Fréttablaðið - 03.09.2012, Blaðsíða 17
TÍMI FYRIR KERTALJÓS
September er skemmtilegur tími fyrir þá sem unna kerta-
ljósi. Þegar logn er að kvöldi er fallegt að kveikja á kertum,
setja í lugtir og lýsa upp pallinn eða svalirnar. Kertaljós skapa
rómantíska og róandi stemningu á ljúfum haustkvöldum.
Kristín Guðmundsdóttir kennari hefur undanfarið kennt fólki að búa til veski, töskur, skálar og fleira úr
tómum kaffipokum á námskeiðinu Nýju
fötin keisarans hjá Klifinu, Fræðslusetri.
„Ég byrjaði að kenna þetta í fyrravetur en
ég rakst inn á námskeið þar sem kona frá
Danmörku var að sýna þessa aðferð og
fannst þetta áhugavert. Hún var að búa
til töskur úr pokunum en ég hef þróað
hugmyndina frekar og hef búið til töskur,
buddur, skálar, skartgripi, nálapúða og
margt fleira,“ segir Kristín.
Hún segist sjálf hafa verið fljót að
ná aðferðinni sem notuð var, enda ekki
flókin. „Það er hægt að endurvinna
ýmislegt með þessum hætti. Það má til
dæmis nota poka utan af kartöfluflögum.
Senseo-kaffipokarnir eru tilvaldir því
þeir eru þunnir. Einnig má nota aðra
kaffipoka. Það er líka fallegt að blanda
ólíkum pokum saman en þá þarf að gera
það á smekklegan hátt. Þetta er ekki dýrt
efni en það er talsverð vinna í þessu.
Þetta er ljómandi aðferð til að endurnýta
eitthvað af því efni sem fellur til á hverju
heimili. Við drekkum flest kaffi og fleygjum
pokunum. Með þessu getum við minnkað
ruslið í heiminum. Við eigum að endurnýta
hluti, annars fyllum við heiminn af rusli.“
Kristín er 78 ára og hefur
kennt í meira en fimmtíu ár. „Ég
var rúmlega tvítug þegar ég varð
skólastjóri Húsmæðraskólans
á Staðarfelli. Þar kenndi ég
vefnað og ýmislegt bóklegt. Ég
hef víða komið við í kennslu og
kennt margt, svo sem bókband,
postulínsmálun, silfursmíði, keramik
og glerlist. Ég hef kennt hjá félagsstarfi
aldraðra í Kópavogi í mörg herrans ár.
Svo kenndi ég líka í Kvöldskóla Kópavogs
og kenni nú í Klifinu, fræðslusetri í
Garðabæ. Þar hef ég haldið tvö námskeið
og verð með það þriðja í þessari viku.
Það er gaman að umgangast fólk og það
eykur þroska og þekkingu að gera það,“
segir Kristín.
FÁ NÝTT HLUTVERK
UMHVERFISVÆNT Kristín Guðmundsdóttir leggur sitt af mörkum til að
minnka sorpið í heiminum. Hún heldur námskeið þar sem gamlir kaffipokar
eru endurnýttir og hinir ýmsu hlutir búnir til úr þeim.
UMHVERFISVÆNT
Kristín hefur breytt
gömlum kaffipokum í
eigulegustu hluti eins og
töskur, skálar, nálapúða
og fleira.
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 · Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 · Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 · laugardaga 12.00 - 16.00
12 mánaða vaxtalausar greiðslur*
Gerið gæða- og verðsamanburð
*3,5% lántökugjald
Ný sending
af hágæða
sængurverasettum
i
BOAS RAFDRIFNIR
Leður hægindasófar
og stólar
i
l
NÝT
T