Fréttablaðið - 10.08.2012, Blaðsíða 28
6 • LÍFIÐ 10. ÁGÚST 2012
RAGNHILDUR STEINUNN
JÓNSDÓTTIR
ALDUR 31 árs
HVAR ERTU ALIN UPP Í Reykjanesbæ
ÁHUGAMÁL Fjölskyldan, dans,
íþróttir, tónlist, sjónvarp
Ragnhildi Steinunni þarf vart að
kynna, enda löngu orðin þekkt
andlit á skjánum eftir margra ára
starf sitt á RÚV. Ragnhildur mun
halda áfram með þættina Ísþjóð-
in sem fjalla um ungt afreksfólk.
Landsmenn munu því miður ekki
sjá mikinn dans þennan veturinn
því hætt hefur verið við seríu tvö af
Dans Dans Dans og henni frestað
um ár af fjárhagslegum ástæðum.
En að nýjasta afreki þessarar
ungu og duglegu konu;
Hvernig tilfinning var það að sjá
myndina fullbúna á skjánum? Þetta
var mjög skrýtin tilfinning, ég verð
að viðurkenna að ég var mjög
stressuð og ég fann að hjartað
sló þungum slögum.
Hvað tók allt ferlið langan tíma,
allt frá því að hugmyndin fædd-
ist? Ég og unnusti minn byrjuð-
um að lesa okkur til um transmál
fyrir fimm árum. Upptökur hófust
síðan fyrir fjórum árum þannig að
ferlið hefur verið langt.
Hvað fékk þig upphaflega til að
sýna þessu málefni áhuga? Í raun-
inni má segja að hugmyndin hafi
kviknað fyrir fimmtán árum þegar
ég var að þjálfa fimleika í Kefla-
vík. Í fimleikahópnum var sjö ára
strákur sem hét Valur en bað mig
um að kalla sig Völu Grand því
hann væri stelpa. Ég man að ég
hugsaði með mér að það yrði
áhugavert að fylgjast með þess-
um strák/stelpu í framtíðinni.
Á þessum tíma hafði ég þó lítið
vit á heimildarmyndagerð. Mörg-
um árum síðar, þegar ég byrjaði
að vinna hjá RÚV, varð mér oft
hugsað til Völu Grand. Þegar ég
svo byrjaði að vinna í Kastljósinu
var hún fyrsta viðfangsefni mitt.
Ég tók viðtal við hana og pabba
hennar.
Eftir viðtalið fylgdist ég náið
með Völu og var staðráðin í að
gera heimildarmynd um hana.
Vala kynnti mig síðan fyrir Hrafn-
hildi og við vorum sammála um
að Hrafnhildur hentaði betur fyrir
myndina.
STRAX BYRJUÐ Á ANNARRI MYND
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir frumsýndi sína fyrstu heimildarmynd í vikunni um transkonuna Hrafnhildi. Myndin hefur vakið verðskuldaða
athygli og Ragnhildur að vonum ánægð með góð viðbrögð enda hefur myndin átt hug hennar og hjarta síðustu fjögur árin. Hægt verður að sjá
myndina í Bíói Paradís næstu daga. Lífið hitti þessa orkumiklu og duglegu konu og forvitnaðist um framtíðina á skjánum og fleira skemmtilegt.
Mind Xtra
fyrir konur eins og þig
Verð
1000 - 5000
Verslunin lokar
1. september
Allt á að seljast
M
Y
N
D
/E
LE
N
A
L
IT
S
O
VA
MYND/ELENA LITSOVA