Fréttablaðið - 19.06.2012, Síða 12
19. júní 2012 ÞRIÐJUDAGUR12
Umsjón: nánar á visir.is
Hlutafé í Klakka ehf., sem áður hét
Exista, var aukið um 4,8 milljarða
króna að nafnvirði á stjórnarfundi
þann 29. maí síðastliðinn. Þetta
kemur fram í tilkynningu til Fyr-
irtækjaskráar. Allt hið nýja hlutafé
rann til þrotabús Kaupþings en það
nemur um tuttugu prósenta eign-
arhlut í félaginu. Klakki/Exista er
meðal annars eigandi Skipta (móð-
urfélags Símans), VÍS og Lýsingar.
Hlutafjáraukningin er hluti
af risavöxnu samkomulagi milli
Klakka/Existu og þrotabús Kaup-
þings sem snerist um að gera
upp fjölmörg ágreiningsmál
milli aðilanna. Klakki/Exista var
stærsti eigandi Kaupþings fyrir
bankahrun og var auk þess einn
stærsti viðskiptavinur bankans.
Samkvæmt samkomulaginu gaf
Klakki/Exista eftir 254 milljarða
króna kröfu á Kaupþing og þrota-
búið gaf eftir sambærilega upp-
hæð á félagið. Um fimmtungshlut-
ur Klakka/Existu féll þrotabúinu
í skaut vegna uppgjörsins. Eftir
hlutafjáraukninguna heldur
Kaupþing, eða félög í meirihluta-
eigu búsins, um 56 prósenta hlut í
Klakka/Existu. Þorri þeirrar eign-
ar er hjá Arion banka.
Slitastjórn Kaupþings til-
kynnti nýverið um þau áform sín
að leggja fram nauðasamning í
haust. Samkvæmt honum verður
stofnað íslenskt eignarhaldsfélag
utan um eignir þess sem verður
í eigu almennra kröfuhafa, sem
eru að langstærstu leyti erlendir.
Þeir munu því eiga og stjórna nýja
félaginu. - þsj
Þrotabú Kaupþings á stóran hlut í Klakka/Existu:
Kaupþing búið að fá
hlut sinn afhentan
SKIPTI Kaupþing, sem verður eignarhaldsfélag að mestu í eigu erlendra kröfuhafa verði
nauðasamningur samþykktur, er óbeinn eigandi að 56% hlut í Klakka. Skipti, sem á
Símann, stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins, er meðal dótturfélaga þess. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
MILLJARÐAR KRÓNA var heildarvelta á húsnæðismarkaði á höfuðborgarsvæð-
inu vikuna 8. til 14. júní. Meðalvelta á viku frá áramótum hefur verið 2,87 milljarðar.3,72
Tölvuleikjafyrirtækið CCP hagnað-
ist um 8,8 milljónir Bandaríkjadala
á síðasta ári, jafngildi 1,1 milljarðs
króna á núverandi gengi. Tekjur
fyrirtækisins frá netleiknum EVE
Online námu ríflega 7,9 milljörðum
á árinu og hafa aldrei verið meiri.
Þá varði fyrirtækið rúmum 1,6
milljörðum í rannsóknir og þróun
á árinu.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í ársreikningi fyrirtækisins
fyrir árið 2011. Ársreikningurinn
var kynntur á aðalfundi fyrirtæk-
isins í síðustu viku.
Eins og áður sagði var hagnaður
CCP 8,8 milljónir Bandaríkjadala á
árinu en til samanburðar hagnaðist
fyrirtækið um 5,5 milljónir Banda-
ríkjadala árið 2010 og 6 milljón-
ir árið 2009. Bætta afkomu má að
stærstum hluta rekja til fjölgunar
áskrifenda að tölvuleiknum EVE
Online sem fyrirtækið hefur haldið
úti síðastliðin níu ár.
Rekstrartekjur fyrirtækisins á
árinu námu 65,3 milljónum Banda-
ríkjadala og komu 96,7% þeirra frá
sölu áskrifta að EVE Online. Áskrif-
endur að leiknum voru ríflega 350
þúsund í lok ársins og fjölgaði þeim
um í kringum 10 þúsund á árinu.
Tekjur frá leiknum hafa því aldrei
verið jafn miklar og á síðasta ári.
Líklegt má telja að tekjurnar verði
enn hærri á þessu ári þar sem fjöldi
áskrifenda rauf nýverið 400 þúsund
spilara múrinn.
Methagnaður hjá CCP
CCP hagnaðist um 1,1 milljarð í fyrra og hefur hagnaður aldrei verið meiri. Um
97% tekna koma frá sölu áskrifta að EVE Online. Tveir nýir leikir í burðarliðnum.
DUST 514 CCP mun á næstunni gefa út nýjan tölvuleik sem nefnist DUST 514.
Hefur fyrirtækið unnið að þróun leiksins í fjögur ár.
Á aðalfundi CCP í síðustu viku var samþykkt tillaga stjórnar fyrirtækisins þess
efnis að fyrirtækið legðist í skuldabréfaútgáfu upp á allt að 2,5 milljarða
króna. Kaupendur skuldabréfanna munu hafa valrétt um að breyta láninu
í hlutafé og þannig verður íslenskum, sem og erlendum, fjárfestum gefinn
kostur á að eignast hluti í fyrirtækinu. Í viðtali við Hilmar Veigar Pétursson,
framkvæmdastjóra CCP, sem birtist í Fréttablaðinu á laugardag kom fram að
fyrirtækið legðist í útgáfuna til að gera því kleift að standa af útgáfu DUST
514 af meiri krafti en ella. Leikurinn kemur út síðar á þessu ári.
Íslenskir fjárfestar geta eignast hlut í CCP
Á móti var rekstrarkostnaður
fyrirtækisins 51,8 milljónir Banda-
ríkjadala og jókst um 11,2% á milli
ára. Fjórðungur rekstrarkostnaðar
er vegna rannsókna og þróunar en
CCP vinnur um þessar mundir að
tveimur nýjum tölvuleikjum; DUST
514, sem kemur út á þessu ári, og
World of Darkness sem er skemmra
á veg kominn. magnusl@frettabladid.is