Fréttablaðið - 31.07.2012, Side 28
KYNNING − AUGLÝSINGBílaleigur ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 20128
FLOTT SKAGAFJARÐARRALL
Skagafjarðarrallið fór fram um helgina og það voru Guðmundur Höskulds-
son og Ólafur Þór Ólafsson á Subaru Impreza sem komu fyrstir í mark. Þeir
fóru allar 12 sérleiðirnar á 1:17,26. Mikil afföll urðu í rallinu, sem tókst þó með
miklum ágætum, en aðeins 10 af 17 áhöfnum skiluðu sér í mark, að sögn Feykis.
Baldur Haraldsson og Aðalsteinn Símonarson urðu í öðru sæti, 47 sekúndum
á eftir sigurvegurunum á tímanum 1:18,13 en þeir óku sömuleiðis Subaru
Impreza. Þriðju í mark voru Jón Bjarni Hrólfsson og Halldór Vilberg á 1:19,15 en
fararskjóti þeirra var Jeep Cherokee. Ekið var um Þverárfjall, Laxárdal og Sauðár-
krókshöfn fyrri daginn en þann seinni um Mælifellsdal, Vesturdal og á Nöfum á
Sauðárkróki.
Bílaklúbbur Skagafjarðar hafði veg og vanda af rallinu en það mun vera eitt það
stærsta sem klúbburinn hefur haldið.
Íslandsmótið í rallakstri fer síðan fram í byrjun september.
NÝR HONDA CRV VÆNT
ANLEGUR Á EVRÓPU
MARKAÐ
Fjórða kynslóð Honda CR-V
er væntanleg á Evrópumarkað
í haust en Honda CR-V hefur
verið með vinsælli bílum hér á
landi undanfarin ár. Nýi CR-V-inn
verður eyðslugrennri og með
meira innrými en fyrri útgáfur.
Fjórða kynslóð Honda CR-V hefur
verið á Bandaríkjamarkaði frá því
í desember 2011 en nú er fram-
leiðsla á Evrópuútgáfunni hafin í
verksmiðjum Honda í Swindon á
Englandi. Lítill útlitsmunur verður
á Ameríku- og Evrópugerðinni en
í Evrópu bjóðast dísilvélar.
Hægt verður að fá CR-V með
framhjóladrifi en fram að þessu
hefur hann eingöngu verið fjór-
hjóladrifinn. Framhjóladrifinn
CR-V verður eyðslugrennri og
umhverfisvænni.
Nýi bíllinn er tæknivæddari en
eldri útgáfur. CR-V 2013 verður
meðal annars búinn Eco Assist
System sem hjálpar ökumanni að
spara eldsneyti. Hljóðeinangr-
unin verður betri og talsmenn
Honda segja að nýi CR-V-inn verði
hljóðlátari en þriðja kynslóðin.
Efnisgæði í innréttingum verða
meiri og hönnun stólbaka dregur
úr líkum á alvarlegum háls-
meiðslum við aftanákeyrslu.
Honda CR-V kom fyrst á markað
árið 1995 og hefur notið mikilla
vinsælda síðan. Bíllinn hefur
selst í fimm miljónum eintaka í
160 löndum. Honda CR-V kom á
markað í Evrópu árið 1997 og ári
síðar var farið að framleiða bílinn
í Swindon.
NJÓTTU ÞESS AÐ FERÐAST Á EINFALDAN HÁTT.
ÞÚ KEMST ÞANGAÐ
MEÐ OKKUR!
Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í tengslum við allar
komur og brottfarir flugvéla um Keflavíkurflugvöll.
Kauptu miða núna á www.flugrutan.is
Alltaf laus sæti.
BSÍ - Umferðarmiðstöðin
101 Reykjavík
580 5400
OR
Frí þráðlaus internet-
tenging í öllum bílum
DAUÐAVEGURINN
Ekki er hægt að mæla með því
að ökumenn bílaleigubíla eða
eigin bíla keyri hinn svokallaða
Dauðaveg í Bólivíu. Að minnsta
kosti ekki þeir lofthræddu.
Vegurinn liggur á milli La Paz og
Coroico og er 61 kílómetri að
lengd. Dauðavegurinn hefur verið
kallaður „heimsins hættulegasti
vegur“ og áætlað er að tvö til þrjú
hundruð ökumenn láti lífið við að
aka veginn á ári hverju.
Vegurinn nær upp í 4.650
kílómetra hæð og breidd hans
er víðast hvar aðeins 3,2 metrar
og því aðeins ein akrein. Auk
þess draga rigning, þoka og ryk
oft úr skyggni ökumanna. Ein af
vegareglunum er á þá leið að sá
ökumaður sem er á niðurleið á
aldrei réttinn og verður að víkja.
Reglan neyðir það farartæki sem
er yfirleitt á meiri hraðferð til
að stoppa svo framhjáaksturinn
gangi örugglega.
Vegurinn hefur verið vinsæll
áfangastaður meðal áhættusæk-
inna ferðamanna síðan um 1990.
Sérstaklega hafa hjólreiðamenn
sótt veginn heim vegna mikils
halla hans en að minnsta kosti
átján hjólreiðamenn hafa látist á
veginum síðan 1998.