Fréttablaðið - 31.07.2012, Page 24
KYNNING − AUGLÝSINGBílaleigur ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 20124
Bílaleigan Route1 Car Ren-tal var stofnuð fyrir þrem-ur árum en bílaflotinn hefur
stækkað jafnt og þétt síðan þá.
Nafnið vísar til þjóðvegarins.
Persónuleg þjónusta
Fyrirtækið hefur aðsetur í Hafnar-
firði en segja má að staðsetningin
sé algjört aukaatriði: „Við bjóðum
upp á að afhenda bíla hvar sem er
á höfuðborgarsvæðinu, viðskipta-
vininum að kostnaðarlausu,“ út-
skýrir Sigurður Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Route1.
Greiða þarf sérstakt afhendingar-
og skilagjald ef bíllinn er afgreidd-
ur í Keflavík eða utan höfuðborgar-
svæðisins. „Fyrst og fremst viljum
við koma til móts við viðskiptavini
okkar. Við tökum á móti þeim á
Keflavíkurflugvelli, óski þeir þess,
en eins getum við afhent bílana við
hótel eða heimili.“ Viðskiptavin-
irnir geta svo skilað bílnum aftur
á sama stað, en það fer eftir sam-
komulagi hvernig það er fram-
kvæmt.
Nýir bílar og leiðsagnarkerfi
Bílaflotinn samanstendur af um
það bil 100 bílum af ýmsum stærð-
um og gerðum. „Við erum aðallega
með bíla af gerðinni Suzuki, Toy-
ota og Hyundai. Það er einfaldlega
vegna þess að við teljum þetta mjög
góð merki,“ segir Sigurður og bætir
við: „Við erum með allt frá smábíl-
um upp í jepplinga eins og Suzuki
Grand Vitara og Toyota RAV4. Það
eru bílar sem geta farið alla aðal
háfjallavegina.“ Fyrirtækið legg-
ur áherslu á endurnýjun bílaflot-
ans, en flestir bílarnir eru af árgerð
2011 og 2012. „Markmiðið er að vera
alltaf með nýja bíla og selja þá helst
eftir 15 mánuði.“
Öllum viðskiptavinum stendur
til boða að leigja sér GPS leiðsagn-
arkerfi. „Í sumar bjóðum við upp á
nýtt leiðsögukerfi sem er sérhannað
fyrir erlenda ferðamenn. Það aðvar-
ar ökumenn þegar þeir nálgast erf-
iðari akstursleiðir eins og Sprengi-
sand. Þá spyr tækið ökumanninn
hvort hann sé örugglega á réttum
bíl til að aka þessa leið.
Auk þess er búið að fjarlægja
óæskilega slóða úr kerfinu. Þann-
ig er stuðlað að öryggi ferðamanna
sem þekkja ekki aðstæður á Ís-
landi.“
Vilja ná til Íslendinga
Erlendir ferðamenn eru stærsti
viðskiptahópur Route1 en Sigurð-
ur segist vonast til að sjá Íslendinga
nýta sér þjónustuna í auknum mæli.
„Við þjónustum jafnt einstaklinga
sem fyrirtæki og bjóðum fyrirtækj-
um og stofnunum að leigja bíl til
lengri eða skemmri tíma á góðum
kjörum. Við hvetjum Íslendinga til
að hafa samband og kynna sér það
sem við höfum upp á að bjóða.“
Hægt er að nálgast frekari
upplýsingar um þjónustu Route1 á
heimasíðu þeirra: bilaleigur.is.
Skutla bílunum til
viðskiptavinanna
Bílaleigan Route1 er fjölskyldufyrirtæki í Hafnarfirði sem veitir
viðskiptavinum sínum persónulega þjónustu. Sigurður Gunnarsson er
framkvæmdastjóri fyrirtækisins en hann segist gjarnan vilja sjá Íslendinga
nýta þjónustu bílaleigunnar í auknum mæli.
Sigurður Gunnarsson og Hafdís Sigurðardóttir afgreiðslustjóri. Sé ekið í ókunnu landi ætti ávallt að kynna sér aðstæður vel. Fólk sem
keyrir í ókunnu landi er oftar en ekki á bílaleigubíl eða lánsbíl sem það
er ekki vant að keyra og því er enn meiri ástæða til að fara að með gát.
Útlendingar sem koma hingað til lands geta fengið greinagóðar upp-
lýsingar á vef Safetravel sem vert er að kynna sér áður en lagt er í hann
enda eru akstursskilyrði hér á landi víða harla ólík því sem gerist á hrað-
brautum erlendis. Hér getur til dæmis þurft að keyra yfir malarvegi, ein-
breiðar brýr og blindhæðir auk þess sem hægt er að reikna með því að
búfénaður, sérstaklega sauðfé, sé á ferðinni með fram vegum.
Hvað malarvegi varðar þá vilja slys eiga sér stað þegar ekið er af mal-
biki yfir á möl og er meginástæða þess að ekki er dregið úr hraða og bif-
reiðin rennur því til þegar komið er inn á mölina. Sé ekið í möl á miklum
hraða getur bifreiðin sömuleiðis misst gripið og farið að renna til. Þetta
getur til dæmis gerst þegar bílar mætast og því ber að sýna sérstaka aðgát
við þær aðstæður, færa sig til hægri og draga úr hraða.
Blindhæðir eru nær undantekningarlaust merktar sem slíkar og það
sama á við um blindbeygjur en ávallt skyldi fara varlega í þær. Yfir ein-
breiðar brýr er reglan sú að sá bíll sem er nær brúnni á réttinn.
Það borgar sig alltaf að hægja á ferðinni þegar sauðfé sést nærri vegi.
Þetta eru óútreiknanlegar skepnur og ekki gott að fá þær framan á bíl-
inn. Fleiri gagnlegar upplýsingar og myndbönd má nálgast á www.sa-
fetravel.is.
Akstur í ókunnu landi
Fjölskylda Valdísar Veru Ein-arsdóttur kennara lagði land undir fót á dögunum. Þau
flugu til Kaupmannahafnar og við
komuna þangað beið þeirra bíla-
leigubíll sem þau höfðu pantað á
netinu.
„Við vorum ótrúlega ánægð
með bílinn sem við fengum. Hann
var alveg nýr og mjög vel búinn. Í
honum var til dæmis innbyggt
GPS-leiðsagnarkerfi og því þurft-
um við ekki að leigja það auka-
lega. Konan sem átti röddina í
tækinu var umsvifalaust nefnd
Lísa og hún Lísa vísaði veginn og
við treystum mikið á hana,“ segir
Valdís og hlær.
Valdís var á ferð með mannin-
um sínum og fjórum börnum á
aldrinum eins til ellefu ára. Hún
segir aldur barnanna hafa hvatt
þau til að fara í ferðina í ár því á
næsta ári þarf að byrja að greiða
barnagjald fyrir yngsta barn-
ið og fullorðinsgjald fyrir það
elsta. „Það munar mjög miklu
á því að greiða barnagjald í öll
söfn og garða í stað fullorðins-
gjalda. Það er gott að vera búinn
að kynna sér verð og annað áður
en lagt er af stað, vera búinn að
lesa sér til og skipuleggja sig. Til
dæmis er hægt að fá alls kyns af-
slætti tengda skemmtigörðunum
sem er gott að geta nýtt sér. Einn-
ig að vera búinn að athuga fjar-
lægðir milli staða og áætla tíma-
lengd ferðalaga. Það er svo ótal-
margt skemmtilegt hægt að gera
í Danmörku, sérstaklega eitthvað
sem viðkemur börnum.“
Fjölskyldan gisti á nokkrum
stöðum í Danmörku og í Sví-
þjóð. Þau leigðu bæði sumar-
hús og íbúðir í einkaeigu og gistu
eina nótt á hóteli. Ýmislegt var
gert sér til skemmtunar á þriggja
vikna ferðalaginu. „Við fórum
meðal annars í Legoland og Tív-
olí, dýragarðinn í Köben og Ast-
rid Lindgren garðinn í Svíþjóð
þar sem við lékum okkur á slóð-
um Emils í Kattholti og barnanna
í Ólátagarði. Eitt af því áhuga-
verðasta sem við gerðum var að
fara í svokallað barnamenning-
arhús sem er á sama stað og safn
H. C. Andersen í Óðinsvéum. Þar
eru búningasafn, listasmiðjur og
ævintýraheimur með hljóðum og
alls kyns skúmaskotum. Safnið er
allt á forsendum barnanna og þau
nutu sín í botn,“ segir hún.
Valdís segist mæla hiklaust með
þessum ferðamáta, sérstaklega
fyrir fólk sem á börn. „Með því að
vera í íbúð og með bíl til umráða er
maður sinn eigin herra og er ekki
háður tímaáætlunum annarra.
Það er líka svo mikið frelsi í því að
geta skotist út í búð og eldað mat-
inn heima. Þetta var alveg yndis-
leg ferð og gott að hafa fjölskyld-
una alla saman.“
Á eigin vegum og engum háður
Valdís Vera Einarsdóttir er nýkomin heim úr ferðalagi til Danmerkur og Svíþjóðar. Þar var hún á flakki með fjölskyldunni í þrjár
vikur og voru þau með bíl á leigu allan tímann. Fjölskyldan gisti á sex mismunandi stöðum og gerði ýmislegt sér til skemmtunar.
Valdís Vera mælir hiklaust með því að
fólk leigi bíl í útlöndum og ferðist á eigin
vegum. MYND/ERNIR
Fjölskyldan við Egeskov höllina. Þau flökkuðu um Danmörku og Svíþjóð og skoðuðu
hina ýmsu garða og söfn.
Einn af eftirminnilegustu stöðunum sem fjölskyldan heimsótti var barnamenningar-
húsið í Óðinsvéum. Þar gátu börnin klætt sig í búninga og fengið andlitsmálningu og
leikið sér í hinum ýmsu ævintýraleikjum.