Fréttablaðið - 24.07.2012, Blaðsíða 26
24. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR22
sport@frettabladid.is
ARON PÁLMARSSON stóðst í gær læknisskoðun hjá félagi sínu, Kiel í Þýskalandi. Honum er því
frjálst að fara með íslenska landsliðinu á Ólympíuleikana í Lundúnum sem settir verða á föstudaginn. Ísland
mætir Argentínu í fyrsta leik sínum á sunnudaginn kemur.
VOLVO V40 DÍSIL
Notar aðeins 3,4 lítra á
hundraðið í langkeyrslu.
Kjóstu hagkvæmni.
Verð frá 4.590.000 kr.
VOLVO V60 DÍSIL
Notar aðeins 4,1 lítra á
hundraðið í langkeyrslu.
Mættu ítrustu kröfum.
Verð frá 5.890.000 kr.
VOLVO S80 DÍSIL
Notar aðeins 4,2 lítra á
hundraðið í langkeyrslu.
Endurskilgreindu gæði.
Verð frá 6.290.000 kr.
VOLVO V70 DÍSIL
Notar aðeins 4,2 lítra á
hundraðið í langkeyrslu.
Upplifðu þægindi.
Verð frá 6.490.000 kr.
VOLVO XC70 DÍSIL
Notar aðeins 5,7 lítra á
hundraðið í langkeyrslu.
Sláðu tvær flugur.
Verð frá 8.990.000 kr.
VOLVO XC60 DÍSIL
Notar aðeins 5,6 lítra á
hundraðið í langkeyrslu.
Lifðu í öryggi.
Verð frá 8.890.000 kr.
VOLVO S60 DÍSIL
Notar aðeins 3,9 lítra á
hundraðið í langkeyrslu.
Endurreiknaðu líf þitt.
Verð frá 5.590.000 kr.
Landsleikur í handbolta
Ísland - Argentína 29-22 (15-11)
Mörk Íslands (skot): Vignir Svavarsson 4 (4),
Ólafur Gústafsson 4 (5), Guðjón Valur Sigurðs-
son 4 (6), Alexander Petterson 4 (7), Ólafur
Stefánsson 4/2 (9/3), Róbert Gunnarsson 2 (2),
Ingimundur Ingimundarson 2 (2), Arnór Atlason
2 (3), Ásgeir Örn Hallgrímsson 1 (1), Bjarki Már
Elísson 1 (2), Kári Kristján Kristjánsson 1 (2).
Varin skot: Hreiðar Levý Guðmundsson 8 (19/2,
42%), Björgvin Páll Gústavsson 5/1 (16/2, 31%).
Hraðaupphlaup: 6 (Vignir 4, Ingimundur 2)
Fiskuð víti: 3 (Ingimundur 1, Ásgeir Örn 1, Kári
Kristján 1)
Utan vallar: 12 mínútur.
Mörk Argentínu (skot): Federico Fernandez 3/1
(3/1), Federico Vieyra 3 (4), Guido Riccobelli 3
(5), Federico Pizzarro 3/1 (5/1), Sebastían Sim-
onet 3/1 (5/1), Mariano Cánepa 2 (3), Damián
Migueles 2 (4), Andrés Kogovsek 2 (4/1), Gonzalo
Carou 1 (3).
Varin skot: Fernando Garcia 6 (20/1, 30%),
Matias Schulz 3 (18/1, 17%).
Hraðaupphlaup: 0
Fiskuð víti: 4 Fernandez 1, Cánepa 2, Carou 1)
Utan vallar: 6 mínútur.
ÚRSLIT
HANDBOLTI Ísland vann í gær sjö
marka sigur á Argentínu, 29-22, í
lokaleik liðsins fyrir Ólympíuleik-
ana í Lundúnum í Kaplakrika. Sig-
urinn var sannfærandi og sýndu
strákarnir allt annan og betri leik
en þegar liðin mættust á laugar-
daginn.
Þá áttu Íslendingar erfitt með
að slíta sig frá sprækum Argent-
ínumönnum. Í gær var raunin
önnur og höfðu Íslendingar for-
skot á gestina frá Argentínu frá
annarri mínútu. Varnarleikur
liðsins var aftur flottur og er það
ljóst að ef Íslendingar geta hald-
ið liðum í aðeins rúmlega tutt-
ugu mörkum á Ólympíuleikunum
eigum við góðan möguleika í öll
lið.
Ólafur Gústafsson fékk að
spreyta sig með liðinu í gær og
nýtti tækifærið vel, þó svo að
hann verði ekki í Ólympíuhópn-
um. Vignir Svavarsson, Guðjón
Valur Sigurðsson, Ólafur Stef-
ánsson og Alexander Petersson
skoruðu einnig fjögur mörk og
voru þeir markahæstir í íslenska
liðinu.
Ólafur lék mögulega sinn síð-
asta heimaleik með íslenska lands-
liðinu í gær en hann mun líklega
leggja landsliðsskóna á hilluna að
Ólympíuleikunum loknum.
Í leiknum á laugardaginn lentu
Íslendingar í erfið leikum með
góðan markmann Argentínu-
manna, Fernando Garcia, og
náðu aldrei að slíta sig alveg frá
gestunum. Fjöldinn allur af dauða-
færum fór forgörðum en nú var
annað upp á teningnum, liðið sýndi
flottan sóknarleik sem leysti vel
úr varnarleik Argentínumanna.
Liðið heldur út á miðviku daginn
og á fyrsta leik í riðlakeppninni
á sunnudaginn gegn Argentínu-
mönnum og gætu þessir tveir leikir
reynst liðinu dýrmætir. - kpt
Ísland vann sjö marka sigur á Argentínu í vináttulandsleik og lokaleik liðsins fyrir Ólympíuleikana:
Sannfærandi sigur strákanna í Kaplakrika
KVEÐJUSTUND? Ólafur Stefánsson lék mögulega síðasta landsleik hér á landi gegn
Argentínu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL