Fréttablaðið - 10.08.2012, Blaðsíða 26
4 • LÍFIÐ 10. ÁGÚST 2012
Hvar og hvenær giftuð þið ykkur
og er ástæða fyrir dagavalinu?
Okkur finnst þetta svo sterk og fal-
leg tala, 30.06.12. Í minni fjölskyldu
eru nánast allir fæddir á dögum þar
sem dagsetningin er deilanleg með
þremur en aðallega eru þetta sam-
einaðir dagar okkar Rósu, ég er
fæddur 30.03 og hún 28.06. Svo
spilaði auðvitað inn í að auðvitað
varð þetta að vera laugardagur og
um sumar. Við giftum okkur í Hall-
grímskirkju og vinir og ættingjar fóru
bara býsna langt með að fylla hana.
Séra Bjarni Karlsson spurði hvort við
þekktum virkilega allt þetta fólk. Við
sögðumst ekkert vita hverjir þetta
væru.
Hvað hafið þið verið lengi
saman? Allt of lengi, ha ha! Nei,
í alvöru talað þá hófst samband
okkar í febrúar 2007 en kynnin ná
mun lengra aftur því við kynntumst
haustið 2003 þegar ég hóf störf á
innheimtusviði tollstjórans í Reykja-
vík en þar hafði Rósa þá starfað
um nokkurra ára skeið. Fólk skyldi
því fara varlega með að bölva toll-
inum svo sem oft er gert því þar
hefur fleira kviknað en kröfur um
aðflutningsgjöld og virðisaukaskatt.
Þar hefur sjálf ástin lagt á sína tolla
og gjöld sem seint verða greidd að
fullu.
Bubbi í brúðkaupinu
Hvaða lög tók Bubbi? Margar
helstu perlur ferils síns. Við höfð-
um lagt fram óskalista með þrem-
ur lögum sem við vildum endilega
heyra og hann tók tvö þeirra en
bætti svo við frá eigin brjósti. Hann
byrjaði þetta á Fallegur dagur og
gerði það virkilega vel eins og hans
er von og vísa en í kjölfarið fylgdu
Svartur afgan, Rómeó og Júlía, Stál
og hnífur og að lokum Borgarbarn
sem kannski ekki allir kveikja á strax
en er af plötunni Von frá 1992 og
með listagóðri suðrænni sveiflu sem
er kannski ekki alveg eitt af helstu
einkennum Bubba en kallaði fram
alveg gríðarlega stemningu í veisl-
unni.
Hvernig tengist Bubbi ykkur?
Bara eins og svo mörgum Íslend-
ingum, við erum harðir aðdáendur
og ég hef verið það allt frá því ég
var níu ára 1983 og hann nýkom-
inn af stað með feril sinn. Plöturnar
hans eru sennilega það sem er oft-
ast í spilaranum hjá okkur í stofunni
hérna heima í Sandnes. Við ákváð-
um fyrir meira en ári að reyna að
fá hann til að taka þetta að sér og
höfðum samband við umboðsskrif-
stofuna hans strax þá og hann var
til í þetta. Hans framlag gerði dag-
inn algjörlega ógleymanlegan og við
erum mjög þakklát.
Hvernig var svo brúðkaups-
veislan? Ég hef nú haldið nokkrar
veislurnar um ævina en ekkert hefur
heppnast svona svakalega vel. Það
er svo sem minnst mér að þakka,
ég sat bara hérna í Noregi og sendi
tölvupóst í allar áttir. Mestu munaði
um Árna Björnsson, eiganda Spot,
sem eiginlega gerði draum minn um
stóra og eftirminnilega veislu mögu-
legan. Kári Snær, bróðir minn, sem
er kokkur í Bláa lóninu, töfraði fram
hlaðborð sem hefði sómt sér í öllum
banka partýum ársins 2007 með
eða án Elton John og Jói Fel, minn
ágæti félagi úr stálinu í World Class
til margra ára, bakaði allt annað en
vandræði með því borgvirki af tertu
sem hann tefldi fram. Þá sá Heiðar
Ingi Svansson veislustjóri um að við
hjónin þyrftum ekki að gera neitt í
veislunni annað en slaka á og njóta
lífsins. Þarna komu rúmlega 200
manns og skemmtu sér alveg hreint
konunglega. Ég ætla rétt að vona
að jarðar förin mín verði annað eins
partý.
Líður vel í Noregi en sakna Íslands
Áður en við kveðjum þig – hvern-
ig er að búa í Noregi? Alveg yndis-
legt. Síðan við fluttum hingað í maí
2010 hefur leiðin legið nánast lóðrétt
upp á við. Við byrjuðum að skúra á
Háskólasjúkrahúsinu í Stavanger
og urðum bæði yfirmenn þar með
viðkomu á haustvertíð í sláturhúsi.
Núna, tveimur árum síðar, erum
við bæði fastráðin hjá fyrirtækj-
um innan norska olíuiðnaðarins þar
sem nóg verður að gera að minnsta
kosti þangað til við förum á eftirlaun
svo það er sennilega skynsamleg-
asti staðurinn að vera á. Við sökn-
um Íslands þó mikið og þótti mjög
vænt um þessar tvær vikur sem við
áttum á landinu kringum brúðkaup-
ið. Best var svo að koma til Noregs
aftur með fulla tösku af lifrarpylsu,
SS-pylsum og hangikjöti.
Bubbi og brúðhjónin bregða hornunum á loft eftir frábæra tónleika. Lifi rokkið! MYND/BRYNJAR SIGMUNDSSON.
MYND/BJÖRGVIN HILMARSSON
Séra Bjarni Karlsson fylgist
sposkur á svip með kossinum.
BUBBI GERÐI DAGINN
ÓGLEYMANLEGAN
Hjónin Rósa Lind Björnsdóttir
og Atli Steinn Guðmundsson létu
pússa sig saman laugardaginn
30. júní. Atli deildi með okkur
deginum sem var draumi líkastur.
MYND/SIGURBJÖRN
BJARNASON
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is Bir
t
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
l
nt
v
lu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
i
skás
k
r
ás
ki
lja
ilj
a
ilj
sé
r
ré
tt
t
le
il
le
ið
ré
t
ið
a
tin
g
a
á
sl
á
á
ík
u.
A
th
.
A
th
veve
að
v
er
ð
g
e
rðrð
tu
r
b
tu
r
ey
st
ey
st
re
ys
t
án
f
á
n
fyy
rvrvrvir
yr
irir
rarrara
a.a...a...aa
22. –31. október
Madeira er stundum nefnd „skrúðgarðurinn í Atlantshafinu“ enda með fádæmum gróður-
sæl og býr yfir einstökum náttúrutöfrum. Á eyjunni ríkir afar þægilegt loftslag allan ársins
hring. Innan um tilkomumikil fjöll, vínekrur, ávaxtagarða og fagran hitabeltisgróðurinn hafa
eyjaskeggjar skapað hina fullkomnu aðstöðu ferðamannsins. Í þessari sérferð verður dvalið
á góðu 4* hóteli skammt fyrir utan höfuðborgina. Fjölmargar spennandi kynnisferðir eru
innifaldar í verði ferðarinnar þar sem farþegar kynnast töfrum þessarar fallegu eyju.
Verð kr. 233.900 á mann í tvíbýli
Innifalið: Flug, skattar, gisting á 4* hóteli með hálfu fæði í 9 nætur, 5 kynnisferðir, akstur til og frá flugvelli
og íslensk fararstjórn. Miðað við lágmarksþátttöku 20 manns.
Madeira