Fréttablaðið - 23.11.2012, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 23.11.2012, Blaðsíða 10
23. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 SLYS Drengir á aldrinum fimm til fjórtán ára eru líklegastir til að slasast í reiðhjólaslysum. Þetta er meðal þess sem kom fram í erindi Sævars Helga Lárussonar, sérfræðings hjá Rannsóknarnefnd umferðarslysa (RNU) á Umferðarþingi fyrr í vikunni. Sævar kynnti þar niðurstöður rannsókna sem nefndin hefur gert á hjólreiða- slysum. Í erindi sínu sagði Sævar meðal annars að grunur hefði leikið á að hluti reiðhjólaslysa væri ekki tilkynntur sem slíkur og fjöldi slasaðra hjólreiðamanna væri því enn meiri en tölur Umferðarstofu gæfu til kynna. Því hefði RNU lagt út í að rannsaka gögn frá Land- spítalanum til að fá greinarbetri tölur. Þar kom í ljós, við fyrstu yfirferð, að tæplega 1.200 slasaðir hjól- reiðamenn hefðu leitað aðhlynningar á árunum 2000 til 2011, eða um 100 á ári að meðaltali. Um fjórðungur þeirra voru drengir á aldrinum fimm til fjórtán ára, en alls eru 70 prósent þeirra sem slasast í reiðhjólaslysum karlar. Reiðhjólaslys eru þó jafnan ekki alvarleg þar sem um átta prósent af 1.200 þörfnuðust innlagnar og aðeins fjögur til átta prósent eru talin hafa slasast alvarlega. Enginn hefur þó látist í reiðhjólaslysi á Íslandi frá árinu 1997. Enn ítarlegri greining á gögnum Landspítala stendur nú yfir og er búist við að lokaniðurstaða liggi fyrir í janúar. - þj Tölfræði yfir reiðhjólaslys á Íslandi: 5 til 14 ára drengir slasast oftast allra REIÐHJÓLASLYS Á ÍSLANDI 0-14 ára 421 slys 15-39 ára 427 slys 40-59 ára 290 slys 60 ára og eldri 55 slys ■ Karlar ■ Konur 296 300 188 102 15 40 125 127 Tæplega 1.200 reiðhjóla- slys urðu á Íslandi á ára- bilinu 2000 til 2011, að því er frumniðurstöður Rannsóknarnefndar um- ferðarslysa gefa til kynna. Karlmenn og drengir eru mun líklegri til að lenda í reiðhjólaslysum en stúlkur og konur. ➜ Sprengjur á Gasa Ísraelsher varpaði meira en 2.000 sprengjum á meira en 1.500 skotmörk á Gasasvæðinu. Þær kostuðu meira en 160 Palest- ínumenn lífið, þar af að minnsta kosti 37 börn og yfir 10 konur. Að sögn heilbrigðisstarfsfólks á Gasa var um helmingur hinna látnu almennir borgarar. Ísraelsher fullyrðir að meðal hinna drepnu hafi verið 30 háttsettir Hamas-liðar. Átta daga hernaður í tölum ALLIR HRÓSA SIGRI Ísraelarnir Benjamín Netanjahú forsætisráðherra, Ehud Barak varnarmálaráðherra og Avigdor Lieberman utanríkisráðherra sögðust ánægðir með samkomulagið. Mikil fögnuður ríkti ekki síður þegar Ismail Haníjeh, leiðtogi Hamas-samtakanna, boðaði til tveggja daga hátíðarhalda á Gasa. NORDICPHOTOS/AFP ➜ Sprengjur frá Gasa Palestínumenn skutu meira en 1.400 sprengju flaugum frá Gasasvæðinu. Þær kostuðu 6 Ísraela lífið, þar af tvo ísraelska hermenn en fjóra almenna borgara. Að sögn Ísraelshers lentu yfir 800 þessara sprengju- flauga á ísraelsku landsvæði, sumar í byggð og nokkrar í borgunum Tel Avív og Jerúsalem. Meira en 150 komu niður innan landamæra Gasasvæðisins. Ísraelsher segir að með eldflaugavarnarkerfinu, sem nefnt er Járnhvelfing, hafi tekist að sprengja á lofti meira en 400 þeirra sprengjuflauga sem skotið var frá Gasa. SVEITARSTJÓRNARMÁL Borgar- ráð samþykkti í gær að borgar- yfirvöld gangi til samninga við Orkuveitu Reykjavíkur um kaup á Perlunni í Öskjuhlíð. Þá mun borgin ganga til samninga við ríkið um að það leigi húsið í allt að 15 ár og komi þar upp náttúru- minjasýningu. Ef samningar takast við OR um kaupin og ríkið leigir húsið mun Reykjavíkurborg gera breytingar á Perlunni fyrir allt að 100 millj- ónir króna vegna sýningarhalds. Heimild borgarráðs er bundin við það að viðunandi leigusamningur um sýningu Náttúruminjasafns Íslands náist við ríkið. - shá Viðræður við ríkið hefjast: Grænt ljós á kaup á Perlunni KJARAMÁL Gylfi Arnbjörnsson, formaður Alþýðusambands Íslands (ASÍ), var kjörinn vara- formaður Norrænu verkalýðs- hreyfingarinnar (NFS) á stjórnar fundi samtakanna í Helsinki á þriðjudag. ASÍ gerði fyrir nokkrum árum kröfu um að lögfesta skipti- reglur hvað varðar formennsku og varaformennsku í samtök- unum. Á fundinum voru slíkar reglur samþykktar og taka þær gildi með kjöri Gylfa sem tekur við embættinu 1. janúar næst- komandi. ASÍ mun síðan taka við formennsku í NFS árið 2014 og BSRB árið 2019. - mþl Norræn verkalýðshreyfing: Gylfi nýr vara- formaður NFS 11-18 MÁN.-MIÐ. FÖS. 11-19 LAU. 11-18 E N N E M M / S ÍA / N M 55 36 7 Vínbúðinni á Akureyri var nýverið breytt til hins betra. Við erum stolt af meira vöruúrvali en tegundum okkar hefur fjölgað um þriðjung. Við bjóðum ykkur innilega velkomin í glæsilega verslun. vinbudin.is Breytt og bætt Vínbúð á Akureyri ÍSRAEL Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, og Ismaíl Haníjeh, leiðtogi Hamas- samtakanna á Gasa, lýstu báðir yfir sigri eftir að samið hafði verið um vopnahlé á miðviku- dag. Ísraelar fengu því framgengt, sem þeir sögðu frá upphafi vera aðalmarkmið sitt með loftárásunum á Gasa, að Palestínumenn hafa lofað því að skjóta ekki fleiri sprengjuflaugum yfir landamærin til Ísraels. Margir Ísraelar eru hins vegar á nálum af ótta við að Gasa-búar standi ekki við þetta lof- orð og ísraelskir fjölmiðlar tóku dræmlega undir sigurtal Netanjahús. Ekki er öruggt að Haníjeh, leiðtogi Hamas, geti tryggt að engir herskáir Palestínumenn taki upp á því að skjóta fleiri sprengjuflaug- um yfir landamærin. Í sigur ræðu sinni höfðaði hann til samvisku Hamas-liða um að láta slíkt eiga sig, en sagði jafnframt að geri Ísraelar fleiri árásir muni Palestínumenn bregðast við. Hamas-liðar fengu því hins vegar fram- gengt, sem þeir hafa barist fyrir árum saman, að Ísraelar opni landamærahliðin og liðki tölu- vert fyrir bæði ferðalögum fólks og vöruflutn- ingum. Standi Ísraelar við þetta hafa þeir, að minnsta kosti að hluta til, létt þeirri einangrun af Gasasvæðinu sem herskáir Palestínumenn hafa barist gegn, meðal annars með því að skjóta sprengjuflaugum yfir landamærin. Þá hafa Ísraelar lofað því að fremja ekki fleiri „hnitmiðuð mannvíg“, eins og þeir nefna það þegar leiðtogar herskárra Palestínumanna eru drepnir án dóms og laga. Það var hins vegar Mohammed Morsi, forseti Egyptalands, sem stóð uppi sem óvæntur sigur- vegari, því bæði Bandaríkjastjórn og Ísraelar töldu ástæðu til að hrósa honum fyrir hans hlut í því að samningar um vopnahlé tókust. Hann fær jafnframt nokkuð stórt hlutverk við að fylgja því eftir að vopnahléið haldi. gudsteinn@frettabladid.is Binda vonir við vopnahléið Jafnt Ísraelar sem Hamas-samtökin á Gasa líta á vopnahléssamkomulagið sem mikinn sigur eftir vikulangan lofthernað á Gasaströnd. Mohammed Morsi Egyptalandsforseti fær stórt hlutverk við að fylgja því eftir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.