Fréttablaðið - 10.08.2012, Síða 22

Fréttablaðið - 10.08.2012, Síða 22
FÓLK| PÖNKAÐ Á PATREKSFIRÐI Krakkafjör Mikið verður um að vera á Patreksfirði á morgun, laugardag, en þá verður svokallað Pönk á Patró haldið í fjórða sinn. Hátíðin fer fram í Sjóræningjahúsinu og það er hljómsveitin Prinspóló sem fetar þar í spor Pollapönks, Diktu og Amiinu sem komið hafa fram síðustu árin. Prinspóló verður með tónlistarsmiðju að deginum fyrir börn og unglinga og síðan tvenna tónleika. Fyrri tónleikarnir verða fyrir yngri kynslóðina en um kvöldið er 16 ára aldurstakmark. HELGIN Sif Jónsdóttir líffræðingur er ein af sex Íslendingum sem starfa við lyfjaeftirlit á Ólympíu- leikunum í London. Sif hóf störf í Ól- ympíuþorpinu 15. júlí og hóf strax undirbúning fyrir lyfjapróf sem fóru fram daginn eftir. Ólympíuþorpið var opnað 16. júlí fyrir keppendum en þar er stærsta lyfjaeftirlitsstöðin. „Á þeirri stöð prófum við íþróttamenn úr öllum keppnisgreinum í hálfan mánuð fyrir keppni en lyfjapróf eru tekin á kepp- endum bæði fyrir og eftir keppni.“ Vinnudagarnir eru langir og strangir á meðan á leikunum stendur og vinnur Sif sex daga vikunnar. „Starfsheiti okkar á Ólympíuleikunum er „Doping Control Officer“. Við sjáum um og berum ábyrgð á sýnatökuferlinu frá því að íþróttamaðurinn kemur inn í sýnatökuherbergið og þangað til öll sýni hafa verið innsigluð og pappírar frágengnir. Þetta er því talsvert langt og strangt ferli.“ Fyrir setningu Ólympíuleikanna starfaði Sif í Ólympíuþorpinu við lyfjaprófanir íþróttamanna áður en þeir hófu keppni. „Eftir að leikarnir byrjuðu vinn ég á aðalleikvanginum við lyfjaprófanir á frjálsíþrótta fólkinu. Vaktirnar hér eru langar, ýmist frá klukkan níu á morgnana til sex á daginn eða frá sex til tvö um nóttu, sex daga vikunnar.“ Hópurinn frá Íslandi mun meðal annars lyfjaprófa keppendur í hand- bolta, frjálsum íþróttum, sundi, körfu- bolta og sundknattleik. Stór hópur fólks frá öllum heims- hornum vinnur við lyfjaeftirlit á Ólympíuleikunum enda hafa skipu- leggjendur leikanna gefið út að fleiri lyfjapróf verði gerð á leikunum í ár en nokkru sinni fyrr. Sif segir að ein af ástæðunum fyrir því að London fékk leikana á sínum tíma hafi einmitt verið öflugra lyfja- eftirlit. „Hér vinnur svakalega stór hópur frá öllum heimsálfum og er Alþjóða- ólympíusambandið mjög ánægt með þessa fjölbreyttu flóru starfsmanna.“ Íslenski hópurinn býr, eins og aðrir sem starfa við lyfjaprófanir, á há- skólagörðum miðsvæðis í London og ferðast þaðan á keppnisstaðina. Fyrstu dagarnir í Ólympíu þorpinu voru rólegir að sögn Sifjar og segir hún varla sálu hafa verið á ferli. Síðustu dagana fyrir setningu leik- anna hafi hins vegar allt fyllst af keppendum og þjálfurum. „Ferða- mannastraumurinn jókst líka mikið hér í borginni síðustu dagana fyrir setninguna. Allar götur, lestarstöðvar og miðbærinn er fullur af fólki og allt skreytt fánum. Mér gafst meðal annars kostur á að sjá lokaæfinguna fyrir setningarhátíðina. Þar var mjög mikill mannfjöldi þannig að ég get rétt ímyndað mér hvernig þetta hefur verið eftir sjálfa athöfnina.“ Fyrir leikana átti Sif ekki von á að geta fylgst með nokkurri íþróttagrein enda þurfa starfsmenn að borga fullt verð eins og aðrir auk þess sem upp- selt var á margar keppnir. „Ég fékk þó miða á leik Íslands og Argentínu í handbolta. Ef það kemur síðan óvæntur frítími á meðan við erum að vinna megum við fara og horfa á. Vonandi sé ég þá eitthvað af keppn- inni í frjálsum íþróttum. Síðan mun ég fylgjast með maraþonhlaupinu á sunnudaginn sem er lokadagur hátíð- arinnar. Þar keppir Kári Steinn Karls- son á götum borgarinnar en þá hef ég einmitt lokið störfum.“ ■ starri@365.is LANGUR VINNUDAGUR Í ÓLYMPÍUÞORPINU EFTIRLITSMENN Öflugt lyfjaeftirlit er á Ólympíuleikunum í London. Sex Íslendingar vinna við eftirlit á leikunum og eru vinnudagarnir langir. LYFJAPRÓF Sif Jónsdóttir líffræðing- ur starfar við lyfjapróf- anir á Ólympíuleikunum í London. MYND/ÚR EINKASAFNI LITAFEGURÐ Opnunarhátíð Ólympíu- leikanna í ár var glæsi- leg. MYND/APF ÚTSÖLULOK Við erum á Facebook Fjögur verð 2 .000 3 .000 5 .000 7 .000 30 % afs lát tur a f nýjum vö rum FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir LITAFEGURÐ Allt snýst um Ólympíuleikana í London í sumar. MYND/APF

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.