Fréttablaðið - 19.06.2012, Side 42
19. júní 2012 ÞRIÐJUDAGUR30
sport@frettabladid.is
HELGA H. MAGNÚSDÓTTIR sem setið hefur í mótanefnd Evrópska handknattleikssambandsins undan-
farin tólf ár er í framboði til framkvæmdastjórnar sambandsins. Helga gæti skráð nafn sitt á spjöld sögunnar en
kona hefur aldrei setið í stjórninni. Kosið verður á ársþingi sambandsins í Mónakó á laugardag.
Óvæntir farseðlar á stórmót í handbolta
Í bæði skiptin sem íslenska karlalandsliðið hefur farið bakdyramegin inn
á stórmót í handbolta hefur góður árangur náðst. Tveimur mánuðum fyrir
Ólympíuleikana 1984 í Los Angeles bauðst íslenska landsliðinu sæti á leik-
unum þar sem Sovétríkin og fleiri Austur-Evrópuþjóðir hættu við þátttöku.
Ísland hafði náð sjöunda sæti í B-keppninni ári áður sem dugði til sætis í
Los Angeles. Íslenska liðið hafnaði í þriðja sæti síns riðils og lék um fimmta
sætið gegn Svíum sem höfðu betur.
Aftur fengu „strákarnir okkar” sæti á Ólympíuleikunum í Barcelona árið
1992. Vegna stíðsástandsins í Júgóslavíu ákváðu Sameinuðu þjóðirnar að
Júgóslavía fengi ekki að senda lið til þátttöku í leikunum þótt einstaklingum
væri enn þá heimil þátttaka. Íslenska liðið hafði æft vel um sumarið en boð
á leikana barst þó ekki fyrr en örfáum dögum fyrir setningu þeirra. Íslenska
liðið, sem lék án sterkra lykilmanna á borð við Kristján Arason og Sigurð
Sveinsson sem glímdu við meiðsli, komst í undanúrslit. Niðurstaðan varð
fjórða sætið eftir tap gegn Frökkum í leiknum um þriðja sætið.
EM í knattspyrnu:
Króatía-Spánn 0-1
0-1 Jesús Navas (88.)
Ítalía-Írland 2-0
1-0 Antonio Cassano (35.), 2-0 Mario Balotelli
(90.)
STAÐAN:
Spánn 3 2 1 0 6-1 7
Ítalía 3 1 2 0 4-2 5
Króatía 3 1 1 1 4-3 4
Írland 3 0 0 3 1-9 0
LEIKIR DAGSINS:
England - Úkraína kl. 18.45
Svíþjóð - Frakkland kl. 18.45
ÚRSLIT
HANDOLTI „Þetta eru frábærar
fréttir fyrir íslenskan kvenna-
handbolta. Algjörlega stórkostleg-
ar,“ segir Hrafnhildur Skúladóttir,
fyrirliði íslenska kvennalandsliðs-
ins, sem var skiljanlega í skýjun-
um eftir að hafa heyrt tíðindin í
gær.
Íslenska liðið fékk sæti
Hollendinga sem hættu við
að halda keppnina á dögun-
um. Serbar, sem þegar höfðu
tryggt sér þátttökurétt á
mótinu, verða gestgjafar og
því fékk Ísland sætið með
bestan árangur þeirra liða í
undankeppninni sem höfðu
ekki komist áfram.
„Um leið og við lentum í
Keflavík eftir Úkraínuleik-
inn sagði Einar (Þorvarðarson,
framkvæmdastjóri HSÍ) mér að
Hollendingar væru hættir við að
halda keppnina. Þá rauk ég í tölv-
una og sá að við vorum með bestan
árangur í þriðja sætinu. Þetta er
stórkostlegt,“ segir Hrafnhildur.
Miðað var við árangur þjóðanna í
þriðja sæti gegn liðunum tveimur í
sætunum fyrir ofan. Ísland og Pól-
land unnu bæði einn leik af fjórum
en markatala Íslands úr leikjun-
um var betri og munaði þar ellefu
mörkum.
Var orðin fáránlega bjartsýn
„Einhver sagði við mig að það
yrði miklu erfiðara fyrir mig að
kyngja því að fá ekki þetta pláss
en að tapa upphaflega á móti
Úkraínu. Ég var orðin það fárán-
lega bjartsýn,“ segir Hrafnhildur
en þetta er þriðja stórmótið í röð
sem kvennalandsliðið mætir á þó
svo liðið fari bakdyramegin inn í
þetta skiptið.
„Þetta er náttúrulega fárán-
legt en þetta hefur gerst tvisvar
hjá karlaliðinu,“ segir Hrafnhild-
ur og rifjar upp Ólympíuleikana
1984 og 1992 þegar karlalandsliðið
fékk óvænt sæti á leikunum. Liðið
náði góðum árangri í bæði skiptin
og fróðlegt verður að fylgjast með
gengi stelpnanna í Serbíu.
Serbía kom strax upp í kollinn
Fjölmargar þjóðir lýstu
yfir áhuga á að halda
mótið þegar Hollending-
ar hættu við. Helga H.
Magnúsdóttir, sem situr
í mótanefnd Evrópska
handknattleikssambands-
ins, segir Serbíu góðan
kost.
„Serbía var fyrsta landið
sem kom upp í hugann þegar
þessi ósköp gengu yfir. Serb-
ar voru nýbúnir að halda karla-
mótið sem þeir gerðu mjög vel.
Það er allt klárt þar sem skiptir
máli með svo stuttum fyrirvara.
Það verða notaðir sömu keppnis-
staðir og þeir segja að mannskap-
urinn sé tilbúinn og allt klárt,“
segir Helga.
Serbar verða einnig gestgjafar
á heimsmeistaramótinu í hand-
bolta kvenna í desember 2013 og
segir Helga að handknattleiksfor-
ysta landsins njóti greinilega mik-
ils stuðnings yfirvalda þar í landi.
Helga segir það strax hafa litið
þannig út að Ísland myndi hljóta
lausa sætið ef nýr gestgjafi yrði
þjóð sem hefði þegar tryggt sér
þátttökurétt á mótinu.
„Þetta var eiginlega borðleggj-
andi en maður þorir aldrei að full-
yrða neitt fyrr en endanleg niður-
staða liggur fyrir,“ segir Helga
sem segir að þó hafi komið upp í
umræðunni að Holland og Ísland
myndu spila um lausa sætið.
„Sú hugmynd var hins vegar
drepin í fæðingu,“ segir Helga.
Ísland verður því í pottinum
þegar dregið verður í riðla á árs-
þingi EHF sem fram fer í Mónakó
á föstudaginn.
kolbeinntumi@365.is
Stelpurnar bakdyramegin til Serbíu
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik verður meðal þátttökuþjóða á Evrópumótinu í desember. Í gær
var tilkynnt að Serbar myndu hlaupa í skarðið fyrir Hollendinga sem gáfu gestgjafahlutverkið frá sér á
dögunum. Ísland hafði bestan árangur liða í þriðja sæti riðils síns í undankeppninni og fer því til Serbíu.
GLEÐI Hrafnhildur og félagar eru orðnir fastagestir á stórmótum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓTBOLTI Hin 17 ára gamla Sandra
María Jessen skoraði með sinni
fyrstu snertingu í sínum fyrsta
landsleik þegar Ísland vann
3-0 sigur á Ungverjalandi í
undankeppni EM um helgina.
Svo skemmtilega vill til að
þessi draumabyrjun hennar á
mjög margt sameiginlegt með
fyrstu sporum markadrottning-
arinnar Margrétar Láru
Viðarsdóttur í A-landsliðinu.
Margrét Lára skoraði líka með
sinni fyrstu snertingu í sínum
fyrsta leik í sigri á Ungverjum
í júnímánuði 2003, þá á 17. ári.
Margrét Lára tók sér reyndar
fjórar mínútur í að komast á blað
en Sandra María skoraði eftir
aðeins þrjár mínútur. - óój
Sandra og Margrét Lára:
Keimlík fyrstu
landsliðsspor
SANDRA MARÍA Brosti út að eyrum eftir
fyrsta landsleikinn. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Wayne Rooney hefur
þurft að dúsa uppi í stúku
í tveimur fyrstu leikjum
Englendinga á EM en í kvöld fær
hann loksins að klæðast tíunni
og hjálpa enska liðinu til þess
að komast í átta liða úrslitin.
Rooney viðurkennir að það hafi
verið erfitt að horfa á fyrstu tvo
leikina. „Það er miklu erfiðara
að horfa á leiki en spila þá því þú
getur ekkert gert uppi í stúku,“
sagði Wayne Rooney.
Rooney kemur væntanlega
beint inn í byrjunarliðið fyrir
Úkraínuleikinn en enska liðinu
nægir þar jafntefli. Andy Carroll
og Danny Welbeck skoruðu báðir
í sigrinum á Svíum og annar
þeirra þarf því að víkja. Pressan
verður á Rooney að skila meiru
en á síðustu stórmótum enda þá
með fleiri rauð spjöld en mörk.
Það er hins vegar mörgum í
fersku minni þegar hann 18 ára
gamall skoraði 4 mörk í fjórum
leikjum á sínu fyrsta og eina Evr-
ópumóti í Portúgal árið 2004. - óój
EM í fótbolta í kvöld:
Rooney má
loksins spila
ROONEY OG HODGSON Fyrir æfingu
enska liðsins. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Spánverjar og Ítalir
unnu lokaleiki sína í C-riðli Evr-
ópumótsins í fótbolta og tryggðu
sér sæti í átta liða úrslitum. Ítalir
voru ekki í miklum vandræðum
með að vinna Íra 2-0 en Spánverj-
ar sluppu með skrekkinn á móti
Króötum og tryggðu sér 1-0 sigur
í lokin.
Antonio Cassano og Mario
Balotelli skoruðu mörk Ítala á
móti Írum. Cassano skoraði fyrra
markið með skalla eftir horn
Andrea Pirlo í fyrri hálfleik en
Balotelli það síðara í lokin með
viðstöðulausu skoti eftir að hafa
komið inn á sem varamaður.
Spánverjar tryggðu sér sigur
í riðlinum með því að vinna 1-0
sigur á Króatíu. Jesús Navas kom
inn á sem varamaður fyrir Fern-
ando Torres eftir klukkutíma og
skoraði eina mark leiksins tveim-
ur mínútum fyrir leikslok. Króat-
ar fengu nokkur flott færi úr
skyndisóknum í seinni hálfleik en
með því hefðu þeir getað slegið út
spænska liðið.
Úrslitastund leiksins var
kannski á 59. mínútu þegar Iker
Casillas varði frábærlega skutlu-
skalla frá Ivan Rakitic eftir
skyndisókn og undirbúning Luka
Modric. Mark þarna hefði breytt
miklu. Mark Króata kom ekki og
Jesús Navas skoraði sigurmarkið
á 88. mínútu eftir stoðsendingu
Andrés Iniesta og frábæra send-
ingu Cesc Fabregas inn í teiginn.
- óój
C-riðillinn kláraðist á EM í fótbolta í gærkvöldi:
Spánn og Ítalía áfram
EKKI ORÐ Leonardo Bonucci passar upp á að Mario Balotelli tali ekki af sér.
FRÉTTABLALÐIÐ/AP