Fréttablaðið - 31.07.2012, Page 2

Fréttablaðið - 31.07.2012, Page 2
31. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR2 www.skyr.is Þú finnur fleiri boostuppskriftir á BRAGÐ AF SUMRI Peru- og ananasboost 1 lítið Peruskyr.is 1 dl ananassafi 50 g frosnir blandaðir melónubitar 0,5 dl kókosmjólk 6-8 ísmolar FÓLK Þeir David Ceccarelli og Andrea Gesmundo eru ítalskir ferðamenn hér á landi. Það væri ekki í frásögur færandi nema hvað þeir ferðast á hlaupahjólum frá Reykjavík og ætla, á fimmtán dögum, alla leið til Egilsstaða. Blaðamaður og ljósmyndari Fréttablaðsins hittu þá David og Andrea þegar þeir voru komnir undir Úlfarsfell rétt fyrir hádegi í gær. „Fyrst var planið að fara yfir Kjöl en nú held ég við förum bara hringveginn,“ segir David sem er þaulvanur ferðalangur á hinum ýmsu fararskjótum. Þeir félagar eru báðir frá Tosc- ana-héraði og búa og starfa í bænum Prato í grennd við Flórens á Mið-Ítalíu. David er vefstjóri og myndskreytir barnabækur með fram því. Andrea er endurskoð- andi fyrir hið opinbera á Ítalíu og er að fara í fyrsta sinn með vini sínum í svona ferð. „Það er engin sérstök ástæða fyrir þessari ferð,“ segir David. „Ég hef meðal annars farið á hjólabretti eftir öllum Berlínar- múrnum, ég var fyrsti Ítalinn til að ganga eftir „mænu Englands“, frá syðsta odda að landmærunum við Skotland og hef farið gangandi yfir allt Lappland.“ Í öll skiptin hefur David verið styrktur af hinum ýmsu vöru- merkjum. Nú fara þeir Andrea um landið á tékkneskum hlaupa- hjólum. Spurður hvers vegna þeir séu að þessu segir David: „Á flugvell- inum sáum við fullt af fólki með hjólin sín og risastórar töskur undir þau. Við þurftum bara lít- inn kassa undir hjólin okkar. Það er kannski aðalástæða þess að við förum á hlaupahjólum, þau eru svo fyrirferðarlítil.“ Hann segir þá félaga aðeins hafa fimmtán daga í ferðalagið. „Það var ómögulegt að ganga þessa leið á fimmtán dögum svo við grip- um eitthvað sem svipar til göng- unnar. Við hefðum auðvitað getað hjólað, það hefði jafnvel orðið mjög skemmtilegt, en af því að ég hef mikinn áhuga á hjólabrettum þá varð hlaupahjólið auðvitað fyrir valinu.“ „Fyrir mér er það toppurinn á tilverunni að koma til Íslands eftir að hafa farið í svona ferð til Lapp- lands og Bretlands. Ég hef allt- af haft áhuga á Íslandi og nú var tækifærið. Ef maður lætur tæki- færin fara frá sér þegar þau gefast mun maður tapa þeim að eilífu.“ birgirh@frettabladid.is Magni, er nokkuð bræðslufýla í bænum eftir hátíðina? „Nei, alls ekki. Maður er kannski helst í fýlu yfir að hátíðin sé búin og langt í þá næstu.“ Tónlistarmaðurinn Magni Ásgeirsson stóð fyrir tónlistarhátíðinni Bræðslunni á Borgarfirði eystri um helgina. Hátíðin þótti takast afar vel í ár. Fara á hlaupahjólum landshorna á milli David og Andrea hófu í gær ferð sína frá Reykjavík til Egilsstaða á hlaupahjól- um. Þeir hafa aðeins fimmtán daga og nota þennan merkilega fararskjóta því gangan tekur of langan tíma. Toppurinn á tilverunni að ferðast á Íslandi. LAGÐIR AF STAÐ Það er löng leið sem bíður þeirra Davids og Andrea en þeir hyggjast fara á hlaupahjólum austur á Egilsstaði á fimmtán dögum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR SLYS Íslenskur karlmaður lést og erlent par er alvarlega slasað eftir bílslys í Norðurdal nærri Stein- grímsfjarðarheiði á níunda tím- anum á sunnudagskvöld. Fólksbíll fólksins lenti út af veg- inum og ofan í vegrás. Ökumaður- inn reyndist látinn þegar lögregla og sjúkralið frá Hólmavík kom á vettvang, samkvæmt tilkynningu frá lögreglu. Maður og kona sem voru farþeg- ar í bílnum voru flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspít- alann. Þau eru bæði illa slösuð og var annað þeirra talið í lífshættu í gær. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. - bj Íslenskur maður lést í bílslysi: Par alvarlega slasað eftir slys STJÓRNMÁL Ólafur Ragnar Grímsson verður settur í embætti forseta Íslands í fimmta sinn við hátíðlega athöfn í Alþingishúsinu í dag. Enginn annar hefur gegnt forsetaembættinu svo lengi. Samkvæmt dagskrá frá forsætisráðuneytinu hefst athöfnin klukkan þrjú með ættjarðarlögum á Austurvelli. Hálftíma síðar ganga forseti Íslands og forseti Hæstaréttar, forsetafrú og biskupinn yfir Íslandi, forsætisráðherra ásamt fleiri háttsettum embættismönnum úr Alþingishúsinu yfir í Dóm- kirkjuna. Þar verður helgistund í umsjá biskups- ins yfir Íslandi að viðstöddum fyrrverandi forseta Íslands, fyrrverandi forsætisráðherra, alþingis- mönnum, hæstaréttardómurum, sendimönnum erlendra ríkja og mörgum fleiri boðsgestum. Efir helgistundina er aftur farið út í hús Alþingis klukkan fjögur þar sem forseti Hæstaréttar setur Ólaf Ragnar í embætti eftir að viðstaddir hafa risið úr sætum þegar forsetahjónin ganga í salinn. „Er forseti hefur veitt kjörbréfinu viðtöku býður hann forsetafrúnni að ganga með sér fram á svalir þing- hússins þar sem hann minnist fósturjarðarinnar. Viðstaddir taka undir, bæði inni og úti,“ segir í dag- skrá. Gjallarhorn verða við Alþingishúsið og Dómkirkj- una svo að þeir sem eru utanhúss heyri það sem fram fer bæði í kirkju og þinghúsi. Að auki senda bæði Ríkissjónvarpið og -útvarpið beint frá athöfninni. - gar Ólafur Ragnar Grímsson brýtur blað í stjórnmálasögu Íslands á morgun: Í embætti forseta í fimmta sinn FORSETAHJÓNIN Ólafur Ragnar Grímsson ásamt Dorrit Moussaieff þegar hann var settur í embætti forseta í þriðja sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR UMHVERFISMÁL Stangveiðimenn telja ástæðu til að óttast að sníkjudýrið Gyrodactylus salaris sem leggst á laxfiska í Noregi og Svíþjóð berist fyrr en síðar með erlendum húsbíl- um í íslenskt vatnakerfi. „Á sama tíma og veiðimenn eru látnir sótthreinsa fluguboxin sín streyma til landsins húsbílar erlend- is frá með vatn í tönkum til neyslu og notkunar á salernum. Sníkjudýr á borð við Gyrodactylus getur lifað allt að viku tíma við réttar aðstæð- ur án hýsils og því er auðvelt að sjá fyrir sér að húsbílar sem hingað til lands koma geti losað sýkt vatn í veiðiárnar, um leið og vatn bílsins er endurnýjað,“ segir á vef Stanga- veiðifélags Reykjavíkur. Gísli Jónsson, sérfræðingur hjá Matvælastofnun, segir þessa smit- leið gríðarlega ólíklega. „Ég skoðaði þetta fyrir örfáum árum og menn þekktu engin dæmi þess að húsbíl- ar væru að taka yfirborðsvatn ein- hvers staðar. Það er þakkarvert að menn skuli vera á tánum en þess- ar vangaveltur eru það langsóttar að ég hef engar áhyggjur. Ég hef miklu meiri áhyggjur af kjölfestu- vatni með skipum sem koma hing- að,“ segir Gísli Jónsson. - gar Veiðimenn óttast sníkjudýr með vatni húsbíla en sérfræðingur er áhyggjulaus: Þurfa ekki að óttast húsbílavatn HÚSBÍLL VIÐ SKÓGAFOSS Sérfræðingur hjá Matvælastofnun segir ólíklegt að sníkjudýr berist með vatni erlendra hús- bíla eins og veiðimenn eru bangnir við. NOREGUR Rapparanum Calvin Cordozar Broadus Jr., eða Snoop Dogg, hefur nú verið meinað að koma til Noregs næstu tvö árin. Ástæðan er sú að Snoop Dogg smyglaði átta grömmum af marijúana til landsins í júní og var þar að auki með gjald- eyri að verðmæti 4,6 milljónir íslenskra króna í fórum sínum. Snoop Dogg var sektaður á staðnum og hlaut fjársekt sem nemur rúmlega einni milljón króna. Þetta kemur fram á vef norska ríkisútvarpsins. Brottvís- unin mun ekki hafa áhrif á ferða- lög tónlistarmannsins í öðrum evrópskum löndum. - ktg Tekinn fyrir smygl í Noregi: Snoop Dogg má ekki fara til Noregs í tvö ár SNOOP DOGG EFNAHAGSMÁL Seðlabankinn ætlar að tvöfalda kaup sín á evru af viðskiptavökum á gjaldeyris- markaði hérlendis. „Aukið inn- flæði og styrking krónunnar gefa svigrúm til þess að auka nokkuð kaup Seðlabankans. Telur bank- inn æskilegt að gjaldeyriskaup- in standi undir vaxtagreiðslum vegna erlendra skulda ríkissjóðs og að hlutfall óskuldsetts gjald- eyrisforða hækki til lengri tíma litið,“ segir í tilkynningu frá bankanum sem hyggst nú kaupa eina milljón evra vikulega á hverjum viðskiptavaka á markaði í staðinn fyrir hálfa milljón evra eins og verið hefur í tæp tvö ár. Búast má við að þessi gjaldeyris- kaup veiki gengi íslensku krón- unnar. - gar Seðlabankinn kaupir evrur: Flug krónunnar gefur svigrúm BANDARÍKIN Hlutabréf í banda- ríska tölvufyrirtækinu Apple hækkuðu í verði í gær í kjölfar frétta um að nýr iPhone-sími kæmi á markað í september. Vefsíðan iMore fullyrti í gær að Apple myndi kynna nýja vöru- línu í haust. Þá yrði hulunni meðal annars svipt af nýjum iPhone- síma og minni útgáfu af iPad- spjaldtölvu. Samkvæmt iMore verður nýja vörulínan kynnt þann 12. september. Hlutabréf í Apple hækkuðu um 1,7 prósent í kjölfar fréttanna. - th Hlutbréf í Apple hækka: Nýr iPhone á markað í haust UMHVERFISMÁL „Þetta var alveg ótrúlegt að sjá,“ segir Guðmundur Bjarki Halldórsson sem í gær- morgun varð vitni að því er yfir tvö hundruð dýra grindhvalavaða athafnaði sig fáa tugi metra frá landi á Akranesi. Guðmundur segir skoðunarbát hafa farið of nærri hvölunum. „Það fór allt á fullt og þeir stefndu að landi,“ lýsir hann. Þrír hvalanna strönduðu en var bjargað á flot aftur af tveimur mönnum. Fjölda fólks dreif að og fylgdist með. Guð- mundur segir að tekist hafi að stugga hvölunum á öruggari slóðir með því að nokkrir bátar náðu að sigla inn fyrir vöðuna. - gar Grindhvalavaða á Akranesi: Hraktir á land og síðan burt GRINDHVALIR VIÐ AKRANES Hvalirnir virtust vera í æti. MYND/GUÐMUNDUR BJARKI SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.