Fréttablaðið - 23.11.2012, Side 4
23. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
SAMFÉLAGSMÁL Undir búningur
fyrir árlega jólaúthlutun er
hafin hjá Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur. Í jólaglaðningnum
er úthlutað mat og öðrum varn-
ingi sem tilheyrir jólahaldi.
Sækja þarf sérstaklega um
jólaglaðninginn hjá Mæðra-
styrksnefnd Reykjavíkur
að Hátúni 12b. Opið er fyrir
umsóknir þriðjudaginn 27.
nóvember klukkan 10-14,
fimmtudaginn 29. nóvember
klukkan 10-12, mánudaginn 3.
og þriðjudaginn 4. desember
klukkan 10-14 og fimmtudaginn
6. desember klukkan 10-12.
Úthlutað verður í Fosshálsi
7, þar sem áður voru Bifreiðar
og landbúnaðarvélar, 19., 20. og
21. desember klukkan 10-12 og
13-16. Þangað gengur Strætó,
leiðir 15 og 19.
Mæðrastyrksnefnd:
Sækja þarf um
jólaúthlutun
Veðurspá
Sunnudagur
Strekkingur sums staðar
NV-lands annars hægari.
ÚRKOMA verður á víð og dreif um landið í dag og á morgun en svo léttir til
sunnan lands á sunnudag. Heldur kólnar í veðri næstu daga og má búast við hálku víða
um land.
2°
11
m/s
3°
0
m/s
2°
7
m/s
5°
7
m/s
Á morgun
Strekkingur með
SA-strönd annars hægari.
Gildistími korta er um hádegi
1°
0°
0°
0°
-1°
Alicante
Basel
Berlín
18°
11°
7°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
7°
9°
11°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
7°
7°
24°
London
Mallorca
New York
11°
19°
12°
Orlando
Ósló
París
20°
7°
10°
San Francisco
Stokkhólmur
18°
6°
3°
3
m/s
5°
3
m/s
3°
4
m/s
3°
4
m/s
2°
4
m/s
2°
4
m/s
-3°
4
m/s
1°
0°
2°
3°
1°
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
EVRÓPUMÁL Fulltrúar Bændasam-
takanna gengu nýverið út af fundi
starfshóps sem ætlað er að móta
samningsafstöðu Íslands í landbún-
aðarmálum í aðildarvið ræðunum
við Evrópusambandið (ESB).
Ástæðan er sú að Sigurgeir
Þorgeirsson, ráðuneytisstjóri í
atvinnuvegaráðuneytinu og for-
maður starfshópsins, lýsti því yfir
á fundinum að í samningsafstöðu
Íslands yrði ekki krafist áfram-
haldandi tollverndar fyrir land-
búnaðarvörur frá ríkjum ESB.
Bændasamtökin hafa áður kynnt
svokallaðar varnarlínur sínar í
tengslum við viðræðurnar, en ein
þeirra er að áframhaldandi toll-
vernd verði tryggð.
Frá þessu var greint á vef-
síðu Neytendasamtakanna sem
eiga sömuleiðis fulltrúa í starfs-
hópnum. Gagnrýna samtökin full-
trúa bænda fyrir gjörninginn og
benda á að Bændasamtökin verði
að gera sér grein fyrir því að
þau séu ekki einráð þegar komi
að samningsafstöðu Íslands í
landbúnaðarmálum. Þannig verði
einnig að gæta að hagsmunum
neytenda, sem og annarra hags-
munaaðila.
Þá segja Neytendasamtökin
alveg ljóst að krafa um áframhald-
andi tollvernd landbúnaðarvara sé
með öllu óraunhæf.
Hins vegar sé líklega hægt
að koma til móts við sérstakar
aðstæður íslensks landbúnaðar á
annan hátt, svo sem með beinum
stuðningi úr landbúnaðarsjóði ESB
og ríkissjóði Íslands. - mþl
Bændasamtökin sögð hafa uppi einræðistilburði við mótun samningsafstöðu í landbúnaðarmálum:
Bændur mótmæla afstöðu í ESB-viðræðum
LANDBÚNAÐUR Bændasamtökin vilja
að Ísland krefjist þess að tollar verði
áfram lagðir á landbúnaðarvörur frá
ESB í aðildarviðræðum. Aðrir hags-
munaaðilar telja það óraunhæft með
öllu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 224,3673
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,14 126,74
201,21 202,19
162,21 163,11
21,746 21,874
22,111 22,241
18,818 18,928
1,5246 1,5336
192,57 193,71
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
22.11.2012
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Nýr sportjeppi á hrikalega góðu verði
Dacia Duster
Kr. 3.990 þús.
GROUPE RENAULT / NISSAN BL. ehf / Sævarhöfða 2
110 Reykjavík / Sími 525 8000
www.dacia.is
Dísil 5,3L/100 km
HALDIÐ TIL HAGA
Í fréttaskýringu um sölu- og markaðs-
mál í íslenskum sjávarútvegi í Mark-
aðnum, sérblaði Fréttablaðsins, á
miðvikudag fórst fyrir að geta heimilda
í tveimur skýringamyndum. Upp-
lýsingarnar voru fengnar úr fyrirlestri
Kristjáns Hjaltasonar, formanns Sjávar-
útvegsráðstefnunnar, á Sjávarútvegs-
ráðstefnunni 8. nóvember. Í fyrirlestr-
inum gaf Kristján yfirlit yfir íslenskan
sjávarútveg 2012 og heimsafla.
SAMFÉLAGSMÁL Nokkur mál koma
upp hér á landi á hverju ári þar sem
grunur leikur á að fólk sem segist
foreldrar barns sé það ekki. Útlend-
ingastofnun leitar ekki sérstaklega
að málum sem þessum og grunar að
tilvikin séu mun fleiri.
„Þau mál sem detta inn á borð til
okkar án þess að við séum að leita
að þeim segja okkur að við verðum
að taka á þessu,“ segir Kristín Völ-
undardóttir, forstjóri Útlendinga-
stofnunar.
„Við sendum tuttugu vottorð úr
landi árið 2008 til eins ríkis og það
tók tvö og hálft ár að fá niðurstöðu.
Þá kom í ljós að helmingur skjal-
anna var falsaður,“ segir Kristín.
Verið er að leita leiða til að einfalda
DNA-rannsóknir vegna vafasams
ætternis erlendra barna.
Kristín segir að slíkt sé nauðsyn-
legt vegna mála þar sem grunur
vaknar um að blóðtengsl barns og
meintra foreldra þess séu ekki til
staðar þrátt fyrir skilríki þar um.
Eins og staðan er núna kostar blóð-
rannsókn 190 þúsund krónur og
fólkið sem er rannsakað þarf að
borga kostnaðinn.
„Við erum að skoða hvort það séu
aðrar leiðir færar í þessu. Vegna
þessa gífurlega kostnaðar og skorts
á mannskap þá höfum við ekki gert
þessa kröfu, þrátt fyrir ábendingar
um að skjöl séu ekki í lagi,“ segir
Kristín. Ef skjöl, sem skilað er inn
til Útlendingastofnunar, eru ekki
fullnægjandi er börnum sem hingað
koma synjað um dvalarleyfi.
Margrét Steinarsdóttir, fram-
kvæmdastýra Mannréttindaskrif-
stofu Íslands, segir nokkur mál hafa
komið á borð stofnunarinnar þar
sem komið hefur í ljós við komuna
hingað til lands að gögn um ættar-
tengsl erlendra barna hafa verið
fölsuð. Dæmi eru um að börn hafi
leitað til kerfisins vegna misnotkun-
ar af hálfu forráðamanna sinna eftir
að hafa dvalið hér á landi í nokkurn
tíma. Í þeim tilvikum hafa barna-
verndaryfirvöld eða aðrir opinberir
aðilar haft afskipti af málunum og
komið þeim áfram til Margrétar,
bæði í tíð hennar hjá Alþjóðahúsi og
svo hjá Mannréttindaskrifstofu.
„Í Alþjóðahúsi höfðum við
nokkrum sinnum samband við
barnaverndaryfirvöld vegna barna
í vafasamri stöðu,“ segir hún. „Svo
leitaði fólkið stundum til okkar
þegar búið var að koma upp um það,
til að reyna að fá hjálp við að halda
barninu.“
Margrét segir aldur barnanna
sem koma hingað til lands á
fölskum forsendum mismunandi.
Yfirleitt séu þau ung, tveggja eða
þriggja ára, en sum enn stálpaðri.
Hún man eftir þremur til fjórum
löndum sem börnin hafa komið frá.
thorunn@frettabladid.is
sunna@frettabladid.is
Telur að fjöldi barna dvelji
ólöglega á Íslandi í dag
Útlendingastofnun leitar leiða til að auðvelda DNA-greiningar vegna vafasams ætternis erlendra barna. Leitar
ekki uppi mál til skoðunar. Nokkur mál hafa ratað til Mannréttindaskrifstofu er varða misnotkun á börnum.
TEKIÐ Á FÖLSKUM FORSENDUM Útlendingastofnun leitar ekki sérstaklega uppi
mál þar sem talið er að fólk hafi komið með börn inn í landið á fölskum forsendum.
NORDICPHOTOS/GETTY
KRISTÍN VÖLUND-
ARDÓTTIR
MARGRÉT
STEINARSDÓTTIR
AKUREYRI
Varpa vegum á milli
Bæjarráð Akureyrar kveðst mótmæla
harðlega ákvörðun Vegagerðarinnar
um að hluti Borgarbrautar, Hlíðar-
brautar og Hlíðarfjallsvegar og hluti
Hjalteyrargötu, Silfurtanga og
Laufásgötu falli ekki undir skilgreinda
þjóðvegi og hyggist þar með hætta
að greiða fyrir viðhald og þjónustu á
þessum vegum.