Fréttablaðið - 31.07.2012, Page 16

Fréttablaðið - 31.07.2012, Page 16
16 31. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR Bi ld sh öf ði 8 Bi ld sh öf ði 6 8 Breiðhöfði Bíldshöfði 8 Bíldshöfði 6 Bíldshöfða 8 Opið 9 til 17 í dag Citroën Komdu hingað Tillögur úr hugmyndasam-keppni um byggingar og almannarými við Ingólfstorg og Víkurgarð hafa vakið sterk viðbrögð enda voru forsendur keppninnar gagnrýndar harð- lega þegar þær voru fyrst lagðar fram. Í stað þess að leggja alla áherslu á almannarými og verndarsjónarmið var gengið mjög langt til móts við þarfir lóðarhafa á svæðinu. Sá hefur það helst á sinni stefnuskrá að byggja stórt hótel. Andstaða við byggingaráformin hafði þó þau áhrif að í keppninni var tölu- verð áhersla á verndarsjónar- miðin um gamla byggð, skapað var visst svigrúm til sveigjan- leika í útfærslum og þátttakend- ur hvattir til að færa ekki gömul hús úr stað. Margir keppenda svöruðu því kalli með því að koma sem mestu af hótelstarf- seminni fyrir í Landsímahúsi við Austurvöll ásamt yngri viðbygg- ingum og mögulegri nýbyggingu við Kirkjustræti gegnt inngangi að Alþingi. Sumar hugmyndir að þeirri nýbyggingu eru hógvær- ari en í verðlaunatillögunni enda tekur dómnefnd sérstaklega fram að þann hluta hennar þurfi að útfæra betur. Ýmsir hafa líka bent á að vel megi komast af með miklu minna hótel og að önnur starfsemi færi betur í Landsíma- húsi, til að mynda menningar- og tómstundastarf á vegum borgar- innar eða skrifstofur Alþingis á efri hæðum ásamt öflugri veit- ingastarfsemi á jarðhæð sem þá yrði laus við alla langferðabíla. Í verðlaunatillögu eru gömlu húsin við Vallarstræti látin standa að frátöldum salnum í NASA en byggt of hátt á milli þeirra og þau látin hverfa á bak við fyrirferðarmikla nýbygg- ingu á Ingólfstorgi. Þar er lagt til að borgin komi fyrir menn- ingarhúsi en eftir því var aldrei leitað. Tillagan felur því í sér þann góða kost fyrir borgina að leyfa gömlu húsunum hringinn í kringum Ingólfstorg að njóta sín um ókomna tíð og láta hug- myndir um byggingu húsa á torginu lönd og leið. Í því liggur í reynd helsti styrkur tillögunnar. Þó að einhverjir agnúist út í Ingólfs torg og margt megi þar bæta er engum blöðum um það að fletta að torgið er það langlíf- legasta í borginni. Þar blómstrar og getur vaxið allra handa menn- ing allan ársins hring. Borgin hefur glímt við tog- streitu um þetta svæði um ára- tuga skeið enda var lagt upp þversagnakennt skipulag í Kvosinni á níunda áratug síðustu aldar þrátt fyrir viðvaranir og mótmæli húsverndar- og félags- hyggjufólks. Á þeim tíma hafði Alþingi ákveðið að rífa gömul hús við Kirkjustræti og í Kvosar- skipulagi voru talin mörg fleiri hús sem ættu mögulega að víkja. Vallarstræti 4 (Hótel Vík) og Aðalstræti 7 (gula húsið, Brynj- ólfsbúð) eru bæði á þeim lista en þó er í skipulaginu sérstak- lega tekið fram, takið eftir því, að æskilegast væri að varðveita þau. Húsin eru hluti af timbur- húsaröðinni sem enn þann dag í dag rammar inn Ingólfstorg og styður nálæga byggð í Grjóta- þorpi og við Grófartorg. Frá því að þetta var hafa orðið mikil umskipti, allir styðja stefnu um borgarvernd, áhugi á húsvernd er almennur og fjölda gamalla húsa hefur verið sýnd- ur sómi með vandaðri endur- gerð og fallegum við byggingum til mikilla hagsbóta um allt land. Mörg hús, áður í hættu, hafa verið friðuð, þar á meðal framhús NASA við Austurvöll. Alþingi í samráði við borgaryfir- völd hvarf frá niðurrifi á sínum reit og nú mynda fjögur gömul hús við hlið Alþingis ómetan- lega og heildstæða röð með- fram Kirkjustræti. Engum dett- ur lengur í hug að þau hús megi rífa. Þvert á móti sýnir þessi húsaröð hvernig standa má að málum. Þetta sjá auðvitað allir þegar á það er bent. Samt er eins og kjörnir full- trúar hafi misst sjónar á þessu við Ingólfstorg og fundist skipta meira máli að peningafólk hefur keypt sér lóðir og gömul hús á besta stað og verndarsvæði í borginni með ágóða í huga. Það verði að fá að koma vilja sínum fram, hjá því verði bara ekki komist. Að öðrum kosti bresti gróðavonir og borgin gæti þurft að borga bætur. Þetta varð útgangspunktur og þess vegna gengur hugmyndasamkeppnin ekki betur upp. Eins og Kristín Þorleifsdóttir dómnefndar maður lýsir réttilega í sinni niðurstöðu tókst engri tillögu að sætta sjónar mið á viðunandi hátt og undir það hafa margir tekið. Arkitektarnir lögðu sig alla fram og dómnefnd hefur lokið löngu og ströngu starfi en hótel- áformin og byggingarmagnið sem lagt var upp með eru enn til bullandi vandræða, ganga of nærri tónlistarsal, gömlum húsum og líflegasta torgi borg- arinnar. Þá reynir á lóðarhafa, skipulagsráð og borgarstjórn að bæta úr því. Þessir aðilar eru reyndar ekki alveg einir um verkefnið því að almenning- ur í borginni og Alþingi láta sig málið varða. Meira en tólf þús- und Íslendingar hafa á skömm- um tíma skrifað undir mótmæli við áform lóðarhafa og borgar- innar á slóðinni Ekkihotel.is. Látið er að því liggja að fólk hafi fengið rangar upplýsingar eða viti ekki nóg um málið en sá mál- flutningur stenst ekki skoðun. Við þurfum sátt um gömlu húsin og lóðirnar við Vallar- stræti með NASA-sal og öllu saman, það þarf að gera þau upp af fullum metnaði og byggja í skörðin á forsendum gömlu byggðarinnar. Höfum í huga að lóðarhafinn á enga heimtingu á sameiningu lítilla lóða sunnan við Ingólfstorg til að koma þar fyrir stóru húsi, lóðarhafinn á enga heimtingu á einsleitri starf- semi eða stórbyggingu við Vall- arstræti, lóðarhafinn getur ekk- ert tilkall gert til Ingólfstorgs og lóðarhafinn getur ekki þegar til kastanna kemur rifið meira en aldargömul og merk hús sem löngu er ljóst að þarf að vernda. Líku máli gegnir um vinsælan tónleikasal, hálfrar aldar gaml- an, í hjarta borgarinnar. Og ef hann vill þenja út Landsímahús á hæð og breidd varpar hann skugga á sólríkan Austurvöll og þrengir að Alþingi. Þessa þröngu stöðu tók hann sér sjálfur og hann þarf að vinna úr henni í sátt við borgarbúa og nágranna sína. Okkar er að standa með hagsmunum heildarinnar, ekki að tala niður almannarýmið, gera lítið úr skuggavarpi, mikla fyrir okkur bætur, gera mikið úr hæpnum málstað lóðarhafa eða koma í veg fyrir að gömul hús fái að njóta sín. Þetta mál þarf að leiða til farsælla lykta fyrir fólkið í borginni. Líka þó að það kunni að kosta okkur eitthvað. Það er löngu kominn tími til. Hvar stöndum við? Skipulagsmál Torfi Hjartarson fulltrúi VG í skipulags- ráði Reykjavíkur Borgin hefur glímt við togstreitu um þetta svæði um áratuga skeið enda var lagt upp þversagnakennt skipulag í Kvosinni á níunda áratug síðustu aldar þrátt fyrir við- varanir og mótmæli húsverndar- og félagshyggjufólks.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.