Fréttablaðið - 23.11.2012, Side 48
23. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR| MENNING | 32MENNING
BÆKUR ★ ★★★★
Hin eilífa þrá
Guðbergur Bergsson
JPV-ÚTGÁFA
Miðaldra einhleypur maður býr í
íbúð á neðri hæð í úthverfi og á í
dularfullu sambandi við konuna
á efri hæðinni. Sjálfur vinnur
hann í regnfataverksmiðju ásamt
tveimur hópum kvenna, ann-
ars vegar íslenskum saumakon-
um, hins vegar austurlenskum
sníðakonum, sem raunar koma
lítið við sögu nema helst á kaffi-
stofunni. Meðal annarra pers-
óna eru prestur og eiginmaður
einnar saumakonunnar og kona
sem aðalpersónan, sem aldrei er
nefndur annað en Feiti, á í ein-
hvers konar sambandi við og er
aldrei kölluð annað en Fagra.
Fyrir þá sem þekkja til verka
Guðbergs er ýmislegt kunnuglegt
í nýjustu skáldsögu hans sem ber
titilinn Hinn eilífa þrá og skartar
undirtitlinum Lygadæmisaga.
Þetta á bæði við um atburði og
aðstæður persóna, notkun tákna
og dæmisagna, samtöl persóna
og einstaka setningar úr bókinni,
bæði þær sem hafðar eru eftir
sögumanni og þær sem koma frá
persónum sögunnar. Það liggja
þræðir frá þessari bók allt aftur
til Tómasar Jónssonar metsölu-
bókar og á leiðinni krækir hún
í sögur eins og söguna af Ara
Fróðasyni og Hugborgu konu
hans og fleiri sögur Guðbergs.
En það sem er kunnuglegt við
þessa sögu minnir ekki bara
á skáldsögur Guðbergs. Stíll
sögunnar og frásagnaraðferð
minnir stundum meira á Guð-
berg í pistlaham í dagblöðum
eða á neti. Aðferðin einkennist
af alhæf ingum og kaldri fjarlægð
frá persónunum. Í augum sögu-
manns virðast Feiti og allt hans
fólk fremur ómerkilegt lið, og það
er erfitt að fá á tilfinninguna að
örlög þeirra hafi einhverja dýpri
merkingu eða tilgang en þann að
sýna fram á hversu innantómt og
ömurlegt líf þeirra er. Undirtitill-
inn Lygadæmisaga gefur vitan-
lega í skyn að persónur sögunnar
séu fulltrúar einhvers annars en
sjálfra sín, og það má auðveld-
lega lesa hana þannig að hér sé
íslensku þjóðinni sagt til synd-
anna einu sinni enn. En sú ádeila
er að þessu sinni ákaflega bitlítil
og ómarkviss og fyrst og fremst
ákaflega þreytt.
Þessi nýjasta skáldsaga Guð-
bergs Bergssonar er sérkennileg
smíð. Sagan sjálf er flöt og fátt
sem dregur lesandann áfram
í henni. Þótt á stöku stað megi
finna skarplegar athuga semdir
eða meinhæðnar þá nálgast
sagan hvergi þau verk Guðbergs
sem hafa skapað honum sess sem
höfuðsnillingi íslenskra bók-
mennta síðustu hálfu öld eða svo.
Stundum skrifa frábærir rit-
höfundar vondar bækur. Það
er einfaldur sannleikur en ekki
alltaf auðtekinn. Hin eilífa þrá er
ein af þessum bókum. Best er að
gleyma henni sem fyrst.
Jón Yngvi Jóhannsson
NIÐURSTAÐA: Skáldsaga sem
stendur bestu verkum höfundarins
mjög langt að baki.
Af Feita og hans fólki
Flutt verða sex ný verk eftir tón-
skáld frá jafnmörgum þjóðum á
tónleikum Duo Harpverk í Nor-
ræna húsinu á sunnudag. Öll eru
þau skrifuð að beiðni flytjend-
anna. „Þetta er í fyrsta skipti sem
við spilum heila tónleika án þess
að norrænir tónsmiðir komi við
sögu. Þessir eru allir lengra frá.
„Við fengum eitt stykkið í vor og
það síðasta fyrir tveimur dögum,“
segir Frank og kynnir verkin og
tón skáldin aðeins nánar. „Eitt verk
er eftir Andrew Gen. Popoff frá
Rússlandi, það eina sem er ekki
frumflutt nú. Við spiluðum það á
Listahátíð í sumar í Kaldalóni. Svo
er eitt frá Egyptalandi, eftir 19 ára
tónskáld, Bahaa El-Ansary, sem
við vonumst til að geti komið á tón-
leikana. Í Kaíró er margt ómögu-
legt en síðast þegar við fréttum
var okkar maður búinn að fá allar
undir skriftir nema eina. Þetta er
piltur sem ég kynntist á Face book
og var alveg til í að semja fyrir
okkur. Það er frekar sérstakt verk
en mjög skemmtilegt. Hann sendi
okkur líka hljóðfæri frá Egypta-
landi sem ég ætla að spila á.“
Frank og tónskáldið Dennis Bat-
hory-Kitsz frá Bandaríkjunum
kynntust líka gegnum Facebook.
„Dennis er ákveðinn í að mæta og
er fyrir löngu búinn að bóka flug,“
segir Frank. „Við fáum tvo söngv-
ara til að syngja með okkur í verkinu
hans, Erlu Dóru Vogler og Árna Guð-
jónsson. Tónskáldið hafði hugsað
sér að við gætum sungið það líka en
það er of mikið í gangi í hljóðfæra-
leiknum til að við getum það. Við
höfum sungið í nokkrum stykkjum
en í þessu var það of mikið.“
Eitt stykkið er eftir Alexöndru
Fol frá Búlagaríu. „Alexandra
býr í Montreal í Kanada. Það er
verkið sem við fengum fyrst. Ætl-
uðum að spila það í sumar en það
var ekki tækifæri til þess svo við
geymdum það fyrir þessa tónleika,“
segir Frank og heldur áfram: „Ana
Paola Santillán Alcocer frá Mexíkó
býr líka í Montreal, bara til viljun.
Hennar verk er melódískt og
skemmtilegt og frekar hefð bundið.
Eitt verkið er grískt. Panayiotis
Demopoulos er eina tónskáldið sem
við höfum hitt áður. Við fórum til
Færeyja í sumar að spila og hittum
hann þar. Það er verkið sem við
fengum síðast.“
Sjálfur er Frank frá Hollandi,
flutti hingað 2001 og talar reiprenn-
andi íslensku. Katie flutti hingað frá
Bandaríkjunum 2005. „Við spilum
bæði í Sinfó og kynntumst þar og
fyrstu tónleikar okkar saman voru
í apríl 2007,“ lýsir Frank. „Við
héldum fimm ára afmælistónleika
í Iðnó í apríl í vor og erum nýbúin
að gefa út geisladisk sem heitir The
Greenhouse Sessions enda er hann
tekinn upp í gróðurhúsi.“
gun@frettabladid.is
Fengum hljóðfæri
sent frá Egyptalandi
Vegabréf kallast tónleikar Katie Elizabeth Buckley hörpuleikara og Franks
Aarnink slagverksleikara, sem mynda Duo Harpverk, í 15.15 tónleikasyrpu Nor-
ræna hússins á sunnudaginn klukkan 15.15, enda koma verkin víða að.
DUO HARPVERK Þau Frank og Katie æfa stíft þessa dagana fyrir tónleikana á sunnudaginn.
Frá upphafi hafa Katie Buckley og Frank Aarnink, sem skipa Duo Harpverk,
pantað yfir 60 verk fyrir hörpu og slagverk úr flestum heimshornum. Þótt
þau hafi flutt mörg verk eftir reynd tónskáld hafa þau lagt áherslu á að
panta og flytja tónlist ungra íslenskra og erlendra tónskálda.
Duo Harpverk hefur leikið á Myrkum músíkdögum, Iceland Airwaves,
Kirkjulistahátíð og Ung Nordisk Musik. Það hefur haldið nokkra tónleika
á 15.15 tónleikasyrpunni í Norræna húsinu og farið í tónleikaferðir til út-
landa, meðal annars um Holland og Danmörku.
Fyrir hörpu og slagverk
Kammerkór Seltjarnarneskirkju heldur tónleika í kirkju sinni á morgun
undir yfirskriftinni Ljúfir tónar frá liðnum öldum. Þar verða flutt valin
verk eftir J. G. Rheinberger og F. B. Mendelsohn.
Sjö einsöngvarar koma fram á þessum tónleikum, allir úr röðum kórs-
ins, enda er kórinn að mestu skipaður lærðum einsöngvurum. Félagar úr
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna leika undir á tónleikunum ásamt Judith
Þorbergsson orgelleikara. Stjórnandi er Friðrik Vignir Stefánsson. - gun
Mendelsohn á Nesinu
Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngur á morgun.
KAMMERKÓRINN Í kammerkór kirkjunnar eru einkum lærðir einsöngvarar og
raddir þeirra hljóma á morgun.
Fullorðnir og börn geta tekið þátt í gjörningi í Listasafni Íslands á
morgun klukkan ellefu. Gjörningurinn er í formi listsmiðju þar sem
þátttakendum er boðið að vinna með bjarta liti og blanda saman í lit-
róf skammdegisins. Fyrir forvitna um eðli og virkni lita er hér kjörið
tækifæri til að kynnast þessum spennandi heimi. Umsjón með verk-
efninu hafa listamennirnir Ásta Björk Ríkharðsdóttir, Benedikt H.
Hermannsson, Emma Sofia Lindahl, Eygló Harðardóttir og Sigríður
Melrós Ólafsdóttir. Verkefnið er samvinnuverkefni Listasafns Íslands
og Listaháskóla Íslands.
Þátttaka ókeypis fyrir börn frá 10 ára og fullorðna. Þátttakendur
þurfa að skrá sig í dag.
Í öðru ljósi
Þátttökugjörningur og listsmiðja fyrir börn og un-
glinga í Listasafni Íslands á morgun.