Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.10.2012, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 02.10.2012, Qupperneq 15
ÞRIÐJUDAGUR 2. október 2012 15 Stefið hefur að undanförnu verið að finna þurfi fleiri aura, nú sé komið að því að skattleggja ferða- þjónustuna frekar. Við því er kannski ekkert að segja. Ef þörf er á að fá aukið fé í kassann, og fá erlenda ferðamenn til að skilja meira eftir sig, þá er aukin skatt- lagning á ferðaþjónustuna áreið- anlega leið að því marki. Klasse statt Masse, eins og Þjóðverjar segja. Ég sé þó ekki betur en að skatt- mann sé á villigötum bæði varð- andi hækkun virðisaukaskatts í gistingu og í bílaleigumálum. Þar eru nefnilega ferðamenn að greiða skatt sem nýtist ein- hverjum öðrum, burtséð frá því að sumir ferðamenn falla ekki undir notendur þessarar þjónustu. Hin hliðin sem rædd hefur verið er að gjald verði lagt á heimsóknir á vinsæla ferðamannastaði, sbr.: „þeir borga sem njóta“. Það er snöggtum skynsamlegra heldur en hækkun virðisaukaskatts hér og þar. En þá myndu einnig margir sleppa við að leggja sitt af mörkum, einfaldlega með því að heimsækja ekki þessa vinsælu staði og beina umferð sinni frekar um viðkvæm og óskipulögð svæði. Og ekki má gleyma öllu hringlinu í kringum gjaldheimtuna. Allt Ísland með sínum fjöl- breytileika í náttúru og sínum miklu víðáttum er í raun ígildi þjóðgarðs. Ef nauðsyn krefur er skynsamlegast að rukkað sé fyrir aðgang að þessu þjóðgarðsígildi – „þeir borga sem njóta“. Það verður eingöngu gert með komuskatti til Íslands á alla flug- og skipafar- þega. Það sem með því vinnst er tiltölulega einföld og sanngjörn skattheimta, þó svo að ekki teljist allir til ferðamanna sem sækja landið heim. Slíkan skatt mætti að auki nota til að jafna árstíða- sveifluna í komu ferðamanna, og hafa hann lægri að vetri en sumri. Eins hvetur þetta til lengri dvalar í landinu, þar sem upphæðin er sú sama hvort sem dvalið er lengur eða skemur. Ég hef alla tíð verið mótfall- inn aukinni skattheimtu á erlenda ferðamenn, fundist þeirra hlut- deild í greiðslu virðisaukaskatts á allar vörur vera nógur skerfur til okkar samfélags. En ef mark- visst á að gera Ísland dýrara fyrir ferðamenn, þá er þetta leiðin; skatturinn sem Össur reifaði fyrst fyrir hartnær fjórum árum sem atvinnuvegaráðherra og var al- farið hafnað af ferðaþjónustunni. Svo lengi má hnoða leir að hann verði meyr. Á þessu þingi liggur nú fyrir að nýju frumvarp til umferðar- laga, sem er lagt fram af innanríkis- ráðherra, en það hefur verið í far- vatninu um nokkurt skeið. Tímabært hefur verið að endurskoða fyrri lög sem eru frá árinu 1987 með síðari breytingum og hefur nýtt frumvarp fengið umsagnir fjölmargra aðila og fer nú í umfjöllun í nefndum þingsins í framhaldi. Nokkurra breytinga er að vænta sem ekki hafa fengið mikla um- fjöllun. Eitt eru sektarákvæði og umfang slíkra sem innanríkis- ráðherra sjálfur tæpir á í pistli í Morgun blaðinu síðastliðna helgi. Þar fjallar hann um tekjutengingu sekta við umferðarlagabrotum sem væntan lega verður fjörug umræða. En það sem ég ætla að ræða eru ákvæði um mat á aksturshæfni ein- staklinga af hálfu lækna og þá sér- staklega nýtt ákvæði um sérstakan trúnaðarlækni Umferðarstofu. Þetta ákvæði sætir nokkrum tíð- indum og hefur Læknafélag Íslands meðal annars sent tvívegis umsögn sína um þetta frumvarp árin 2010 og 2011 til nefndarsviðs Alþingis, en ekki hefur mér vitanlega verið óskað eftir áliti félagsins nú, enda harla ólíklegt að það breytist mikið. Í lögunum stendur orðrétt í 61. grein: „Komi fram upplýsingar við meðferð sjúklings á sjúkrastofnun eða hjá heimilislækni um verulega skerta hæfni viðkomandi til aksturs skal gera trúnaðarlækni Umferðar- stofu viðvart án tafar. Stendur þagn- arskylda læknis því ekki í vegi. Eins fljótt og unnt er skal trúnaðarlæknir óska eftir því að hlutaðeigandi gang- ist undir læknisrannsókn þar sem metnir eru þeir þættir sem áhrif hafa á aksturshæfni viðkomandi.“ Hér er verið að gera læknum skylt að tilkynna skjólstæðinga sína til trúnaðarlæknis Umferðar- stofu og setja lækna í ákveðið eftir- litshlutverk með almannahags- munum. Hafa læknar áhyggjur af því að það grafi undan trúnaðar- sambandi milli læknis og sjúklings. Slíkt hefur verið sannreynt í rann- sóknum, meðal annars nú nýlega í grein í læknatímaritinu New Eng- land Journal of Medicine. Í reglugerð nr. 830/2011 koma fram þær læknisfræðilegu lágmarks- kröfur sem gerðar eru til þeirra sem ætla að stjórna vélknúnu ökutæki. Þær eru býsna ítarlegar og leyfi ég mér að efast um að eftir þeim sé farið í hvívetna hérlendis. Það er til dæmis óheimilt að endurnýja eða gefa út ökuleyfi fyrir þá sem eru háðir ávana- og fíknilyfjum eða nota þau að staðaldri, en mjög stór hópur notar slík lyf, þá einnig ávanabindandi lyf líkt og róandi eða svefnlyf og undir sama flokk falla þeir sem eru háðir áfengi. Sjúklingar með alvarlegar hjartsláttartruflanir og hjartakveisu eiga ekki að fá leyfi svo og sjúk lingar með vissar tegundir flogaveiki og alvarlegri stig sykursýki með ítrek- aðri blóðsykur lækkun. Þetta er fyrir utan þá sem sökum hrumleika og hreyfiskerðingar hafa ekkert undir stýri að sækja. Samkvæmt frumvarpi til laga myndi þetta þýða að læknar á Vogi þyrftu að innkalla ökuleyfi sjúk- linga sinna með því að vísa einstak- lingunum til trúnaðarlæknis Umferðar stofu. Hjartalæknar yrðu að taka afstöðu til ökuleyfis með sama hætti og svona mætti lengi telja. Það getur varla verið markmið laganna að í raun svipta svo stóran hóp fólks ökuréttindum, eða hvað? Margir telja að ökuréttindi jafn- gildi mannréttindum og er áhuga- verð sú togstreita sem myndast þegar einstaklingur er metinn óhæfur af heilsufarsástæðum. Það er þó mikil- vægt að hafa góðan ramma og skýrar leikreglur varðandi ökuleyfisveit- ingu og sviptingu sem læknar geta og eiga að fylgja. Umræðu er þörf um þetta mikilvæga málefni og undirrit- aður sem trúnaðarlæknir Umferðar- stofu telur að ekki séu öll kurl komin til grafar enn þá. Ef nauðsyn krefur er skynsamlegast að rukkað sé fyrir aðgang að þessu þjóðgarðsígildi – „þeir borga sem njóta“. Teitur Guðmundsson læknir HEILSA Umferðarlög, aksturshæfni og læknisvottorð Samkvæmt frumvarpi til laga myndi þetta þýða að læknar á Vogi þyrftu að innkalla ökuleyfi sjúklinga sinna … Ferðaþjónustuskattar: Tillaga við stef Ferðaþjónusta Jón Baldur Þorbjörnsson rekur fyrirtæki í ferðaþjónustunni

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.