Fréttablaðið - 23.11.2012, Qupperneq 50
23. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR| MENNING | 34
MYNDLIST ★★★ ★★
Rek
Anna Hallin og Olga Bergmann
LISTASAFN ÍSLANDS
Sýningunni er skipt í tvö rými. Í
fremra rýminu er stór ljósmynd
af uppblásinni vindsæng, í líki
Íslands, fljótandi á tjörn og á gólf-
inu eru rauðleitar steinsteyptar
afsteypur af litlum (hverfandi?)
uppblásnum íslenskum jöklum. Í
innra rýminu er um heildstæða
innsetningu að ræða, sem tengist
beint því sem er í fremri salnum.
Þarna eru fjögur myndbönd, þrjú
tré, sem ná frá gólfi upp í loft, sem
einnig þjóna hlutverki skjávarpa-
standa, sem er skemmtileg lausn,
og svo er garðbekkur fyrir mann
að sitja á á meðan maður horfir á
myndböndin.
Í lengsta myndbandinu, sem er
þungamiðja sýningarinnar, kemur
vindsængin nokkuð við sögu þar
sem fólk liggur á henni, veltir
henni og situr á henni. Í mynd-
bandinu er tekið viðtal við fólk,
heimspekinga og jarðfræðing, sem
ræðir um félagsfræðilega og jarð-
fræðilega hluti í bland.
Í öðru myndbandi bisar annar
listamannanna við vindsængina,
sem gæti verið vísun í átök hennar
við þetta land sem hún býr á, ver-
andi af erlendum uppruna.
Á öðru myndbandi í rýminu
er jarðfræðikortum af ýmsum
löndum blandað saman í sífellu til
að undirstrika hina síkviku jörð
sem við lifum á og eilífa hringrás
jarðar og lífsins sjálfs.
Í fjórða myndbandinu sést vind-
sængin fljótandi á tjörn eins og
menn kannast við úr verkum list-
málarans franska Claude Monet,
en þar eru listamennirnir að tengja
vindsængina, ímynd Íslands, lista-
sögunni, en um leið að vísa til
þess vel skilgreinda heims sem
Claude Monet starfaði í. Þessar
vanga veltur tengjast einmitt frá-
sögn jarðfræðingsins í hinu mynd-
bandinu, sem talar um jörðina
sem „lokað“ kerfi þar sem jarð-
efnin ganga endalaust í hringi í
jarðsögulegum tíma. Meginlöndin
ganga niður í jörðina, bráðna þar
og gjósa síðan upp á nýjum stað,
og síðan breytist jörðin samkvæmt
landrekskenningunni í sífellu og
jarðflekana rekur um 2 cm á ári,
eða jafnmikið og neglur vaxa á ári,
til að gefa einfaldan samanburð.
Í myndbandinu er einnig vísað
til forgengileika mann skepnunnar,
með vísan í risastórt eldgos sem
varð fyrir tugþúsundum ára, sem
varð til þess að aðeins 10.000 for-
feður mannsins lifðu af á jörðinni,
á afmörkuðu landsvæði.
Sýningin hverfist um tilvistar-
legar spurningar, hringrás allra
hluta á jörðinni og hið síbreytilega
ástand. Hún minnir okkur á smæð
okkar og forgengileika, að við
manneskjurnar séum í raun bara
rekald í jarðsögulegum tíma.
Þóroddur Bjarnason
NIÐURSTAÐA: Áhugaverðar og þarfar
hugleiðingar, settar fram í vönd uðum
listhlutum. Með betri fókus hefði
verið hægt að koma meginskila-
boðunum enn sterkar á framfæri.
Hringrás og forgengileiki
REK Sýning Önnu Hallin og Olgu Bergmann hverfist um tilvistarlegar spurningar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Leikhópurinn Leikur einn efnir
til aukasýningar á leiksýningunni
Hvílíkt snilldarverk er maðurinn!
eftir Sigurð Skúlason og Benedikt
Árnason sem er byggð á höfundar-
verki Williams Shakespeare í þýð-
ingu Helga Hálfdanarsonar.
Sigurður Skúlason leikur og leik-
stjóri er Benedikt Árnason.
Sýningin var sýnd í Þjóðleikhús-
kjallaranum á síðasta leikári, en
auk þess var hún sýnd víða á lands-
byggðinni í vor og haust við afar
góðar viðtökur áhorfenda, jafnt hér
í höfuðborginni sem úti á landi, að
sögn Sigurðar.
Hann segir að sýningin sé óður
til leiklistarinnar og þess besta
sem hún hefur af sér alið: verka
Williams Shakespeare.
Í sýningunni er raðað saman
brotum úr leikritum Shakespeares
að viðbættri einni sonnettu, svo úr
verður heildarmynd er tekur einum
þræði mið af vegferð mannsins frá
vöggu til grafar og öðrum þræði af
skyldleika lífs og leikhúss sem var
Shakespeare einkar hugleikinn.
Sýningin hefst á mánudagskvöld
klukkan 20 og aðeins verður um
þessa einu sýningu að ræða.
Hvílíkt snilldar-
verk er maður-
inn! sýnt í Iðnó
SNILLDARVERK Verkið Hvílíkt
snilldarverk er maðurinn! er einleikur
sem Sigurður Skúlason flytur.
Læknar segja að lífsstíll nútímamannsins muni granda fleirum en drepsóttir
fyrri alda og óttast að heimsfaraldur sé í uppsiglingu. Óheilsusamlegt
mataræði, tóbaksreykingar, misnotkun áfengis og hreyfingarleysi kemur við
sögu í ótal langvinnum sjúkdómum. Úr hverju deyja Íslendingar og hvernig á
að koma í veg fyrir faraldurinn?
Unnsteinn í Retro Stefson fagnar því
að rúllukragapeysur séu loks komnar
í tísku.
Ver raddböndin í rúllukraga
Vandamál vegna brennisteins-
mengunar virkjana eru óleyst.
Hvað þýðir það fyrir virkjanaáform?
Mengun yfir hættumörkum
Fylltur kjúklingur og perusalat í
matarboðið.
Einfalt á aðventunni
Meistari Megas hefur sent frá sér
textasafn sitt til 45 ára.
Held mest upp á textana
sem þykja verstir
Helgarblað
Fréttablaðsins
Meðal efnis núna um helgina
Helgarblað Fréttablaðsins, ómissandi hluti af góðri helgi