Fréttablaðið - 02.10.2012, Side 29
ÞRIÐJUDAGUR 2. október 2012 25
Bækur ★★ ★★★
Með góðu eða illu
Elsebeth Egholm
Mál og menning
Of margt slæmt og of fátt gott
Dicte Svensson er blaðamaður og skrifar um glæpi. Hún á sér ýmis
leyndarmál úr fortíðinni sem hún þarf að takast á við á meðan hún reynir
að komast til botns í glæpamáli sem snertir hana sjálfa. Francesca Olsen er
í framboði til borgarstjóra Árósa og einnig hún
glímir við fortíðina sem hefur bankað upp á með
tilheyrandi vandræðum.
Raunar má segja að fortíðin og þau leyndar-
mál sem hún geymir sé gegnumgangandi þema í
bókinni Með góðu eða illu eftir Elsebeth Egholm.
Hún snýst öðrum þræði um uppgjör og hvernig
gamlar syndir hverfa ekki fyrr en horfst hefur
verið í augu við þær og ábyrgð tekin á gjörðum
sínum. Egholm tekst ágætlega að búa til flókna
fléttu þar sem ofið er saman þráðum fortíðar og
nútíðar. Flækjan kemur hins vegar niður á fram-
vindu sögunnar.
Gallinn við bókina er hve Egholm teygir
lopann. Lesendum er haldið volgum, litlum
upplýsingamolum hent til þeirra en um leið og
eitthvað virðist vera að skýrast er sögunni vikið
annað. Slíkur frásagnarmáti gæti gengið ágætlega upp, en í þessu tilviki
vantar um of á spennuna. Egholm tekst einfaldlega ekki að kveikja forvitni
hjá lesendum til að sagan sé gleypt í sig og hinum fjölmörgu spurningum
svarað. Þá gerir bókin um of ráð fyrir að lesandinn þekki forsöguna og hafi
lesið fyrri bækur um Dicte Svenson.
Aðalpersónur bókarinnar eru haganlega saman settar, en höfundur mætti
þó kafa dýpra í margar þeirra. Sagan ber keim af því að vera hluti af stærra
höfundaverki um sömu persónur og fleiri bækur þurfi til að skilja þær til
fulls.
Að því sögðu er bókin haganlega skrifuð, en flókin tengsl og vísanir
í fortíðina vega ekki upp á móti því að aðalatriðið í spennusögu, sjálfa
spennuna, vantar. Kolbeinn Óttarsson Proppé
Niðurstaða: Ágætlega skrifuð saga en skortir á spennuna.
Ný ávöxtunarleið með stighækkandi vöxtum
Sparnaður: Vaxtaþrep 30 dagar
Vaxtaþrep 30 dagar er nýr bundinn óverðtryggður innlánsreikningur og hækka
vextirnir í þrepum eftir fjárhæð innistæðunnar.
Þú getur stofnað Vaxtaþrep 30 dagar í Netbankanum eða í næsta útibúi Íslandsbanka.
Nánari upplýsingar á islandsbanki.is
Ársvextir skv. vaxtatöflu 22.09.12: Vextir eru stighækkandi eftir innstæðu.
Ný
sparnaðarleið
Úttektir af reikningnum þarf að til-
kynna með 30 daga fyrirvara en á móti
eru vextirnir hærri en á almennum
óbundnum innlánsreikningum og eru
þeir greiddir út mánaðarlega inn á
ráðstöfunarreikning að eigin vali.
Vaxtaþrep 30 dagar hentar því þeim
sem vilja örugga og háa ávöxtun en
jafnframt að innistæðan sé laus með
skömmum fyrirvara.
0–5 m.kr. 5–20 m.kr. 20–75 m.kr. +75 m.kr.
3,8%
4,1%
4,4%
4,7%
5,0%
4,5%
4,0%
3,5%
3,0%
www.sena.is/elly
HEIÐURSGESTIR
Raggi Bjarna,
Jón Páll Bjarna
son
og Guðmundur
Steingrímsson
FRÍTT
NIÐURHAL
SÆKTU
NÝJU ÚTGÁFUNA
AF VEGIR LIGGJA
TIL ALLRA ÁTTA
ÓKEYPIS Á TÓNLIST.IS
FORSALA
TÓNLEIKAGESTIR
GETA TRYGGT SÉR
ÆVISÖGU ELLYJAR
Í FORSÖLU Á
TÓNLEIKUNUM
MIÐASALA Á MIÐI.IS, Í SÍMA 540-9800 OG
VERSLUNUM BRIM LAUGAVEGI OG KRINGLUNNI
UPPSELT Í A+ OG C SVÆÐI. ÖRFÁIR LAUSIR MIÐAR Í A OG B SVÆÐI.
KOMDU MEÐ Í ÓGLEYMANLEGT FERÐALAG TIL GULLALDARÁRANNA
OG UPPLIFÐU ELLY Í MÁLI OG MYNDUM, LJÓSLIFANDI MINNINGUM SAMFERÐARFÓLKSINS
OG AUÐVITAÐ TÓNLISTINNI SEM HÚN GAF OKKUR ÖLLUM.
TÓNLEIKAR ÁRSINS ERU HANDAN VIÐ HORNIÐ
ANDREA GYLFADÓTTIR · DIDDÚ · EIVÖR · ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR · GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
KRISTJANA STEFÁNSDÓTTIR · LAY LOW · RAGGA GÍSLA · SIGGA BEINTEINS
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON · EGILL ÓLAFSSON · GISSUR PÁLL GISSURARSON · STEFÁN HILMARSSON
Orð skulu standa, heldur áfram
göngu sinni í Þjóðleikhúskjallar-
anum í vetur og er fyrsta sýn-
ing á fimmtudagskvöld. Sýning-
in spratt upp úr útvarpsþáttum
Karls Th. Birgissonar sem færði
þá yfir á svið er þeir voru teknir
af dagskrá Rásar eitt. Karl Th. er
umsjónarmaður sem fyrr á sýn-
ingunni þar sem gestir eru spurð-
ir um merkingu orða. Fyrstu
gestir vetrarins eru Björn Jör-
undur Friðbjörnsson og Jóhanna
Vigdís Arnardóttir. Þeim til full-
tingis eru fastir leikarar í sýn-
ingunni, Sólveig Arnarsdóttir og
Guðmundur Steingrímsson. Um
lifandi hljóðfæraleik og ýmsa
aðra tjáningu sér Jakob Frímann
Magnússon.
Orð skulu standa
aftur á svið