Fréttablaðið - 23.11.2012, Page 20

Fréttablaðið - 23.11.2012, Page 20
23. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 20 Samstarf er lykill að árangri Dagskrá: Friðrik Ágúst Ólafsson, forstöðumaður Meistaradeildar Samtaka iðnaðarins Björn Karlsson, forstjóri Mannvirkjastofnunar Logi Már Einarsson, formaður Arkitektafélagsins Magnús Sædal, fulltrúi Félags byggingafulltrúa Umræður og fyrirspurnir Opinn fundur fyrir hönnuði, tæknimenn, iðnaðarmenn og eftirlitsaðila um nýja byggingareglugerð, samræmingu eftirlits og leiðir til aukinna samskipta innan byg- gingageirans. Grand Hótel Reykjavík, 23. nóvember kl. 13.00 – 17.00 Fundarstjóri, Orri Hauksson framkvæmdastjóri SI Boðið upp á kaffiveitingar að ráðstefnu lokinni Laugardaginn 24. nóvem- ber nk. er prófkjör Sjálf- stæðisflokksins vegna komandi alþingiskosn- inga. Þar gefst Reykvík- ingum tækifæri til að velja þingmannsefni til að halda á málefnum höfuð- borgarinnar og landsins alls næstu ár. Það skiptir máli að velja af kostgæfni og yfirvegun. Verulega hefur skort á að hagsmunum Reykvík- inga sé nægilega vel gætt á Alþingi. Þeir tiltölulega fáu þingmenn sem þétt- býlið hefur verða að beita sér betur fyrir sína kjósendur. Það er eins og fulltrúar þéttbýlisins koðni niður þegar þeir koma á þing og allir verða vinir á kaffi- stofunni. Meirihlutinn, þ.e. lands- byggðin, ræður mestu. Ekki full- trúar meirihluta þjóðarinnar á SV-horninu. Það heyrist helst frá þéttbýlis- þingmönnum rétt fyrir kosningar. Þá allt í einu dúkka þeir upp í fjöl- miðlum á hverjum degi. Að sjálfsögðu er landið allt ein heild og þéttbýli og landsbyggð þurfa að vinna vel saman. En þegar litið er yfir síðustu áratugi sést greinilega hvað hallað hefur á hagsmuni skattgreiðenda og neytenda á SV-horninu. Hér á eftir eru nokkrir liðir þar sem hagsmuna okkar á SV-horn- inu hefur ekki verið nægilega vel gætt: Við þurfum lágt matvælaverð og fjölbreytt matvæli. Það eru strangar innflutnings- hömlur á landbúnaðarafurðum og það sem leyft er að flytja inn er sumt ofurskattað til að vernda íslenska framleiðslu. Við þurfum stöðuga mynt og lága vexti á skuldir okkar. Heimilin berjast nú við ógnvæn- legan skuldavanda meðal annars vegna verðtryggðra lána. Nærri 30.000 okkar eru á vanskilaskrá og tugir þúsunda til viðbótar hafa glatað eigin fé í sínum fasteignum og sjá fram á stökkbreytt lán og afborganir næstu áratugi. Landinu er haldið utan við ESB og evruna til að vernda landbúnaðinn og sjávarútveginn sem að vísu er á misskilningi byggt og á ekki að gera með þeim hætti sem gert hefur verið. Við sitjum uppi með einn dýrasta landbúnað í heimi án þess að hafa efni á því. Varðandi sjávarútveginn er útlit fyrir að samning- ar um hann verði þess eðlis að við getum vel við unað, en það er að sjálfsögðu úrslitaatriði. Það fel- ast líka mikil tækifæri í því fyrir landbúnaðinn og sjávarútveginn að við göngum í ESB. Stóru sjáv- arútvegsfyrirtækin munu því ekki andvíg. Við kunnum sjávar- útveg ágætlega og getum vaxið erlendis ef tækifærin væru opn- ari. Við sitjum uppi með að vera áhrifalaus í EES en taka samt við regluverkinu. Við sitjum uppi með ónýta krónu sem er ekki gjaldgeng, en það er meginhlutverk gjaldmiðla að vera gjaldgengir og halda verð- gildi sínu. Óstöðugleiki krónunn- ar leiddi til þess að verðtrygging var tekin upp sem núna hefur gert tugi þúsunda Íslendinga eigna- lausa og ofurskuldsetta. Vextir í krónunni eru óbærilegir sem drepur niður fyrirtæki og heim- ili. Við þurfum evruna, trausta alþjóðlega gjaldgenga mynt, sem heldur verðgildi sínu sæmilega. Með evrunni kemur stöðugleiki, lág verðbólga og lágir vextir. Við þurfum lægri skatta. Skattar eru orðnir það háir að það kemur hart niður á fólki og fyrirtækjum. Ofurskattarnir eru hamlandi fyrir vöxt fyrir- tækja og minnka það sem heim- ili og fyrirtæki hafa til ráðstöf- unar. Hluti skattanna gengur frá þéttbýlinu á SV-horninu út á land til landbúnaðar, samgangna og fleira. Það er eðlilegt að vissu marki, en það hefur verið gengið allt of langt í því efni. Við þurfum að taka á óráðsíunni og lækka svo skattana. Við þurfum góð atvinnutækifæri sem greiða góð laun. Með inngöngu í ESB og tilkomu evrunnar myndu nýju útflutn- ingsatvinnugreinarnar, svo sem Marel, Össur og Actavis að ógleymdri ferðamannaþjónustu, vaxa hraðar og dafna í stað þess að flýja land. Með því að taka á landbúnaðar- óráðsíunni, ganga í ESB og taka upp evruna myndi ráðstöfunarfé heimila í þéttbýlinu aukast um 50 til 100 kr. á mánuði þegar fram í sækir, en það tekur tíma að koma fram. Það þarf raunhæfari lausn- ir, það nægir ekki að segjast bara vilja lækka skatta. Það þarf að segja hvernig það á að gerast. Kjósendur ættu að huga að verulegri endurnýjun fulltrúa á Alþingi og velja til starfa víð- sýnt, frjálslynt, öflugt fólk af báðum kynjum. Ekki láta stórar og miklar auglýsingar glepja sig í því efni. Ekki kjósa bara frægt og ríkt fólk þó það geti verið ágætt. Huga að mannkostum, menntun, reynslu og málefnum frambjóð- enda. Reykvíkingar, þið eigið leikinn á laugardag. Reykvíkingar, gætum okkar hagsmuna á Alþingi Í Fréttablaðinu miðviku-daginn 10. október við- urkenna tveir almennings- þjónar (e. public servants) hugsanleg mistök Fjár- málaeftirlitsins við eftirlit á sölu verðtryggrðra hús- næðis-afleiða til almenn- ings. Almenningsþjónarn- ir komast svo að orði: „Með hliðsjón af framangreindu telja greinarhöfundar að MiFID-tilskipunin og lög um verðbréfaviðskipti hafi ekki jafnvíðtækt gildissvið og haldið hefur verið fram í umræðunni. Því verður ekki séð að hefðbundin lánastarfsemi falli undir gildissvið tilskipunarinnar og laganna.“ Almenningsþjónarn- ir benda á að ýmsar stofnanir séu undanþegnar anda MiFID-regln- anna, en þeir segja: „MiFID-til- skipunin var innleidd í íslenskan rétt þann 1. nóvember 2007 með fyrrnefndum lögum um verðbréfa- viðskipti. Gildissvið tilskipunarinn- ar nær til fjármálafyrirtækja sem heimild hafa til verðbréfaviðskipta (e. investment firms) og skipulegra verðbréfamarkaða. Gildissviðið nær því til dæmis ekki yfir starf- semi stofnana eins og Íbúðalána- sjóðs, lífeyrissjóða eða fjármála- fyrirtækja sem ekki hafa heimild til verðbréfaviðskipta.“ Það er löngu kominn tími til fyrir stjórn- sýsluna og fjármálastofnanir að virða íslensk lög, þau eru ekki til skrauts. Vanþekking og afneitun á lögum leysir engan undan ábyrgð. Verðbréfafyrirtæki ósammála almenningsþjónunum Verðbréfafyrirtækið AREV kemst að þeirri niðurstöðu að verðtryggð lán séu afleiður og þ.a.l. mjög var- hugaverð söluvara til almenn- ings. Niðurstaðan: „T-afleiðan er flókinn og varhugaverður fjár- málgerningur. Í samræmi við lög um verðbréfaviðskipti (108/2007, 2. gr.) og reglugerð (995/2007, 35. gr.) er líklegt að fjármálafyrir- tækjum sé óheimilt að skuldbinda almenna fjárfesta eða lántakendur með honum þar sem ósennilegt er að hann uppfylli skilyrðið um að vera tilhlýðanlegur (e. „suitable“) fjármálagerningur fyrir slíka aðila. Jafnframt getur orkað tví- mælis að skuldbinda fagfjárfesta með afleiðunni og er nauð- synlegt fyrir fjármála- fyrirtæki að fara varlega sbr. sektir sem fjármála- fyrirtæki í Bretlandi hafa verið að greiða að undan- förnu vegna afleiða sem ekki hafa uppfyllt skilyrðið um tilhlýðanleika (sjá t.d. grein í Financial Times 29. júní sl. „Banks to repay SMEs for missold swaps“). Einu gildir hvort afleiðan er samofin lánasamningi eða ekki og má raunar færa fyrir því rök að í fyrra tilvikinu sé enn síður heim- ilt að skuldbinda lántakandann þar sem örðugra er fyrir hann að skilja eðli hennar við þær aðstæður.“ Endalaust rugl Ólögmæti verðtryggingarinn- ar gæti fallið í dómsmáli eins og gengistryggingin. Líkurnar á því hafa aukist eftir að bann við sölu á afleiðum til einstaklinga var lög- fest. Ef það gerist er ríkið gjald- þrota. Viljum við taka þá áhættu? Það var oft talað um það áður, að verðbólgan hefði eyðilagt ákvarð- anir í efnahagslífinu, gert rangar ákvarðanir að réttum fyrir þann sem í hlut átti þótt samfélagið tapaði. Verðtryggðu jafngreiðslu- lánin gegna nú svipuðu hlutverki. Fólk er afsiðað varðandi fjárhags- lega ábyrgð, því það hefur reynt á eigin skinni að höfuðstóll lána hækkar og hækkar þótt það borgi lánin. Fólk getur verið fast í mis- gengi vegna launa sem hélt ekki í við verðlagsþróun og skildi aldrei útreikningsaðferðina á lánum sínum sem verður aldrei annað en endalaust rugl. Stjórnvöld hafa allt of lengi lokað augunum fyrir því að núverandi kerfi felur í sér óásætt- anlega áhættu fyrir almenning af atburðum sem hann hefur ekkert yfir að segja. Almenningur hefur verið plataður út í skuldafen sem hann ræður ekkert við. Verðtryggð húnæðislán eru afleiður, því er ekki hægt að líkja þeim við hefðbundin evrópsk húsnæðislán á föstum eða breytilegum vöxtum. Almenningsþjónar FME verja kerfið Vinstrimenn hafa notað bankahrunið sem átyllu til að herða tök stjórn- valda á almennum borg- urum í bráðum fjögur ár. Þeir hafa meðal annars fest gjaldeyrishöftin í sessi sem loka Íslendinga inni í eignafangelsi. Með höftunum er erlendri fjár- festingu haldið frá land- inu og Íslendingum gert ókleift að fjárfesta erlend- is. Meðan svona er ástatt geta engin alþjóðleg fyrir- tæki vaxið hér á landi. Útvaldir hópar hagn- ast gríðarlega í skjóli haftanna og Seðlabankinn veitir undanþágur frá höftunum án þess að tilgreina í hverju þær eru fólgnar. Almenn- ingur hefur því engin tök á að fylgjast með að jafnræðis sé gætt. Leynd og pukur eru einkunnarorð ríkisstjórnar Jóhönnu og Stein- gríms. Einn óhugnanlegasti fylgifiskur haftanna er persónunjósnir Seðla- bankans, en bankinn hefur til að mynda aðgang að öllum kredit- kortafærslum landsmanna. Eft- irlitsþjóðfélagið er farið að vega að grundvallarréttindum borgar- anna, eins og persónufrelsi. Þá er í hæsta máta óeðlilegt að stjórn- endur Seðlabankans eigi að fara með peningamálastefn- una næstu misserin og árin. Þar sitja sömu hag- fræðingarnir og stýrðu peningamálastefnunni í þrot árið 2001 og tóku þá upp nýja stefnu sem þeir klúðruðu gjörsam- lega með eftirminnilegum hætti árið 2008. Nú ætlar vinstri ríkis- stjórnin að gefa Má Guðmundssyni og öðrum flokksbræðrum hans á Kalkofnsveginum þriðja sénsinn. Þetta er svona álíka gáfulegt og ef að stjórnvöld fengju Sigurjón Árnason, Hreiðar Má og Bjarna Ármannsson til að leggja drög að nýju bankakerfi. Afnám gjaldeyrishaftanna og upptaka ábyrgrar peningamála- stefnu eiga að vera meginviðfangs- efni stjórnmálanna nú um stundir en ekki óþörf gæluverkefni á borð við happdrættisstofu, stjórnlaga- ráð og kynjaða hagstjórn. Afnema þarf haftastefnu Samfylkingarinn- ar og Vinstri grænna. Haftastefna Samfylk- ingar og Vinstri grænna STJÓRNMÁL Guðjón Sigurbjartsson frambjóðandi í prófk jöri Sjálf- stæðisfl okksins í Reykjavík ➜ Það heyrist helst frá þéttbýlisþingmönnum rétt fyrir kosningar. Þá allt í einu dúkka þeir upp í fjölmiðlum á hverjum degi. Að sjálf- sögðu er landið allt ein heild og þéttbýli og landsbyggð þurfa að vinna vel saman. En þegar litið er yfi r síðustu áratugi sést greinilega hvað hallað hefur á hagsmuni skattgreiðenda og neytenda á SV-horninu. FJÁRMÁL Guðmundur Franklín Jónsson viðskiptafræðingur og formaður Hægri grænna, fl okks fólksins ➜ Almenningur hefur verið plataður út í skuldafen sem hann ræður ekkert við. ➜ Eftirlitsþjóðfélag- ið er farið að vega að grundvallarréttindum borgaranna, eins og persónufrelsi. STJÓRNMÁL Elí Úlfarsson Frambjóðandi í sjötta sæti í prófk jöri sjálf- stæðismanna í Reykjavík

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.