Fréttablaðið - 23.11.2012, Side 51

Fréttablaðið - 23.11.2012, Side 51
FÖSTUDAGUR 23. nóvember 2012 | MENNING | 35 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2012 Upplestur 12.10 Eyrún Ingadóttir og Kristín Helga Gunnarsdóttir lesa úr bókum sínum í húsnæði Ráð- gjafarþjónustu Krabbameins- félagsins að Skóg- arhlíð 8. Boðið verður upp á te, kaffi og brauð. Leikrit 20.00 Leikfélagið Peðið sýnir óperuna Bjarmaland II eftir Jón Benjamín Einarsson. Tónlist og leikstjórn er í höndum Andreu Gylfadóttur. Sýnt er í Kjallaranum, Laugarvegi 73. Tónlist 20.00 Björn Thoroddsen og Kristinn Sigmundsson halda tónleika í Salnum, Kópavogi, undir yfirskriftinni Ég veit þú kemur. Auk þeirra koma fram Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona og Gunnar Hrafnsson bassaleikari. 20.00 Baggalútur heldur tónleika á Græna Hattinum, Akureyri. Miðaverð er kr. 5.555. Aðrir tónleikar verða klukkan 23.00. 21.30 Hljómsveitin Árstíðir heldur tónleika á Café Rosenberg. 22.00 Hljómsveitin Árstíðir heldur tónleika á Café Rosenberg. 23.00 Hljómsveitin Homo and the Sapi- ens leikur á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakka- stíg 8. Aðgangseyrir er kr. 1.000. Leiðsögn 12.00 Boðið verður upp á leiðsögn um sýningu Þórunnar Elísabetar Sveins- dóttur, Lauslega farið með staðreyndir – sumt neglt og annað saumað fast, og sýningu Þuríðar Rósar Sigurþórsdóttur, Hinumegin. Báðar sýningarnar standa nú yfir í Hafnarborg og er aðgangur ókeypis. Fyrirlestrar 20.00 Ástvaldur Zenki Traustason heldur fyrirlestur í húsi Lífspekifélags- ins að Ingólfsstræti 22. Fyrirlesturinn nefnir hann Hversdags Zen. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@ frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is. Tímaritið Stuðlaberg er helgað hagyrðingum og hinu hefðbundna bragformi. Útgefandi þess, ritstjóri og ábyrgðarmaður er Ragnar Ingi Aðalsteinsson frá Vaðbrekku sem segir í formála að Ísland sé lögheimili hefðbundna ljóðsins enda sé ljóðstafahefðin löngu týnd úr kveðskap annarra þjóða. Í þessu fyrsta hefti Stuðlabergs eru meðal annars viðtöl við Ómar Ragnarsson og Kristínu Jónsdóttur á Hlíð en hún sendi frá sér ljóðabókina Bréf til næturinnar fyrir þremur árum sem hefur rokselst. Kristján Árnason, prófessor við HÍ, upplýsir í viðtali að aukinn bragfræðiáhugi sé við skólann og birtar eru limrur sem nemendur í 10. bekk Háaleitisskóla ortu í hópvinnu í nýliðnum október. Nokkrir hagyrðingar svöruðu kalli rit- stjórans og ortu á einu kvöldi nýjar vísur um nýju íslensku stjórnarskrána. Davíð Hjálmar Haraldsson velti fyrir sér hvort hún mundi halla til hægri eða vinstri: Stjórnarskrá brátt kynna kauðar, kátleg verður bókin sú; hægri síður eflaust auðar, allar hinar fagurrauðar eins og séu út úr kú. Ísland lögheimili hefðbundna ljóðsins Hagyrðingar og hið hefðbundna bragform er efniviður Stuðlabergs, sem er nýstofnað tímarit. RITSTJÓRINN Ragnar Ingi ætlar að gefa út Stuðlaberg tvisvar á ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR BIRKISSON

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.