Fréttablaðið - 31.07.2012, Side 16
16 31. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR
Bi
ld
sh
öf
ði
8
Bi
ld
sh
öf
ði
6
8
Breiðhöfði
Bíldshöfði 8
Bíldshöfði 6
Bíldshöfða 8
Opið 9 til 17 í dag
Citroën
Komdu hingað
Tillögur úr hugmyndasam-keppni um byggingar og
almannarými við Ingólfstorg
og Víkurgarð hafa vakið sterk
viðbrögð enda voru forsendur
keppninnar gagnrýndar harð-
lega þegar þær voru fyrst lagðar
fram. Í stað þess að leggja alla
áherslu á almannarými og
verndarsjónarmið var gengið
mjög langt til móts við þarfir
lóðarhafa á svæðinu. Sá hefur
það helst á sinni stefnuskrá að
byggja stórt hótel. Andstaða við
byggingaráformin hafði þó þau
áhrif að í keppninni var tölu-
verð áhersla á verndarsjónar-
miðin um gamla byggð, skapað
var visst svigrúm til sveigjan-
leika í útfærslum og þátttakend-
ur hvattir til að færa ekki gömul
hús úr stað. Margir keppenda
svöruðu því kalli með því að
koma sem mestu af hótelstarf-
seminni fyrir í Landsímahúsi við
Austurvöll ásamt yngri viðbygg-
ingum og mögulegri nýbyggingu
við Kirkjustræti gegnt inngangi
að Alþingi. Sumar hugmyndir að
þeirri nýbyggingu eru hógvær-
ari en í verðlaunatillögunni enda
tekur dómnefnd sérstaklega
fram að þann hluta hennar þurfi
að útfæra betur. Ýmsir hafa líka
bent á að vel megi komast af með
miklu minna hótel og að önnur
starfsemi færi betur í Landsíma-
húsi, til að mynda menningar- og
tómstundastarf á vegum borgar-
innar eða skrifstofur Alþingis á
efri hæðum ásamt öflugri veit-
ingastarfsemi á jarðhæð sem þá
yrði laus við alla langferðabíla.
Í verðlaunatillögu eru gömlu
húsin við Vallarstræti látin
standa að frátöldum salnum í
NASA en byggt of hátt á milli
þeirra og þau látin hverfa á bak
við fyrirferðarmikla nýbygg-
ingu á Ingólfstorgi. Þar er lagt
til að borgin komi fyrir menn-
ingarhúsi en eftir því var aldrei
leitað. Tillagan felur því í sér
þann góða kost fyrir borgina að
leyfa gömlu húsunum hringinn
í kringum Ingólfstorg að njóta
sín um ókomna tíð og láta hug-
myndir um byggingu húsa á
torginu lönd og leið. Í því liggur í
reynd helsti styrkur tillögunnar.
Þó að einhverjir agnúist út í
Ingólfs torg og margt megi þar
bæta er engum blöðum um það
að fletta að torgið er það langlíf-
legasta í borginni. Þar blómstrar
og getur vaxið allra handa menn-
ing allan ársins hring.
Borgin hefur glímt við tog-
streitu um þetta svæði um ára-
tuga skeið enda var lagt upp
þversagnakennt skipulag í
Kvosinni á níunda áratug síðustu
aldar þrátt fyrir viðvaranir og
mótmæli húsverndar- og félags-
hyggjufólks. Á þeim tíma hafði
Alþingi ákveðið að rífa gömul
hús við Kirkjustræti og í Kvosar-
skipulagi voru talin mörg fleiri
hús sem ættu mögulega að víkja.
Vallarstræti 4 (Hótel Vík) og
Aðalstræti 7 (gula húsið, Brynj-
ólfsbúð) eru bæði á þeim lista
en þó er í skipulaginu sérstak-
lega tekið fram, takið eftir því,
að æskilegast væri að varðveita
þau. Húsin eru hluti af timbur-
húsaröðinni sem enn þann dag í
dag rammar inn Ingólfstorg og
styður nálæga byggð í Grjóta-
þorpi og við Grófartorg.
Frá því að þetta var hafa orðið
mikil umskipti, allir styðja
stefnu um borgarvernd, áhugi á
húsvernd er almennur og fjölda
gamalla húsa hefur verið sýnd-
ur sómi með vandaðri endur-
gerð og fallegum við byggingum
til mikilla hagsbóta um allt
land. Mörg hús, áður í hættu,
hafa verið friðuð, þar á meðal
framhús NASA við Austurvöll.
Alþingi í samráði við borgaryfir-
völd hvarf frá niðurrifi á sínum
reit og nú mynda fjögur gömul
hús við hlið Alþingis ómetan-
lega og heildstæða röð með-
fram Kirkjustræti. Engum dett-
ur lengur í hug að þau hús megi
rífa. Þvert á móti sýnir þessi
húsaröð hvernig standa má að
málum. Þetta sjá auðvitað allir
þegar á það er bent.
Samt er eins og kjörnir full-
trúar hafi misst sjónar á þessu
við Ingólfstorg og fundist skipta
meira máli að peningafólk hefur
keypt sér lóðir og gömul hús á
besta stað og verndarsvæði í
borginni með ágóða í huga. Það
verði að fá að koma vilja sínum
fram, hjá því verði bara ekki
komist. Að öðrum kosti bresti
gróðavonir og borgin gæti þurft
að borga bætur. Þetta varð
útgangspunktur og þess vegna
gengur hugmyndasamkeppnin
ekki betur upp. Eins og Kristín
Þorleifsdóttir dómnefndar maður
lýsir réttilega í sinni niðurstöðu
tókst engri tillögu að sætta
sjónar mið á viðunandi hátt og
undir það hafa margir tekið.
Arkitektarnir lögðu sig alla
fram og dómnefnd hefur lokið
löngu og ströngu starfi en hótel-
áformin og byggingarmagnið
sem lagt var upp með eru enn
til bullandi vandræða, ganga
of nærri tónlistarsal, gömlum
húsum og líflegasta torgi borg-
arinnar. Þá reynir á lóðarhafa,
skipulagsráð og borgarstjórn
að bæta úr því. Þessir aðilar
eru reyndar ekki alveg einir
um verkefnið því að almenning-
ur í borginni og Alþingi láta sig
málið varða. Meira en tólf þús-
und Íslendingar hafa á skömm-
um tíma skrifað undir mótmæli
við áform lóðarhafa og borgar-
innar á slóðinni Ekkihotel.is.
Látið er að því liggja að fólk hafi
fengið rangar upplýsingar eða
viti ekki nóg um málið en sá mál-
flutningur stenst ekki skoðun.
Við þurfum sátt um gömlu
húsin og lóðirnar við Vallar-
stræti með NASA-sal og öllu
saman, það þarf að gera þau upp
af fullum metnaði og byggja
í skörðin á forsendum gömlu
byggðarinnar. Höfum í huga að
lóðarhafinn á enga heimtingu á
sameiningu lítilla lóða sunnan
við Ingólfstorg til að koma þar
fyrir stóru húsi, lóðarhafinn á
enga heimtingu á einsleitri starf-
semi eða stórbyggingu við Vall-
arstræti, lóðarhafinn getur ekk-
ert tilkall gert til Ingólfstorgs
og lóðarhafinn getur ekki þegar
til kastanna kemur rifið meira
en aldargömul og merk hús sem
löngu er ljóst að þarf að vernda.
Líku máli gegnir um vinsælan
tónleikasal, hálfrar aldar gaml-
an, í hjarta borgarinnar. Og ef
hann vill þenja út Landsímahús
á hæð og breidd varpar hann
skugga á sólríkan Austurvöll og
þrengir að Alþingi. Þessa þröngu
stöðu tók hann sér sjálfur og
hann þarf að vinna úr henni í
sátt við borgarbúa og nágranna
sína. Okkar er að standa með
hagsmunum heildarinnar, ekki
að tala niður almannarýmið,
gera lítið úr skuggavarpi, mikla
fyrir okkur bætur, gera mikið úr
hæpnum málstað lóðarhafa eða
koma í veg fyrir að gömul hús
fái að njóta sín. Þetta mál þarf
að leiða til farsælla lykta fyrir
fólkið í borginni. Líka þó að það
kunni að kosta okkur eitthvað.
Það er löngu kominn tími til.
Hvar stöndum við?
Skipulagsmál
Torfi Hjartarson
fulltrúi VG í skipulags-
ráði Reykjavíkur
Borgin hefur glímt við togstreitu um
þetta svæði um áratuga skeið enda var
lagt upp þversagnakennt skipulag í
Kvosinni á níunda áratug síðustu aldar þrátt fyrir við-
varanir og mótmæli húsverndar- og félagshyggjufólks.