Fréttablaðið - 02.10.2012, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 02.10.2012, Blaðsíða 26
2. október 2012 ÞRIÐJUDAGUR22 BAKÞANKAR Kolbeins Óttarssonar Proppé ■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Overli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes LÁRÉTT 2. læra, 6. eftir hádegi, 8. málmur, 9. gilding, 11. karlkyn, 12. bani, 14. yfir- stéttar, 16. frá, 17. skammstöfun, 18. hár, 20. tveir eins, 21. leiktæki. LÓÐRÉTT 1. tilraunaupptaka, 3. tveir eins, 4. eyja í Miðjarðarhafi, 5. rölt, 7. vatnafló, 10. tímabil, 13. spor, 15. þekking, 16. for, 19. tveir eins. LAUSN LÁRÉTT: 2. lesa, 6. eh, 8. eir, 9. mat, 11. kk, 12. ólífi, 14. aðals, 16. af, 17. rek, 18. ull, 20. yy, 21. róla. LÓÐRÉTT: 1. demó, 3. ee, 4. sikiley, 5. ark, 7. halafló, 10. tíð, 13. far, 15. skyn, 16. aur, 19. ll. Yester I was at this parteeeey. Ye knows! Biaaatches and hooos in tha house knowsw- hati´msayin! Spill it dog! Spill it! The suddenly daddy niggah comes home! Ye know! Tell us to fuck off. Know- hati´msayin? Downer, dog! Downer! True that, dog! True that I was like what the fuck´ma Smá upplýsingar! Þið eruð HVÍTIR! Búið í raðhúsi! Í Noregi! og mamma þín var að kalla á þig í mat, Tobías! Fuckthashit! Who´s that niggah? That´s just the eh „pabbi Jóa´niggah ... Ye know.... Ég heyrði lag í dag sem mér fannst mjög gott. Það hljómaði ein- hvern veginn svona: Babba da víí dú... Geturðu fundið það fyrir mig? Kannski. Hvar heyrð- irðu það? Á rokk- stöðinni? Í gervihnatta- útvarpinu? iTunes? Á karlakló- settinu á Hamborg- arabúll- unni. Ég gerði þetta ekki! Þetta er ekki mér að kenna! Hver, ég? Þetta var slys! Hljómar nokkuð af þessu vel? Ég myndi velja „Hver, ég?“ og vona það besta. Haustið Ljósmyndasamkeppni Fréttablaðsins Taktu þátt í ljósmyndakeppni Fréttablaðsins um haustið. Sendu inn mynd sem tengist haustinu með einum eða öðrum hætti og þú gætir unnið 22” Philips LED sjónvarp. Skilafrestur á myndunum er til hádegis þann 3. október. Vinningsmyndin verður á forsíðu Fréttablaðsins þann 6. október en vinningshafi fær að auki 22” Philips LED sjónvarp frá Heimilistækjum. Leikhúsmiðar fyrir tvo í Borgarleikhúsið koma í hlut annars og þriðja sætis. Sendu inn mynd á ljosmyndakeppni@frettabladid.is 2012 ht.is Oft er sagt að fyrsta fórnarlambið í stríði sé sannleikurinn. Það má til sanns vegar færa og á við í fleiri tilvikum en beinhörðum stríðsátökum. Raunar má segja að afskaplega margt í mannlegri til- veru byggi á því að hnika sannleikanum til, skreyta og fegra. Við þykjumst betri í einhverju en við erum, hissa á einhverju sem við bjuggumst við eða gumum af því á Facebook að hafa sko vel vitað eitthvað á undan öllum öðrum sem enginn gat vitað með vissu. Svo er það blessuð pólitíkin. NÚ er sá tími að fara í hönd að stjórn- málamenn þurfa á okkur kjósendum að halda. Ekki verður lengur fram hjá því horft að við erum þjóðin og þingmenn eru í vinnu hjá okkur. Við höldum fram- tíðarþráðum þeirra í höndum okkar. Og nú þarf að sannfæra okkur um að þeir séu þeir réttu til að starfa í okkar þágu á Alþingi. Og þá má sannleikurinn fara að vara sig. ÞAÐ er nefnilega lenska, í það minnsta hér á landi og líklega mun víðar, að grípa til þeirra ráða til að fegra eigin hlut að ófegra ann- arra þátt. Þannig munu stjórnar- flokkarnir segja okkur að allt fari fjandans til taki stjórnar- andstöðuflokkarnir við völdum. Þeir munu guma sig af glæstum árangri stjórnarinnar og reyna að sann- færa kjósendur um að heill landsins felist í áframhaldandi völdum þeirra. Stjórnar- andstaðan mun hins vegar lýsa því fyrir okkur hvernig allt er á vonarvöl – gott ef ekki verra en við hrunið – og landið muni ekki rísa fyrr en hún, einmitt hún, komist að stjórnvölum. OG við þessa iðju mun blessaður sann- leikurinn verða heldur framlágur. Hrein- skilnin, einlægnin, mun þurfa að snúa sér að öðru. Þess í stað verður mannleg til- vera smættuð niður í einföld kosningalof- orð í auglýsingastíl svo kjósendur vita vart hvort þeir eru að velja sér fulltrúa á þing eða kaupa sér þvottaefni. Kannski sitt lítið af hvoru. MANNSKEPNAN getur búið til mögnuð tækniundur, sótt út í geim og inn í smæstu örverur. Henni virðist hins vegar ganga illa að koma sér upp kerfi sem byggir á heiðarleika, upplýsingum og þeirri ein- földu kennisetningu sem öllum er einhvern tímann kennd á lífsleiðinni: Ekki ljúga. KÆRI frambjóðandi. Þegar þú reynir að fá atkvæði mitt, segðu mér þá bara satt. Segðu mér ef þér mistókst einhvers staðar eða hvað gekk vel og taktu ábyrgð á brest- um þínum. Það eykur líkurnar á því að þú fáir mitt atkvæði til muna. Sannleikur í hættu

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.