Fréttablaðið - 19.06.2012, Side 14

Fréttablaðið - 19.06.2012, Side 14
14 19. júní 2012 ÞRIÐJUDAGUR F urðulegt hefur verið að fylgjast með umræðum innan íþróttahreyfingarinnar undanfarna daga um flengingar sem einhvers konar hópefli og „busavígslu“ í íþróttaliðum. Málið komst í hámæli eftir að nýliði í landsliðinu í hand- bolta sagðist gera ráð fyrir að verða flengdur eftir fyrsta landsleikinn sinn og að það væri guðsþakkarvert að ein af hand- boltahetjunum okkar væri hætt í liðinu, af því að viðkomandi kempa væri svo harðhent. Í framhaldinu sagði Ómar Ragnarsson fréttamaður frá því á bloggsíðunni sinni að hann vissi dæmi svipaðra flenginga í yngri flokkum íþróttafélaga, þar sem menn kæmu heim, jafnvel flengdir til blóðs, og gætu varla setið eða legið eftir meðferðina. Ómar krafðist rannsóknar á málinu innan íþróttahreyfingarinnar. Fyrstu viðbrögð forsvarsmanna ÍSÍ voru að draga í efa að svona væri í pottinn búið. Fljótlega voru hins vegar dregin fram dæmi í fjölmiðlum, þar á meðal hér í Fréttablaðinu, þar sem nafngreint íþróttafólk segir frá slíkum flengingum, meðal annars á fjórtán og fimmtán ára unglingum sem voru að byrja að spila með meistara- flokki. Sumum finnst flengingarnar fullkomlega eðlilegar. „Þetta er bara hefð og menn hafa ekki slasast að því ég best veit,“ sagði Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri Handknattleikssambandsins, hér í blaðinu. Öðrum finnst málefnið fyndið og skemmtilegt. Þannig sagði leikmaður með meistaraflokki kvenna hjá ÍBV í samtali við Frétta- blaðið að það væri „gaman að þessu“ og ætti kannski að endurvekja flengingahefð sem hefði lagzt af þar á bæ. „„Kjúllarnir“ hafa aldrei fundið fyrir því að vera nýliðar. Þær eru bara hluti af eldri hópnum og kannski ágætt að þær finni fyrir því að þær séu yngri og að spila fyrstu leikina í meistaraflokki,“ sagði leikmaðurinn. Með öðrum orðum finnst henni sjálfsagt og eðlilegt að niðurlægja fólk sem hefur náð þeim árangri í íþrótt sinni að fá að spila með meistara- flokki. Þorlákur Helgason, framkvæmdastjóri Olweusar-áætlunarinnar gegn einelti, setti þennan bavíanahátt í rétt ljós í samtali við Frétta- blaðið á föstudag. Hann sagðist vita til þess að börn hefðu hætt í íþróttum vegna ótta við flengingarnar. „Þetta er alveg eins og hvert annað ofbeldi þar sem krakkar eru að reyna að komast inn í hópana. Þetta á að afnema með öllu og það á ekki að fara neina millileið,“ sagði Þorlákur. Hann bendir sömuleiðis á það hversu ömurlegar fyrirmyndir „strákarnir okkar“ eru þegar þeir taka þátt í þessu niðurlægjandi og ofbeldisfulla athæfi og hafa það svo í flimtingum: „Þarna eru fyrirmyndirnar og krakkarnir apa þetta eftir. Það á ekki að vera gantast eitthvað með svona.“ ÍSÍ hefur nú tekið á sig rögg, ætlar að kanna hversu útbreiddar flengingarnar eru og taka svo fyrir þær. Það er rétt afstaða. Það á að sjálfsögðu að taka við nýliðum í íþróttaliðum af virðingu og væntumþykju, en ekki með heimskulegu ofbeldi og niðurlægingu. FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 greinar@frettabladid.is Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN FRÁ DEGI TIL DAGS HALLDÓR Kvenréttindadagurinn er greyptur í sögu jafnréttis kynjanna og mann- réttinda hér á landi. Sjaldan eða aldrei sem í dag getum við fagnað jafn stórum áföngum á jafn stuttum tíma. Í dag þökk- um við líka fyrir baráttu undangenginna kynslóða og ríka getu íslenskra kvenna til samstöðu og samvinnu um að stefna enn hærra. Við fögnum því að hafa þrjú ár í röð skipað efsta sætið á lista Alþjóða- efnahagsráðsins yfir stöðu jafnréttismála á heimsvísu og ætlum að halda þessu for- ystusæti með því að sækja stöðugt fram. Í fyrsta skipti í Íslandssögunni eru konur í meirihluta æðstu embætta stjórn- sýslunnar. Af níu ráðherrum eru fimm konur, af tíu ráðuneytisstjórum eru fimm konur. Í fyrsta skipti hafa konur náð hinu 40% nú lögbundna lágmarki í nefndum og ráðum Stjórnarráðsins. Kynjakvót- inn sem núverandi stjórnarmeirihluti innleiddi hefur þegar leitt til fjölgunar kvenna í stjórnum lífeyrissjóða og fyrir- tækja en hann kemst að fullu til fram- kvæmda 2013. Hert barátta gegn kyn- bundnu ofbeldi dylst engum, svo sem lögleiðing austurrísku leiðarinnar, bann við kaupum á vændi, aðgerðaáætlun gegn mansali og ný aðgerðaáætlun gegn kyn- bundnu ofbeldi sem er í smíðum. Vert er að minna á nýja greiningu Þjóðmálastofnunar á þróun launamun- ar kynjanna fyrir hrun annars vegar og í tíð þessarar ríkisstjórnar hins vegar. Greiningin byggir á gögnum Hagstofunn- ar og sýnir minnkandi mun, úr 30-35% í 13-20%, eftir því við hvaða launahugtak er miðað. En þessi árangur nægir mér ekki, ekki núverandi ríkisstjórn og ekki konum þessa lands. Launajafnrétti kynjanna er það svið jafnréttisbaráttunnar þar sem stöðugt þarf að sækja fram, móta einarðan pólitískan vilja og finna ný og beittari verkfæri til að hrinda honum í framkvæmd. Í dag verður kynnt frum- varp að staðli um launajafnrétti kynja. Með honum hafa aðilar vinnumarkaðar- ins í samvinnu við stjórnvöld og Staðlaráð unnið algert frumkvöðla- og brautryðj- endastarf. Ég bind miklar vonir við að atvinnulífið allt taki honum fagnandi og nýti þá möguleika sem hann skapar til að ná enn frekari árangri í baráttunni gegn launamisrétti kynjanna. Til hamingju með daginn! Nýir sigrar jafnréttisbaráttunnar Jafnrétti Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra Óvænt úrslit? Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, vísaði í gær til Ólafs Ragnars Grímssonar sem þess forsetaframbjóðanda sem líkleg- astur væri til sigurs í sumar. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hafði þetta að segja um málið: „Við formann Sjálfstæðisflokksins vil ég segja að bæði dæmið af honum sjálfum og dæmið af Grikk- landi í gær sýnir að menn eiga aldrei að gefa sér niðurstöðu kosninga fyrir fram.“ Er Össur með þessu að segja að formannskosningarnar í Sjálfstæðisflokknum, sem Bjarni vann með tæpum 60% atkvæða, hafi verið jafn tvísýnar og í Grikklandi um helgina? Dómur um það sem koma skal Fjölmargir þingmenn kváðu sér hljóðs í upphafi þingfundar í gær um fundarstjórn forseta, Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur. Henni virtist nóg um og kynnti einn þingmann í pontu á þann veg að hann ætlaði að taka til máls „um fundarstjórn forseta sem varla er hafin“. Allt vont kemur frá ESB Rétttrúnaður er yfir- leitt hvimleiður því honum fylgir oft og tíðum sá leiði fylgifiskur að allt er skýrt út frá fyrir- framgefinni forsendu. Þannig virðist Ragnar Arnalds búinn að gefa sér að allt illt í heimi hér eigi uppruna sinn hjá Evrópusambandinu. Hann rekur vefsíðuna Vinstrivaktin gegn ESB og skrifar þar um að ESB hafi tekist að láta leiðrétta kosningaúr- slit í Grikklandi. Þar skipta stað- reyndir Ragnar litlu, til dæmis það að stjórnarkreppa var í landinu og því þurfti að kjósa á ný. kolbeinn@frettabladid.is damage remedy™ daily hair repair. þú finnur fleiri sölustaði á aveda.is Fæst hjá Aveda í Kringlunni. AÐ LAGA SKEMMT HÁR NÁTTÚRULEG LEIÐ TIL a Landsliðsmenn í handbolta flengja félagana: Vondu fyrir- myndirnar okkar

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.