Fréttablaðið - 10.08.2012, Síða 22
FÓLK|
PÖNKAÐ Á PATREKSFIRÐI
Krakkafjör
Mikið verður um að vera á Patreksfirði á morgun, laugardag, en þá
verður svokallað Pönk á Patró haldið í fjórða sinn. Hátíðin fer fram í
Sjóræningjahúsinu og það er hljómsveitin Prinspóló sem fetar þar í
spor Pollapönks, Diktu og Amiinu sem komið hafa fram síðustu árin.
Prinspóló verður með tónlistarsmiðju að deginum fyrir börn og
unglinga og síðan tvenna tónleika. Fyrri tónleikarnir verða fyrir yngri
kynslóðina en um kvöldið er 16 ára aldurstakmark.
HELGIN
Sif Jónsdóttir líffræðingur er ein af sex Íslendingum sem starfa við lyfjaeftirlit á Ólympíu-
leikunum í London. Sif hóf störf í Ól-
ympíuþorpinu 15. júlí og hóf strax
undirbúning fyrir lyfjapróf sem fóru
fram daginn eftir. Ólympíuþorpið var
opnað 16. júlí fyrir keppendum en þar
er stærsta lyfjaeftirlitsstöðin. „Á þeirri
stöð prófum við íþróttamenn úr öllum
keppnisgreinum í hálfan mánuð fyrir
keppni en lyfjapróf eru tekin á kepp-
endum bæði fyrir og eftir keppni.“
Vinnudagarnir eru langir og strangir
á meðan á leikunum stendur og vinnur
Sif sex daga vikunnar. „Starfsheiti
okkar á Ólympíuleikunum er „Doping
Control Officer“. Við sjáum um og
berum ábyrgð á sýnatökuferlinu frá
því að íþróttamaðurinn kemur inn í
sýnatökuherbergið og þangað til öll
sýni hafa verið innsigluð og pappírar
frágengnir. Þetta er því talsvert langt
og strangt ferli.“
Fyrir setningu Ólympíuleikanna
starfaði Sif í Ólympíuþorpinu við
lyfjaprófanir íþróttamanna áður en
þeir hófu keppni. „Eftir að leikarnir
byrjuðu vinn ég á aðalleikvanginum
við lyfjaprófanir á frjálsíþrótta fólkinu.
Vaktirnar hér eru langar, ýmist frá
klukkan níu á morgnana til sex á
daginn eða frá sex til tvö um nóttu,
sex daga vikunnar.“
Hópurinn frá Íslandi mun meðal
annars lyfjaprófa keppendur í hand-
bolta, frjálsum íþróttum, sundi, körfu-
bolta og sundknattleik.
Stór hópur fólks frá öllum heims-
hornum vinnur við lyfjaeftirlit á
Ólympíuleikunum enda hafa skipu-
leggjendur leikanna gefið út að fleiri
lyfjapróf verði gerð á leikunum í ár en
nokkru sinni fyrr.
Sif segir að ein af ástæðunum fyrir
því að London fékk leikana á sínum
tíma hafi einmitt verið öflugra lyfja-
eftirlit.
„Hér vinnur svakalega stór hópur
frá öllum heimsálfum og er Alþjóða-
ólympíusambandið mjög ánægt með
þessa fjölbreyttu flóru starfsmanna.“
Íslenski hópurinn býr, eins og aðrir
sem starfa við lyfjaprófanir, á há-
skólagörðum miðsvæðis í London og
ferðast þaðan á keppnisstaðina.
Fyrstu dagarnir í Ólympíu þorpinu
voru rólegir að sögn Sifjar og segir
hún varla sálu hafa verið á ferli.
Síðustu dagana fyrir setningu leik-
anna hafi hins vegar allt fyllst af
keppendum og þjálfurum. „Ferða-
mannastraumurinn jókst líka mikið
hér í borginni síðustu dagana fyrir
setninguna. Allar götur, lestarstöðvar
og miðbærinn er fullur af fólki og
allt skreytt fánum. Mér gafst meðal
annars kostur á að sjá lokaæfinguna
fyrir setningarhátíðina. Þar var mjög
mikill mannfjöldi þannig að ég get
rétt ímyndað mér hvernig þetta hefur
verið eftir sjálfa athöfnina.“
Fyrir leikana átti Sif ekki von á að
geta fylgst með nokkurri íþróttagrein
enda þurfa starfsmenn að borga fullt
verð eins og aðrir auk þess sem upp-
selt var á margar keppnir. „Ég fékk
þó miða á leik Íslands og Argentínu
í handbolta. Ef það kemur síðan
óvæntur frítími á meðan við erum
að vinna megum við fara og horfa á.
Vonandi sé ég þá eitthvað af keppn-
inni í frjálsum íþróttum. Síðan mun
ég fylgjast með maraþonhlaupinu á
sunnudaginn sem er lokadagur hátíð-
arinnar. Þar keppir Kári Steinn Karls-
son á götum borgarinnar en þá hef ég
einmitt lokið störfum.“ ■ starri@365.is
LANGUR VINNUDAGUR
Í ÓLYMPÍUÞORPINU
EFTIRLITSMENN Öflugt lyfjaeftirlit er á Ólympíuleikunum í London. Sex
Íslendingar vinna við eftirlit á leikunum og eru vinnudagarnir langir.
LYFJAPRÓF
Sif Jónsdóttir líffræðing-
ur starfar við lyfjapróf-
anir á Ólympíuleikunum
í London.
MYND/ÚR EINKASAFNI
LITAFEGURÐ
Opnunarhátíð Ólympíu-
leikanna í ár var glæsi-
leg. MYND/APF
ÚTSÖLULOK
Við erum á Facebook
Fjögur verð
2 .000
3 .000
5 .000
7 .000
30 % afs lát tur a f nýjum vö rum
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
LITAFEGURÐ
Allt snýst um
Ólympíuleikana í
London í sumar.
MYND/APF