Fréttablaðið - 31.07.2012, Blaðsíða 22
KYNNING − AUGLÝSINGBílaleigur ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 20122
Sögu bílaleigubíla má rekja aftur til ársins 1916 þegar Joe Saund-
ers frá Nebraska ákvað að lána Ford T bílinn sinn til kaupsýslu-
manna sem sóttu fylkið heim. Þessi mikli frumkvöðull festi kíló-
metramæli við vinstra framhjól bílsins og rukkaði mennina um
tíu sent fyrir hverja 1,6 ekna kílómetra. Peningarnir áttu að duga
fyrir viðhaldi bílsins sem var honum afar kær.
Það leið ekki á löngu þar til Saunders áttaði sig á því að þarna var
komin fyrirtaks viðskiptahugmynd. Hann stofnaði fyrirtæki og árið
1925 var bílaleigan starfandi í 21 ríki.
Keppinautar voru fljótir að kveikja á perunni. Maður að nafni
Walter L. Jacobs fór að leigja út nokkra tugi Ford T bíla og árið 1923
var hann orðinn helsti keppinautur Saunders. Jacobs myndaði
bandalag við John Hertz, eiganda The Yellow Cab verksmiðjunn-
ar í Chicago, sem að endingu keypti bílaleigu Jacobs. Það varð upp-
hafið að Hertz bílaleigunni sem síðar breiddist út um allan heim. Í
dag er hún starfandi á 7.700 stöðum í 145 löndum.
Ford T var fyrsti
bílaleigubíllinn
Guðný Bachmann, ráðgjafi hjá Þek k ingarmiðstöð Sjálfsbjargar, segir þó að
þeir sem aki bíl geti einnig nýtt
sér þjónustu bílaleiga, bæði hér-
lendis og í útlöndum. „Fólk sem er
í hjólastól og þarf sérbúnað til að
stýra bílnum hefur möguleika á að
leigja hjálpartæki sem það þarf. Til
dæmis er hægt að leigja ákveðna
stöng sem hægt er að setja í bíl svo
stýra megi með höndum í stað
þess að ýta með fæti á bensíngjöf-
ina. Hægt er að hafa samband við
Öryggismiðstöðina og fá upplýs-
ingar um hvaða hjálpartæki eru til
leigu.“ Bílaleigur þurfa hins vegar
að gefa samþykki fyrir notkun
þessara hjálpartækja. „Uppsetn-
ingin er í sjálfu sér lítið mál en ein-
hver þarf að sjá um hana og yfir-
leitt er það bílaleigan. Fólk sem
vill ferðast erlendis er þá í sam-
bandi við bílaleiguna úti sem
setur hjálpartækin upp,“ útskýr-
ir Guðný. „Hjálpartækin getur
fólk leigt á Íslandi og tekið með
sér til útlanda, án nokkurra vand-
kvæða. Öryggismiðstöðin veitir þá
leiðbeiningar varðandi uppsetn-
inguna fyrir bílaleiguna úti.“
Ferðalög innanlands
Guðný segir flesta hreyfihamlaða
einstaklinga sem ferðast innan-
lands og hafa bílpróf ferðast á eigin
bílum. „En til dæmis ef fólk vill fara
einn dag til Akureyrar með flugi er
gott að geta hringt á leigubíl til að
komast á milli staða, í stað þess til
dæmis að þurfa að keyra alla leið
frá Reykjavík.“ Á Akureyri eru tveir
leigubílar sem bjóða upp á þjónustu
við fólk í hjólastólum. Á Ísafirði er
einn. Þekkingarmiðstöðin hefur
ekki upplýsingar um fleiri staði.
Mesta vandamálið við ferðalög
innanlands er skortur á upplýsing-
um um aðgengi. „Almennt getur
fólk gengið að því vísu að það kom-
ist á salerni í vegasjoppum, en fyrir
hreyfihamlaða getur þetta orðið
hvimleitt vandamál,“ segir Guðný.
„Það getur kostað mikla vinnu að
hringja á milli staða og athuga að-
stöðuna og þurfa svo að skipu-
leggja ferðina þannig að þeir kom-
ist örugglega á salernið og ákveða
staðina fyrir fram.“
Það sama gildir um aðstöðu á
tjaldstæðum og gistiheimilum.
„Flest okkar geta einfaldlega farið
í næstu sundlaug ef það er ekki
sturtuaðstaða á svæðinu. Þetta
getur verið flókið fyrir hreyfihaml-
aða einstaklinga. Þeir þurfa að at-
huga aðstæður, til dæmis hvort þeir
komist í sturturnar og hvort sú að-
stoð sem þeir þurfi sé fyrir hendi.
Það er alls ekki sjálfsagt, þótt al-
menningur gangi að þessum hlut-
um sem vísum.“ Einnig getur verið
erfitt að finna hvaða gististaðir eru
aðgengilegir hreyfihömluðu fólki.
Hægt er að leita til Þekkingar-
miðstöðvar Sjálfsbjargar til að fá
upplýsingar um aðstöðu úti á landi.
Hópferðabílar
Hópferðabílar með lyftum eru
yfirleitt ekki í almennri notkun.
Því þarf að láta sérstaklega vita ef
einhver í hópnum þarf á slíkri að-
stoð að halda.
Almennar áætlunarferðir hafa
ekki slíkar lyftur, þar með taldar
ferðir á flugvöllinn. Einstaklingar
í hjólastólum þurfa því að treysta
á aðstoð vina og ættingja eða taka
leigubíl á f lugvöllinn vilji þeir
ekki skilja eigin bíl eftir þar. Þess
má geta að þar sem þessir einstak-
lingar þurfa að taka stóran leigu-
bíl þurfa þeir stundum að borga
aukalega fyrir það. Þetta getur því
þýtt mikinn aukakostnað.
Þess ber að geta að flugrúta á
vegum Icetrips býður hreyfihöml-
uðu fólki að hafa samband ef leið
liggur á flugvöllinn og það er oft
ódýrari kostur en leigubíll.
Skipulagðar ferðir
Nokkur fyrirtæki á Íslandi sjá um
að skipuleggja ferðir um landið
sem fatlaðir geta tekið þátt í. Sem
dæmi má nefna Iceland Unlimi-
ted en þar starfar hreyfihamlaður
maður sem hefur skilning á hvað
gæti vantað og fyrir hverja ferðin
gæti hentað. Auk þess eru fyrir-
tækin All Iceland Tours og Ice 8x8
með lausnir fyrir fatlaða ferða-
langa sem vilja njóta lífsins og
ferðast eins og hver annar ófatl-
aður maður.
Flóknar ferðir
fatlaðs fólks
Bílaleigur eru einfaldur kostur fyrir flesta sem ferðast. Hreyfihamlaðir
einstaklingar þurfa hins vegar að skipuleggja ferðalög sín með fleira í huga.
Guðný Bachmann, ráðgjafi hjá Þekkingarmiðstöð Sjálfsbjargar, segir að fatlaðir þurfi að
huga að mörgu áður en þeir leggja í langferð.
Joe Saunders frá Nebraska
ákvað að lána kaupýslumönn-
um sem sóttu fylkið heim
Ford T bílinn sinn gegn
gjaldi. Hann festi kílómetra-
mæli við vinstra framhjól
bílsins og þar með var
kominn vísir að fyrstu
bílaleigu heims. Þetta
var árið 1916.
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is sími 512 5432
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Póstdreifing | Suðurhraun 1 | 210 Garðabær | Sími 585 8300 | www.postdreifing.is
Póstdreifing býður upp á fjölbreytta og örugga dreifingu á blöðum og
tímaritum. Við komum sendingunni í réttar hendur. Örugglega til þín.
Birtingur treystir okkur fyrir öruggri dreifingu á Séð og heyrt
B
ra
n
de
n
bu
rg
Við berum út sögur af frægu fólki