Fréttablaðið - 10.08.2012, Blaðsíða 21
ELDAÐ MEÐ HOLTA
HOLTA KYNNIR Sjónvarpskokkurinn Kristján Hlöðversson úr þáttunum Eldað
með Holta á ÍNN gefur kjúklingauppskriftir alla föstudaga. Hér er hann með
rifsberjamarineraðar Holtabringur með fylltum paprikum og mintusalsa.
SJARMÖR Í HÖRPU
Stórsöngvarinn Tony Bennett verður með tónleika í
Eldborgarsal Hörpu í kvöld. Bennett á að baki 60 ára
feril en hann hefur sautján sinnum fengið Grammy-
verðlaun og Emmy-verðlaun tvisvar. Hann hefur selt
um 50 milljónir platna um allan heim.
MARINERING OG
KJÚKLINGUR
800 g Holtabringur
2 dl rifsber
50 ml olía
50 ml síróp
3 stk. ferskur chili-pipar
Safi úr 2 límónum
Salt og pipar eftir smekk
Látið liggja í marineringu í
um 40 mínútur.
FYLLTAR PAPRIKUR
150 g rjómaostur
5 langar paprikur
4 msk. paprikupestó frá
Sacla
2 msk. Chili Lime Chutney
frá Smitom
1 blaðlaukur
Blandið öllu saman fyrir
utan blaðlaukinn. Skerið
toppinn af paprikunum
og setjið fyllinguna í þær.
Skerið blaðlaukinn endi-
langt í fimm parta og setj-
ið hann ofan í fyllinguna.
Gott er að nota hann til að
þrýsta fyllingunni vel inn í
paprikurnar.
SÆTAR KARTÖFLUR
2 sætar kartöflur skornar
í 3 cm sneiðar. Setjið olíu
yfir og síðan bragðbætt
með salti og pipar.
MINTUSALSA
1 dl fersk minta, gróft
skorin
1 dl extra virgin ólífuolía
10 kirsuberjatómatar, hver
skorinn í fjóra parta
20 g fersk engiferrót,
smátt skorin
3 msk. síróp
2 stk. ferskir chili-pipar,
smátt skornir
Blandið öllu saman og
látið standa í 30 mínútur
áður en borið er fram.
Gangi ykkur vel og munið
að Elvis lifir í okkur öllum
með bros í hjarta.
RIFSBERJAMARINERAÐAR HOLTABRINGUR
MEÐ FYLLTUM PAPRIKUM OG MINTUSALSA
Matreiðslumaðurinn Kristján Þór Hlöðversson sér um þátt-inn Eldað með Holta á sjón-
varpsstöðinni ÍNN. Þar matreiðir hann
skemmtilega og litríka rétti úr Holtak-
júklingi frá Reykjagarði. Á föstudögum
birtast þessar uppskriftir hér í blaðinu.
Í dag er hann með rifsberjamarineraðar
Holtabringur ásamt fylltum paprikum
og mintusalsa. Hægt er að fylgjast með
Kristjáni matreiða þennan girnilega rétt
í kvöld klukkan 21.30 á sjónvarpsstöð-
inni ÍNN.
Þættirnir eru endursýndir yfir
helgina en einnig er hægt að horfa á þá
á heimasíðu ÍNN, www.inntv.is.
TILBOÐS
DAGAR
15-30%
AFSLÁTTUR
AF BLOMBERG HEIMILISTÆKJUM
Ofnar, helluborð, uppþvottavélar, kæliskápar og fleiri
heimilistæki frá Blomberg á frábærum tilboðsverðum.
Blomberg BEO9444X
BÖKUNAROFN
Áður 109.990
Nú 89.990
Blomberg GUN3200X
UPPÞVOTTAVÉL / STÁL
Áður 89.990
Nú 69.990
Blomberg MIN54306N
SPANHELLUBORÐ
Áður 99.990
Nú 79.990
Blomberg WNF7462A20
ÞVOTTAVÉL 7kg / 1600sn
Áður 119.990
Nú 99.990
Nokkur
verðdæmi