Fréttablaðið - 23.11.2012, Side 38
Andrea Sóleyjar & Björgvins-
dóttir, þriggja stúlkna móðir,
meistaranemi í menningar-
stjórnun, flugfreyja, verk-
efnastýra hjá WOW air og
höfundur Bókarinnar okkar.
„Uppskrift að súpunni hennar
mömmu og brauðinu hans
pabba er það fyrsta sem mér
dettur í hug þegar ég hugsa um
mat. Mamma er snilldar kokkur
og pabbi sérlega liðtækur í
brauðbakstrinum. Við dætur
mínar erum alveg sólgnar í
þessa dásamlegu tvennu og
ekki skemmir fyrir að geta notið
hennar í sveitinni hjá þeim í
Tungu.“
Súpan góða
fyrir 4-6
Einn mexíkó-, tveir papriku-
og tveir piparostar bræddir vel
saman í örlitlu vatni.
500 g gourmet-hakk steikt á
pönnu með tveimur teningum
af kjötkrafti og einum hreinum.
Tveir laukar og tvær rósrauðar
paprikur steiktar létt saman og
blandað við hakkið.
Fullt af rjóma bætt við ásamt
einni teskeið af paprikukryddi
og dós af Ora maísbaunum.
Allt hrært varlega saman í
stórum potti.
Brauðið ómissandi
Fjórum teskeiðum af geri er
blandað vel saman við 6 dl af
volgu vatni.
Einum dl af ólífuolíu og tveimur
teskeiðum af salti er bætt út og
hveiti hrært saman við þar til
deigið er hnoðhæft.
Skipt í fjóra hluta og látið
hefa sig um stund, um 20-30
mínútur. Dansið gjarnan á
meðan.
Deigið flatt út, rifnum osti og
hvítlauksolíu makað innan í.
Herlegheitum rúllað saman og
penslað með mjólk. Virkilega
gott að strá osti, basil og Salt-
verkssalti ofan á. Lengjurnar
látnar hefast hæð sína í um 5
mínútur og bakaðar í ofni þar til
þær eru feitar og fínar.
RIKKA VELUR AÐEINS ÞÁ BESTU
Í kvöld hefur raunveruleikaþátturinn MasterChef
Ísland göngu sína á Stöð 2. Í þættinum reyna
áhugakokkar að heilla dómaratríóið sem er ekki
af lakara taginu. Dómnefnd skipa Friðrika Hjör-
dís Geirsdóttir sjónvarpskokkur, Eyþór Rúnars-
son, yfirmatreiðslumaður á Nauthól, og Ólafur Örn
Ólafsson, yfirþjónn á Hótel Marina. Það kemur
áhorfendum örugglega mikið á óvart hve kröfuharðir
dómararnir eru og sætta sig aðeins við það besta.
Í fyrsta þættinum, sem sýndur er í kvöld, er fylgst
með áheyrnarprufunum þar sem keppendur hafa
nauman tíma til að töfra fram girnilega og bragð-
góða rétti. Þeir bestu úr áheyrnarprufunum kom-
ast síðan áfram í svokallað „Boot Camp“, eða
herbúðir, þar sem þeir spreyta sig á ýmsum
matreiðsluþrautum. Úr þessum krefjandi búðum
komast átta áfram í MasterChef-eldhúsið,
stærsta eldhús sem búið hefur verið til í sjón-
varpi á Íslandi og er það útbúið fyrsta flokks
tækjum og tólum frá Heimilistækjum. Í lokin
stendur einn uppi sem sigurvegari og verður
krýndur fyrsti meistarakokkur Íslands.
DALSHRAUN 8RB RÚM 220 HAFNARFIRÐI SÍMI 555 0397WWW.RBRUM.IS
þjóðleg vi ðurkenn-
g fyrir framúrskar-
ndi árangur í
amleiðslu í rúmum
g prs ingdýnum.
OPIÐ ALLA VIRKA DAGA FRÁ 8 - 18 OG Á LAUGARDÖGUM FRÁ 10 - 14
ÍSLENSK HÖNNUN
Í áraraðir hefur Ragnar Björnsson
ehf. framleitt rúm af öllum stærð-
m og gerðum, allt eftir óskum við-
vina. Við ráðleggjum fólki að hafa
öllum hjónarúmum og tengja dýn-
urnar saman með rennilásum. Mismunandi stíf-
leika er hægt að velja allt eftir þyngd þeirra sem á
dýnunum hvíla. Þú velur rétta hæð á rúmið þitt og
stígur létt framúr. Mikið úrval af öllum tegundum
rúma.
Hafið samband við sölumenn okkar fyrir frekari
upplýsingar.
u
skipta
tvær dýnur í
Al
in
a
fr
o
Be
tr
i S
to
fa
n