Fréttablaðið - 23.11.2012, Page 6
23. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
Tilboð: 1.590 þús.
Chevrolet Lacetti Station - Bílalegubíll í ábyrgð
árgerð 2011 - söluverð: 1.800 þús.
Bílabúð Benna - Notaðir bílar
Opið alla virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga frá kl. 12-16
25.910 kr.
Afborgun á mánuði aðeins:
Chevrolet Lacetti Station
1.800.000 kr.
210.000 kr.
240.000 kr.
1.590.000 kr.
25.910 kr.
Söluverð:
Okkar hlutur:
Þín útborgun:
Heildarverð til þín:
Afborgun:
*
Auk
aga
ngu
r 60
þú
s.
virð
isau
ki
Sjálfsvígsárás kostar 23 lífið
1 Sjálfsvígsárásarmaður varð að minnsta kosti 23 að bana og særði um 60 manns þegar hann sprengdi sig í loft upp skammt frá Islamabad, höfuð-
borg Pakistans. Átta börn voru meðal hinna látnu og særðu. Fórnarlömbin
voru sjía-múslímar, en hópur pakistanskra talibana lýsti yfir ábyrgð á árásinni.
„Við eigum í trúarstríði við sjía,“ sagði Ahsanullah Ahsan, talsmaður talibana,
sem eru súnní-múslímar. „Þeir guðlasta. Við munum halda áfram árásum á þá.“
Fyrrverandi forsetafrú eftirlýst
2Alþjóðlegi sakadómstóllinn í Haag krefst þess að Simone Gbagbo, eiginkona fyrrverandi forseta Fílabeinsstrandarinnar, verði framseld til
Hollands. Þar þarf hún að svara fyrir sakir um margvíslega glæpi gegn mann-
kyni, meðal annars morð, nauðganir og ofsóknir. Eiginmaður hennar, Laurent
Gbagbo, var handtekinn árið 2011 og framseldur til Haag, þar sem hann sætir
ákærum fyrir glæpi gegn mannkyni, fyrstur þjóðhöfðingja. Stjórnvöld á Fíla-
beinsströndinni fullyrða að þau ætli ekki að framselja forsetafrúna fyrrverandi.
Aðskilnaðarsinnar bjartsýnir
3 Íbúar Katalóníu á Spáni ganga til kosninga á sunnudag, þar sem helsta kosningamálið er hvort lýsa eigi yfir sjálfstæði héraðsins, jafnvel þótt
stjórnarskrá Spánar geri ekki ráð fyrir þeim möguleika. Aðskilnaðarsinnar, með
Arturo Mas héraðsforseta í fararbroddi, eru bjartsýnir á sigur, en skoðana-
kannanir sýna að Katalóníumenn hika við að lýsa yfir sjálfstæði. Einna helst
stendur í þeim að sjálfstæð Katalónía dytti út úr Evrópusambandinu og þyrfti
að sækja um aðild.
1. Númer hvað notar leikkonan Ólöf
Hugrún Valdimarsdóttir af skóm?
2. Hvaða merkisgripi er nú hætt að
framleiða í Bretlandi eftir 130 ára sögu?
3. Hvað heitir formaður Skotveiði-
félags Íslands?
SVÖR
1
2
3
HEIMURINN
FRÉTTASKÝRING
Hvernig stendur þjóðarbúið?
Sýn alþingismanna á ástand efna-
hagsmála fer algjörlega eftir því
hvort þeir tilheyra stjórnarmeiri-
hlutanum eða stjórnarandstöðunni.
Staða þjóðarbúsins var rædd í sér-
stakri umræðu á Alþingi í gær.
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknarflokks-
ins, var málshefjandi. Hann sagði
þörfina fyrir að bregðast við vax-
andi skuldavanda Íslands vera
mikla. „Seðlabanki Íslands hefur
á undanförnum árum hvað eftir
annað stórlega vanmetið hreina
erlenda skuldastöðu þjóðarbúsins,“
sagði Sigmundur Davíð í gær.
Hann vitnaði í álit Ragnars
Árnasonar hagfræðings um að
hrein erlend skuldastaða væri 100
prósent af vergri landsframleiðslu,
að teknu tilliti til uppgjörs á þrota-
búum bankanna. Ef ekkert yrði að
gert myndi skuldastaðan fara stöð-
ugt versnandi næstu 60 árin með
tilheyrandi kjaraskerðingu, mögu-
legum landflótta og draga myndi úr
tækifærum til uppbyggingar.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra sagði stöðu þjóðar búsins
hins vegar góða miðað við að-
stæður. Hagvaxtarhorfur væru
bjartari en annarra iðnvæddra
ríkja og spáð væri 2,5 prósenta
hagvexti á næsta ári.
„Skuldir heimila og fyrirtækja
hafa lækkað um næstum helming
frá hruni, sem hlutfall af lands-
framleiðslu.“
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði geta
stefnt í mikið óefni en ef rétt væri
haldið á málum gætu Íslend ingar
unnið sig hratt út úr stöðunni.
Ríkis stjórnin hefði ekki sýnt lang-
tímahagvexti neinn raunverulegan
stuðning.
„Við Íslendingar munum ekki
framleiða þann gjaldeyri sem
þarf til að standa í skilum við
þær skuldbindingar sem þjóðar-
búið hefur gengist undir. Það er
staðan.“
Björn Valur Gíslason, þing maður
Vinstri grænna, minnti á að fyrir
örfáum árum hefði umræðan snú-
ist um það hvort Ísland ætti að
segja sig til sveitar og leita ásjár
Parísar klúbbsins, sem er óform-
legur félagsskapur ríkustu þjóða
heims. Þjóðarbú sem komin eru
í þrot reyna að endursemja um
skuldir sínar við klúbbinn.
Séu umræðurnar í gær vísir að
því sem koma skal í kosningabar-
áttunni er ljóst að kjósendur munu
eiga í vanda með að greina raun-
verulega stöðu landsins í gegnum
málflutning stjórnmálaflokkanna.
kolbeinn@frettabladid.is
Góð staða eða slæm?
Formaður Framsóknarflokksins segir að ef ekkert verði gert versni skuldastaða
ríkisins með landflótta og kjaraskerðingu. Forsætisráðherra segir mikinn árangur
hafa unnist. Staðan sé góð miðað við aðstæður og bjartar horfur fram undan.
MÁLSHEFJANDINN Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði setningu neyðarlaganna
árið 2008 hafa skapað tækifæri til endurreisnar efnahagslífsins sem ríkisstjórnin
hefði ekki nýtt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég hef ítrekað úr þessum stól varað við óraunsæjum
væntingum um skjótt afnám gjaldeyrishafta. Ég fullyrði,
og fagna því að fleiri eru að átta sig á því, að óraunsæjar
væntingar um það hamla því að við getum unnið úr
vandanum. Það er nefnilega einfaldlega þannig að
aflands krónueigendur og erlendir kröfuhafar þurfa að
átta sig á því að þær krónur sem hér eru innlyksa eru
ekki að fara neitt. Og það eina sem er til hagsbóta fyrir
íslenskt þjóðarbú og þessa aðila sem hægt er að gera
fyrir þær krónur er að fjárfesta, fjárfesta og fjárfesta í
gjaldeyrisskapandi starfsemi á Íslandi. Því aðeins verða
búin til einhver þau verðmæti sem unnt væri með tíð og tíma að flytja hér
út úr landinu.“
Ekki skjótt afnám gjaldeyrishafta
HELGI HJÖRVAR
1. Númer 38 á hægri fót og 40 á þann
vinstri. 2. Ritvélar. 3. Elvar Árni Lund.
ALÞINGI Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, spurði
Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis-
ráðherra út í stuðning ríkisstjórn-
arinnar við fyrirhugaða kísiliðju
þýska fyrirtækisins CCP á Húsa-
vík. Ætlað er að hún nýti orku úr
Bjarnar flagi og Þeistareykjum.
Bjarni sagði Landsvirkjun reiðu-
búna til að ljúka samningum um
mitt næsta ár, en opinberan stuðn-
ing varðandi samgöngu- og hafnar-
bætur skorti. Hann spurði hvort
eðli verksmiðjunnar réði einhverju
um stuðning stjórnarinnar.
„Hvort það skipti máli að hér er
um kísilverksmiðju að ræða, þar
sem kísilverksmiðjur eru jú tals-
vert verri í mengunarlegu tilliti en
til dæmis álver,“ spurði Bjarni, en
álver væru stjórninni ekki þóknan-
leg.
Jóhanna sagði að stjórnin væri
jákvæð gagnvart samgöngu- og
hafnarbótum í tengslum við verk-
efnið.
„Við styðjum auðvitað öll verk-
efni, innlend sem erlend, að því er
varðar atvinnuuppbyggingu og fjár-
festingar, svo fremi sem það rúmist
innan laga og reglna og alþjóða-
samninga sem við erum aðilar að.“
Bjarni taldi svör forsætisráð-
herra sýna að stjórnin væri ekki til-
búin og gæti ekki svarað því hvort
verkefnið rúmaðist innan áætlana
eða alþjóðasamninga.
„Landsvirkjun er tilbúin, en ríkis-
stjórnin er ekki tilbúin. Það er hin
dapra staðreynd þessa máls.“ - kóp
Formaður Sjálfstæðisflokksins segir ríkisstjórnina ekki tilbúna fyrir stóriðju:
Stjórnin jákvæð í garð kísilverksmiðju
Landsvirkjun er
tilbúin, en ríkisstjórnin
er ekki tilbúin. Það er hin
dapra staðreynd þessa
máls.
Bjarni Benediktsson
formaður Sjálfstæðisflokksins
VEISTU SVARIÐ?