Fréttablaðið - 19.06.2012, Síða 18

Fréttablaðið - 19.06.2012, Síða 18
18 19. júní 2012 ÞRIÐJUDAGUR Í dag er baráttudagur kvenna. 19. júní árið 1915 hlutu íslensk- ar konur fyrst kosningarétt, með aldursákvæði, en fimm árum síðar var lögfest fullt og skilyrð- islaust jafnræði með konum og körlum um kosningarétt og kjör- gengi. Ingibjörg H. Bjarnason var fyrsta konan kosin á þing árið 1922 af sérstökum kvennalista. Konur voru framan af ekki mjög áberandi í stjórnmálum. Frá kjöri Ingibjarg- ar og fram til 1971 áttu að jafnaði aðeins ein eða tvær konur sæti á þingi og á tveimur kjörtímabilum átti engin kona sæti á þingi. Framboð Vigdísar og sérstök kvennaframboð í upphafi 9. ára- tugarins breyttu ásýnd íslenskra stjórnmála og ekki var aftur snúið, konur sýndu að þær vildu, þorðu og gátu. Konur hafa nú setið á þingi í níutíu ár en það var þó ekki fyrr en í síðustu alþingiskosningum 2009 sem konur urðu í fyrsta skipti yfir 40% þingmanna og sá sögulegi viðburður átti sér stað að kona, Jóhanna Sigurðardóttir, varð for- sætisráðherra. Hún og ríkisstjórn hennar tóku við eins konar þrota- búi eftir 18 ára valdatíð Sjálfstæð- isflokksins. Þrátt fyrir einhverja alvarlegustu stöðu þjóðarbúsins í sögu lýðveldisins hefur á síðustu þremur árum tekist að stýra land- inu í átt að aukinni hagsæld, jöfn- uði og kynjajafnrétti. Það má því segja að með kjöri fyrstu hreinu vinstri stjórnar lýðveldisins undir forystu jafnaðarmanna að hlutfall kvenna og karla hafi orðið jafnara en nokkru sinni áður við stjórn landsins. Af níu ráðherrum eru fimm konur og einnig í fyrsta sinn er kona fjármálaráðherra. Í stjórnarsáttmálanum frá 2009, sem er einn sá ítarlegasti í sögu íslenska lýðveldisins, kemur skýrt fram sú krafa af hálfu meirihluta kjósenda að leiða til öndvegis ný gildi jöfnuðar, félagslegs réttlætis, samhjálpar, sjálfbærrar þróunar, kvenfrelsis, siðbótar og lýðræðis. Í þessum sáttmála var einnig kveð- ið á um að kynjuð hagstjórn yrði höfð að leiðarljósi við fjárlagagerð og efnahagsstjórn, sem þýðir að fjármálum ríkisins verði hagað þannig að niðurskurður komi ekki verr niður á konum en körlum og að verkefni verði kynjagreind svo ekki fari t.d. eingöngu fjármagn í að skapa hefðbundin karlastörf eða að annað kynið fái fleiri tækifæri á kostnað hins. Meirihluti æðstu ráðamanna stjórnsýslunnar er nú í fyrsta sinn skipaður konum, af tíu ráðuneytisstjórum eru fimm konur og í fyrsta sinn í sögunni ná konur í ráðum og nefndum á vegum stjórnarráðsins 40% markinu. Þá er búið að lögbinda 40% hlutfall hvors kyns í stjórnum lífeyrissjóða og fyrirtækja, sem þegar er farið að hafa áhrif á skipan þessara mikil vægu stofnana og kemur að fullu til framkvæmda á næsta ári. Mikilvægt er að muna að það var núverandi stjórnarmeirihluti sem innleiddi austurísku leiðina, innleiddi aðgerðaáætlun gegn mansali, bannaði kaup á vændi og hefur hert baráttuna gegn kyn- bundnu ofbeldi svo um munar. Því ber að fagna að í dag er starf- andi sérstök ráðherranefnd um jafnréttismál sem tryggir áherslu ríkis stjórnarinnar á jafnréttis- mál. Ýmislegt fleira hefur áunnist á þeim stutta tíma sem ríkisstjórn undir forystu jafnaðarmanna hefur setið við völd sem ekki verð- ur upptalið hér. Við eigum hins vegar langt í land með að ná þeim jöfnuði sem við viljum hafa. Bregðast þarf strax við kynbundnum launamun innan hins opinbera. Við bindum vonir við jafnlaunastaðalinn sem kynntur verður í dag sem er verk- færi til að vinna gegn kynbundn- um launamun. Þá mun aðgerða- áætlun stjórnvalda til að taka á kynbundnum launamun hjá hinu opinbera birtast á næstunni. Það er á ábyrgð okkar kjósenda að tryggja að þetta starf haldi áfram. Það er á okkar ábyrgð að hér sé samfélag sem byggi á jöfn- uði, réttlæti og jafnrétti en ekki misskiptingu og mismunun. Að auður landsins dreifist jafnt og að við fáum öll sömu tækifæri í líf- inu sama hvaðan við komum, hvers kyns við erum eða hver við erum. Við þurfum að hafa þetta í huga í hvert sinn sem við göngum að kjör- borðinu og tryggja að bæði kynin eigi sér talsmenn og að ungt fólk alist upp við það að hér sé sjálf- sagður hlutur að bæði kynin eigi sér fyrirmyndir á öllum sviðum þjóðlífsins. Konur og karlar þurfa að kjósa konur til jafns við karla. Við konur höfum náð langt í okkar baráttu fyrir kvenfrelsi og kvenréttindum en víða er enn verk að vinna. Sífellt þarf að vera á verði og þess vegna þarf að kjósa rétta fólkið í valdastöður. Það skiptir máli að konur og karl- ar hafi jafnmikið vægi. Það skiptir máli hverjir stjórna. Konur og kosningar Að ganga eða hjóla hringveginn þykir nú á dögum ekkert til- tökumál og oftast gert til að safna fé til góðgerðamála og er það vel. Fyrir meira en ári fékk Kiwanis- félagi í Kiwanisklúbbnum Eldey í Kópavogi þá hugdettu, sagði í raun að hann hefði dreymt þetta verk- efni, sem er að leika golf til fjáröfl- unar með fram þjóðvegi 1. Nú rúmu ári síðar er þetta verk- efni orðið að veruleika og hefur vakið athygli hér innanlands og ekki síður erlendis. Ísgolf eins og verkefnið heitir er samvinnuverk- efni Eldeyjar, Kiwanishreyfingar- innar og Unicef og verður safnað áheitum á slegin högg sem verða 9.500. Þetta er um 1.350 km leið sem er sambærilegt eins og að leika 300 golfhringi. Ýmsar skemmtilegar þrautir þarf að leysa á leiðinni, en af trygginga- ástæðum verður ekki leyfilegt að slá í gegnum þéttbýliskjarna. Glíma þarf við lúpínubreiður, hraun, stór- fljót, Skeiðarársand sem er stærsta sandgryfja sem hefur verið leikin og ýmislegt annað. Í för verða átta bifreiðar og 10-15 Kiwanisfélagar verða að jafnaði í hópnum sem lagði af stað aðfaranótt mánudagsins 18. júní. Farið var af stað suðurleiðina og gert er ráð fyrir að hringnum ljúki 2. júlí nk. Það var Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sem sló fyrsta höggið og gert er ráð fyrir að Stefán Eiríksson lögreglu- stjóri slái síðasta höggið við Olís á Kjalarnesi. Allt fé sem safnast mun renna til góðgerðamála og skiptast á milli verkefnisins Stöðvum stíf- krampa sem er heimsverkefni Kiw- anishreyfingarinnar í samstarfi við Unicef. Stífkrampi er óþekktur sjúkdómur á Vesturlöndum en er landlægur í 34 fátækustu þjóðlönd- um heims. Á níu mínútna fresti deyr móðir eða barn úr þessum sjúkdómi en Kiwanis og Unicef stefna að því að útrýma þessum sjúkdómi á næstu fimm árum. Hinn helmingur söfn- unarfjárins mun renna til sambýla fatlaðra víðs vegar um landið þar sem skráður er Kiwanisklúbbur. Fjölmargir aðilar hafa stutt þetta verkefni og er of langt mál að telja þá alla upp en vert er að minnast á sýslumannsembættin en þau gáfu leyfi til að slá golfbolta meðfram þjóðvegi 1. Landsbanki Íslands er aðalstyrktar- og fjárvörsluaðili verkefnisins og söfnunarreikning- ur Ísgolf 2012 er 0130-26-000717 kt. 571178-0449. Hægt er að fylgjast með fram- vindu golfsins á www.isgolf.is. Kiwanisfélagar á landinu eru um 1.000 í klúbbum víðs vegar um landið og ég hvet þá til að taka þátt í verkefninu. Leika golf meðfram þjóðvegi 1 E N N E M M / S ÍA / N M 5 3 0 5 3 BÍLALAND EIN STÆRSTA BÍLASALA LANDSINS BÍLALAND EIN STÆRSTA BÍLASALA LANDSINS BÍLALAND EIN STÆRSTA BÍLASALA LANDSINS BÍLALAND EIN STÆRSTA BÍLASALA LANDSINS BÍLALAND EIN STÆRSTA BÍLASALA LANDSINS BÍLALAND EIN STÆRSTA BÍLASALA LANDSINS Nissan Primera Acenta Árgerð 2003, ekinn 125 þús. Bensín, sjálfskiptur. Verð 1.250 þús. kr. Rnr. 150998 TILBOÐSVERÐ 890 þús. kr. AUDI A4 sedan Árgerð 2002, ekinn 140 þús. Bensín, sjálfskiptur. Verð 1.190 þús. kr. Rnr. 200727 TILBOÐSVERÐ 890 þús. kr. Renault Clio Comfort Árgerð 2008, ekinn 59 þús. Bensín, sjálfskiptur. Verð 1.890 þús. kr. Rnr. 100245 TILBOÐSVERÐ 1.350 þús. kr. HYUNDAI Santa fe II crdi Árgerð 2008, ekinn 62 þús. Dísil, sjálfskiptur. Rnr. 101811 VERÐ 4.290 þús. kr. VERÐ 1.490 þús. kr. Land Rover Discovery II Árgerð 2002, ekinn 192 þús. Dísil, sjálfskiptur. Rnr. 151285 SSANGYONG Kyron M-200 Árgerð 2010, ekinn 13 þús. Dísil, beinskiptur. Rnr. 200617 VERÐ 3.790 þús. kr. KLETTHÁLSI 11 og BREIÐHÖFÐA (Bílakjarninn) VIÐ ERUM Á TVEIMUR STÖÐUM: Breiðhöfða og Kletthálsi 11 - 525 8000 - www.bilaland.is Afgreiðslutími: Mánudaga kl. 10.00 til 18.00 – Þriðjudaga til föstudaga kl. 9.00 til 18.00 Hér sjáum við aðeins brot af þeim bílum sem við erum með á sölu. Endilega kynntu þér fjölbreytt úrval á www.bilaland.is Jafnrétti Stjórn Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar Hrafnhildur Ragnarsdóttir Heiða Björg Hilmisdóttir Margrét Lind Ólafsdóttir Rósa Guðrún Erlingsdóttir Góðgerðarmál Ragnar Örn Pétursson umdæmisstjóri Kiwanis Ísgolf eins og verkefnið heitir er samvinnuverkefni Eldeyjar, Kiwanishreyf- ingarinanr og Unicef...

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.