Fréttablaðið - 03.09.2012, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 03.09.2012, Blaðsíða 20
ÓÐINSGÖTU 4 SÍMI 570 4500, OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17. Netfang: fastmark@fastmark.is - www.fastmark.is Jón Guðmundsson, sölustj. og lögg. fast.sali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fast.sali. SÉRBÝLI Vegna flutnings höfuðstöðva Ístaks hf. að Bugðufljóti 19, Tungumelum í Mosfellsbæ er þessi glæsilega skrifstofubygging til leigu eða sölu. Sjálf skrifstofubyggingin er 2.809,0 fm að stærð, þrjár hæðir og kjallari auk 1.051 fm bílakjallara. Fasteignin skiptist í móttöku, afstúkaðar skrifstofur og opin vinnurými, fundarsali, fyrirlestrarsal, tæknirými, skjalageymslur, eldhús með matsal o.fl. Húsið er byggt árið 2003 og er samstarfsverkefni á milli dönsku arkitektastofunnar KHR arkitektar og Arkís arkitekta. Byggingin er hönnuð sem opin, gegnsæ og gagnvirk bygging sem hvetur til samskipta fólks. Dagsbirta og árstíðirnar endurspeglast innanhúss í stórum gluggaflötum. Byggingin er vel staðsett miðsvæðis í Reykjavík og í góðum tengslum við Laugardalinn. Eignin getur verið laus til afnota fljótlega. GLÆSILEG SKRIFSTOFUBYGGING ENGJATEIGUR 7 – TIL LEIGU EÐA SÖLU Hrísholt – Garðabæ Fallegt 250,9 fm. einbýlishús á tveimur hæðum á fallegum útsýnisstað. Stórar samliggjandi stofur með frábæru útsýni yfir borgina, út á sjóinn og víðar. Sólskáli með útgangi á verönd með heitum potti. Baðherbergi nýlega endurnýjað. Þrjú stór herbergi auk fjölskyldurýmis. Ræktuð lóð með hellulagðri innkeyrslu og hitalögnum. Auðvelt er að útbúa 2ja herbergja íbúð á neðri hæð hússins. <B>Verð 59,0 millj. <BL> Unnarbraut - Seltjarnarnesi 320,2 fm. heil húseign með tveimur íbúðum á sunnanverðu Seltjarnarnesi. Eignin skiptist í 160,0 fm. 5 herbergja efri sérhæð ásamt 37,8 fm. geymslu á jarðhæð og 39,0 fm. bílskúr. Á neðri hæð er 83,3 fm. 3ja herbergja íbúð með sérinngangi. Frá efri hæð er frábært útsýni til suðurs og vesturs. Vel staðsett eign sem býður upp á mikla möguleika. Verð 67,0 millj. Holtagerði -Kópavogi. 221,0 fm. steiniklætt einbýlishús á tveimur hæðum að meðtöldum 60,0 fm. sambyggðum bílskúr. Stofa á tveimur pöllum, sólstofa/borðstofa, eldhús, fjögur herbergi og tvö baðher- bergi. Húsið hefur fengið gott viðhald. Fallegur skjólsæll garður í góðri rækt til suðurs með um 70 fm. verönd og tengi fyrir heitan pott. Hellulögð aðkoma. <B>Verð 45,9 millj.<BL> Ólafsgeisli Stórglæsilegt og afar vandað 240,1 fm. einbýlishús á tveimur hæðum á stórri og viðhalds- lítilli hornlóð á frábærum útsýnisstað í Grafarholtinu. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar. Mjög mikil lofthæð er á efri hæð hússins og innfelld lýsing í öllum loftum. Stórar samliggjandi stofur. Hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi innaf. Húsið er klætt með íslensku líbaríti. Falleg lýsing á lóð og húsinu að utan. Arkitekt hússins er Kristinn Ragnarsson og innanhússarkitekt er Ellen Tyler. Fallegt útsýni úr stofum yfir golfvöllinn og borgina. Verð 93,0 millj. Góðakur- Garðabæ Glæsilegt 454,2 fm. einbýlishús á frábærri endalóð. Lóðin er 963 fm. að stærð og nýtur útsýnis til sjávar og yfir óbyggt svæði. Eignin stendur neðan við götu og við óbyggt svæði á tvo vegu. Húsið skilast í núverandi ástandi, fullfrágengið að utan og með grófjafnaðri lóð. Aðalhæð hússins er 283,4 fm. og kjallari er 170,8 fm. að stærð og með fullri lofthæð. Mögulegt er að setja glugga á kjallara. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu. <B>Verð 92,0 millj. <BL> Móaflöt-Garðabæ Fallegt og vel staðsett 213,6 fm. einbýilshús með 50,4 fm. innbyggðum bílskúr. Húsið var nýlega stækkað og nánast algjörlega endurnýjað hið innra. Nýtt eldhús með vönduðum tækjum, bæði baðherbergi endurnýjuð, öll gólfefni og settur gólfhiti í húsið o.fl. Fjögur svefnherbergi. Ræktuð lóð og vísar til suðurs með útsýni út í hraunið. <B>Verð 66,9 millj.<BL> Byggðarendi Fallegt 270,6 fm. einbýlishús með aukaíbúð við Byggðarenda. Húsið er mikið endurnýjað. Aðalíbúðin skiptist m.a. í eldhús með eyju og vandaðri sérsmíðaðri innréttingu, stofu og borðstofu með útgengi í garð, hjónaherbergi með fataherbergi innaf, tvö barnaherbergi og flísalagt baðherbergi. Hiti í gólfum að hluta. Innfelld lýsing á erfi hæð. Sér íbúð á neðri hæð. Glæsilegur og sólríkur garður til suðvesturs. Stór verönd úr harðviði og heitur pottur. Verð 85,0 millj. Hverafold. Einbýlishús með aukaíbúð Reisulegt 275,5 fm einbýlishús á tveimur hæðum með 3ja herb. aukaíbúð á jarðhæð, innbyggðum bílskúr og stórum velheppnuðum suður garði. Húsið er vel viðhaldið og bíður upp á mikla möguleika.Stofur með mikilli lofthæð og útgengi á suðursvalir, eldhús með sérhannaðri innréttingu og fjögur herbergI auk séríbúðar á neðri hæð. Stutt í alla þjónustu, skóla og leikskóla. <B>Verð 68,0 millj.<BL> Steinás – Garðabæ. Fallegt, vel skipulagt og vel staðsett 144,5 fm. einbýlishús á einni hæð auk 50,0 fm. sérstæðs bílskúrs með mikilli lofthæð. Húsið stendur á fallegum stað neðst í Ásahverfinu við opið svæði með frábæru útsýni yfir hraunið. Mjög mikil lofthæð er í stofu og eldhúsi og innfelld lýsing í loftum. Rúmgóð stofa, stórt eldhús og fjögur svefnherbergi. Risloft er yfir hluta hússins, vel manngengt og nýtist sem vinnuaðstaða. Verð 63,0 millj. 4 - 6 HERB. Stigahlíð- neðri sérhæð ásamt bílskúr Vel skipulögð 149,4 fm. neðri sérhæð í nýviðgerðu þríbýlishúsi í Hlíðunum auk 28,5 fm. bílskúrs. Hæðin skiptist í forstofuherbergi gestasnyrtingu, eldhús, rúmgóða stofu/borðstofu með arni, þrjú herbergi á svefngangi og flísalagt baðherbergi. Suðursvalir út af hjónaher- bergi. Húsið er klætt að utan. Tröppur nýlega múraðar. Verð 39,9 millj. Ægisíða – efri hæð og ris Mjög falleg og vel skipulögð 150,0 fm. 5 herbergja hæð og ris í þessu fallega og reisulega húsi í vesturbænum. Björt stofa með miklum gluggum. Þrjú svefnherbergi. Stórar suðursvalir út af stofu og hjónaherbergi. Litlar grillsvalir út af eldhúsi. Kamína í stofu. Nýuppgert baðherbergi. Nýlegir þakgluggar í risi. Húsið var allt tekið í gegn að utan og steinað árið 2009. Verð 38,9 millj. Skaftahlíð – 4ra herbergja sérhæð ásamt bílskúr. Góð 114,8 fm. 4ra herbergja neðri sérhæð í Hlíðunum auk 21,5 fm. sérstæðs bílskúrs. Íbúðin er nokkuð upprunaleg hið innra, en í góðu ásigkomulagi. Þrjú herbergi. Stofa og borðstofa með útgengi á svalir til vesturs. Einnig litlar svalir til austurs út af hjónaherbergi. Svalir út af hjónaherbergi. Laus við kaupsamning. Verð 37,4 millj. Drápuhlíð – 4ra herbergja Falleg og vel skipulögð 73,6 fm. 4ra herbergja risíbúð, lítið undir súð. Rúmgott eldhús. Tvö herbergi. Baðherbergi nýlega endurnýjað. Rúmgóðar samliggjandi stofur. Auðvelt að breyta annarri stofunni í svefnherbergi. Geymsluris yfir íbúðinni.Raflagnir og tafla fyrir íbúðina eru nýleg. Laus til afhendingar fljótlega. Verð 26,9 millj. OPIÐ HÚS Á MORGUN, ÞRIÐJUDAG FRÁ KL. 17.00-18.00 Straumsalir 6 - Kópavogi. 5 herbergja með 4 svefnherbergjum. Mjög falleg 129,8 fm. 5 herbergja íbúð á 3. hæð í 5 íbúða húsi. Fjögur svefnherbergi. Björt stofa og borðstofa með útgangi á um 12 fm. svalir til suðvesturs. Opið eldhús með fallegum innréttingum úr mahony. Frá íbúðinni nýtur stórkostlegs útsýnis að Reykjanesi, til Snæfellsjökuls og víðar. Stutt í skóla, sundlaug og íþróttasvæði. Hús nýlega málað að utan. Verð 36,9 millj. Eignin verður til sýnis á morgun. Verið velkomin. Íbúð merkt 0302. Halldór og Anna á bjöllu. SUMARHÚS Heilsárshús í Vaðneslandi, Grímsnesi. Fallegt og vandað 55,5 fm. 4ra herbergja heilsárshús við Birkibraut, Grímsnesi. Húsið er byggt árið 1995 og stendur á 5.000 fm. birkivaxin eignarlóð .Þrjú svefnherbergi, eldhús, stofa, baðherbergi og geymsla. Góð verönd við húsið með heitum potti. Fallegt útsýni. Hitaveita á staðnum. Verð 18,9 millj. OP IÐ HÚ S
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.