstöðu, en ekki verði komið í veg fyrir stjórnarmyndun. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.