Fréttablaðið - 24.07.2012, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 24. júlí 2012 11
MEÐ GÓRILLU Á BAKINU Þjóðgarðs-
vörður í Kongó leikur sér að ungri
górillu sem er munaðarlaus og fékk
athvarf í þjóðgarðinum. NORDICPHOTOS/AFP
SVEITARSTJÓRNARMÁL Sveitarstjórn sveitar-
félagsins Skagafjarðar kynnti nýverið
fyrir starfsmönnum stórtækar skipurits-
breytingar sem þar standa fyrir dyrum.
Markmiðið með þeim er að ná launkostnaði
niður í 57 prósent af heildartekjum sveitar-
félagsins en hann er nú tæp 66 prósent.
Stefán Vagn Stefánsson, formaður bygg-
ingaráðs, kynnti breytingarnar og segir
hann að þær feli ekki í sér uppsagnir en
óneitanlega þurfi margir að taka á sig ein-
hverja skerðingu.
Starfssviðum verður fækkað úr sjö í þrjú
þannig að eftir verða fjölskyldusvið, mann-
auðs- og fjármálasvið og veitu- og fram-
kvæmdasvið sem framvegis mun taka yfir
rekstur Skagafjarðaveita. „Við ákváðum að
fara ekki í neinar uppsagnir en hins vegar
verður öllum fastlaunasamningum sagt upp
og þeir síðan endurskoðaðir,“ segir Stefán
Vagn.
„Við látum svo starfsmannaveltuna sjá
um að þynna flokkinn en auðvitað gerum
við okkur líka grein fyrir því að stundum
komumst við ekki hjá því að ráða fyrir ein-
hvern sem hættir. Svo verður sett á auka-
vinnubann þannig að það þarf að fá sérstakt
leyfi fyrir allri aukavinnu.“ Hann leggur
ríka áherslu á að unnið verði að þessu með
starfsfólkinu svo að lendingin verði sem far-
sælust í þessum annars erfiðu breytingum.
- jse
Skagfirðingar standa frammi fyrir stórtækum skipulagsbreytingum til að ná niður launakostnaði:
Boðar skerðingu en engar uppsagnir
FRÁ SAUÐÁRKRÓKI Skagfirðingar munu aldeilis ekki
fara varhluta af aðhaldsaðgerðunum sem nú standa
fyrir dyrum.
ÆGIR Varðskipið kom hingað síðasta
haust eftir að hafa verið í Miðjarðar-
hafinu. MYND/GUÐMUNDUR ST. VALDIMARSSON
LANDHELGISGÆSLAN Varðskipið
Ægir hefur verið sjósett á ný
eftir að hafa staðið í slipp við
Reykjavíkurhöfn undanfarnar
vikur þar sem sinnt var almennu
viðhaldi á skipinu. Það mun síðar
í mánuðinum sigla í Miðjarðar-
hafið og sinna landamæragæslu
fyrir Evrópusambandið eins og
það gerði í fyrra.
Ísland er aðili að Frontex,
landamærastofnun Evrópusam-
bandsins í gegnum Schengen-
samstarfið um ytri landamæri
ESB. Landhelgisgæslan hefur
lagt til tæki fyrir Íslands hönd.
Í slippnum var varðskipið
Ægir yfirfarið, öxuldregið, bol-
skoðað og málað. Skipið er 44 ára
gamalt en hefur hlotið talsverðar
endurbætur í gegnum tíðina.
Ægir hefur verið við Íslands-
strendur síðan í haust og sinnt
almennum öryggisskyldum á
meðan varðskipið Þór hefur
verið í viðgerð. - bþh
Enn sinnir varðskipið eftirliti:
Ægir heldur í
Miðjarðarhafið
BANDARÍKIN, AP Íþróttasamband
háskóla í Bandaríkjunum sektaði
í gær fótboltalið Penn State-
háskólans í Pennsylvaníuríki um
sextíu milljónir dollara, jafnvirði
sjö og hálfs milljarðs króna, og
svipti fótboltalið skólans öllum
titlum þess undanfarin fjórtán ár.
Rannsókn alríkislögreglunnar
leiddi nýlega í ljós að Jerry Sand-
uski, aðstoðarþjálfari liðsins,
hefði gerst sekur um að misnota
tíu pilta kynferðislega um fimm-
tán ára skeið. Hann lést í janúar.
Jafnframt voru fjórir starfs-
menn skólans sagðir ábyrgir
fyrir því að hafa ekki brugðist
við kvörtunum yfir Sanduski.
Þeirra á meðal var aðal þjálfarinn
Joe Paterno, sá sigursælasti í
sögu bandarísks háskóla fótbolta.
Stytta af honum sem stóð fyrir
utan skólann hefur nú verið
fjarlægð. - sh
Brást í barnaníðsmáli:
Penn State fær
risavaxna sekt
LÍFEYRISAUKI
SJÖ LEIÐIR
TIL ÁVÖXTUNAR
Lífeyrisauki
Lífeyrisauki er stærsti sjóður landsins sem sinnir eingöngu viðbótarlífeyrssparnaði.
Í Lífeyrisauka eru sjö ávöxtunarleiðir í boði.
Sjö fjárfestingarstefnur sem henta ólíkum þörfum.
Sendu okkur póst á lifeyristhjonusta@arionbanki.is og fáðu að vita hvað Lífeyrisauki
getur gert fyrir þína framtíð.
5%
0%
10%
15%
Lífeyrisauki 1 Lífeyrisauki 2 Lífeyrisauki 3 Lífeyrisauki 4 Lífeyrisauki 5 Lífeyrisauki,
erlend verðbréf
Lífeyrisauki,
innlend skuldabréf
-1,8%
6,9%
1,5%
9,9%
5,9%
11,0%
8,5% 7,9%
13,0%
-1,0%
2,2%
12,6%
13,4%
Nafnávöxtun 30.06.2011 – 30.06.2012
5 ára meðalnafnávöxtun tímabilið 30.06.2007 – 30.06.2012
4,3%