Fréttablaðið - 23.11.2012, Page 44
23. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR| MENNING | 28
BAKÞANKAR
Stígs Helgasonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
LÁRÉTT
2. hæfileika, 6. skammstöfun, 8. ófarn-
aður, 9. veiðarfæri, 11. tveir eins, 12.
hroki, 14. einkennis, 16. hvort, 17. fjör,
18. angan, 20. holskrúfa, 21. köttur.
LÓÐRÉTT
1. bak, 3. í röð, 4. litur, 5. hár, 7. liðs-
afli, 10. saur, 13. fæðu, 15. fugl, 16. tré,
19. sjúkdómur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gáfu, 6. eh, 8. böl, 9. net,
11. ll, 12. dramb, 14. aðals, 16. ef, 17.
táp, 18. ilm, 20. ró, 21. kisa.
LÓÐRÉTT: 1. lend, 3. áb, 4. fölblár,
5. ull, 7. herafli, 10. tað, 13. mat, 15.
spói, 16. eik, 19. ms.
Mig hefur dreymt sama
drauminn síðan ég var lítill!
Það er draugur að elta mig,
mér tekst að saga hann í bita
með samurai-sverðinu mínu
en höndin lifir áfram og ...
leggst um hálsinn minn ...
Ég hef vaknað
emjandi í mörg
ár! Guð minn
góður! Ég get
ekki meir!
Svona
svona!
Hérna
...
Þú áttir ekki
að fá þennan!
Mér að
kenna!
Ekki seg ja neinum
að ég sé góður
strákur, ókei?
...uuu...
Það vita
það allir,
Hektor.
Þú ert álitinn áreiðanlegur og
brjóstgóður drengur með mjög
háan siðgæðisstuðul.
Ég er sem sagt
draumur allra for-
eldra.
Það er erfitt að
losna við gott
orðspor.
Í gamla daga
kunnu þeir
sko að byggja
beinagrindur.
...og án þess að
hugsa byrjaði ég
að gefa henni
munn við munn.
Bjargaðirðu
skjaldbökunni
með munn við
munn?
Já! Er þetta ekki það
ótrúlegasta sem þú
hefur heyrt?
Jú.
Mintu?
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gói
Baunagrasið
og
Bráðskemmtileg og fyndin leiksýning
fyrir alla fjölskylduna
Fréttatíminn Morgunblaðið
VEGNA MIKILLAR
AÐSÓKNAR!
AUKASÝNING
SÍÐASTA SÝNING Sun 25/11 kl. 13:00
Ég hef ekki tölu á þeim myndum sem ég hef séð af bandarískum frægðar-
mennum í annarlegu ástandi, teknum á lög-
reglustöð eftir að þau hafa skandalíserað
svo yfir sig að yfirvöld þurfa að grípa í
taumana. Elvis, James Brown, Paris Hilton,
Hugh Grant, Lindsay Lohan, Nick Nolte,
Johnny Cash, OJ Simpson, Vanilla Ice,
Larry King, Al Pacino, Jane Fonda, Jay-Z,
Janis Joplin, Frank Sinatra … það væri hægt
að fylla þennan pistil af nöfnum. Fólkið er
misljótt, misútgrátið, með misvírað hár
og misblóðhlaupin augu. Enda kallast
þessi fyrirbæri „mugshots“ upp á
ensku – trýnismyndir. Það er gert
ráð fyrir að þær séu ljótar.
FYRSTA og eina svona myndin
sem ég hef séð af íslensku selebbi
var myndin af Sigurði Einars-
syni sem sérstakur saksóknari
sendi Interpol til að fylgja
alþjóðlegri eftirlýsingu.
Hún var ekki mjög krass-
andi. Samt hef ég stund-
um öfundað kollega mína
vestan hafs af því að hafa
svona greiðan aðgang að
myndum frá lögreglunni af
öllum sem eru hand teknir.
Þar er mönnum aldeilis
umhugað um gagnsæi, hugsa
ég, en átta mig yfirleitt jafn-
harðan á því að auðvitað er
þetta sumpart alveg galið.
TIL samanburðar eru íslenskar reglur og
venjur um þessi mál hins vegar fulltepru-
legar. Vilji fjölmiðlamenn birta mynd af
stórtækum glæpon þurfa þeir annaðhvort
að stela gamalli mynd af netinu ef hún er
á annað borð til og krossleggja svo fingur
í von um að þeir verði ekki lögsóttir, eða
sitja fyrir þeim í héraðsdómi og vona að
þeir sjálfir eða lögreglan hafi ekki pakkað
þeim inn í tíu númerum of stóra úlpu og
vafið svo tóbaksklút utan um hausinn á
þeim. Íslenskir glæpamenn vilja jafnan
ekki að almenningur þekki þá í sjón og það
er látið eftir þeim nema fjölmiðlar finni
hjáleið.
NÚ vill Siv Friðleifsdóttir gera það að
einu af sínum síðustu verkum á þingi að
þrengja enn að möguleikum fjölmiðla
til að sýna fólki glæpamenn, með því að
banna allar myndatökur í dómshúsum
með lögum. Það er svo sem engin ástæða
til að efast um Siv geri þetta af góðum
hug, hún hefur reynt á eigin skinni að það
getur verið aðilum að dómsmálum enn
þungbærara en ella að mæta myndavélum
á leið til réttarhalda. Þingmenn verða hins
vegar að velta fyrir sér hvort sé meira
mál: að hömlur séu settar á fréttaflutning
eða að menn þurfi að skýla sér með dag-
blaði.
ANNARS er óþarfi að örvænta. Ef með
þarf er Fréttablaðið með Halldór Baldurs-
son í startholunum.
Grímulaust réttlæti