Fréttablaðið - 23.11.2012, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 23.11.2012, Blaðsíða 58
23. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR| SPORT | 42 KÖRFUBOLTI Það verður körfubolta- veisla í Stykkishólmi í kvöld og á morgun þegar úrslitahelgi Lengju- bikarsins fer í fyrsta sinn fram utan suðvesturshornsins. Snæfellingar eru í hlutverki gestgjafans en þeir eiga möguleika á að vinna þessa keppni í þriðja sinn frá 2007. „Ég tippa á að það verði dunkarnir tveir úr Vestur bænum sem mætast í úrslitaleiknum,“ sagði Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur. Einar Árni er þarna að tala um jafnaldrana og æsku- félagana Inga Þór Steinþórsson, þjálfara Snæfells, og Benedikt Guð- mundsson, þjálfara Þórs. Tindastóll situr í neðsta sæti Dominos-deildarinnar en hefur bitið frá sér í þessari keppni. Öll hin liðin í úrslitunum, Snæfell, Grindavík og Þór, eru meðal efstu fjögurra liðanna eftir fyrstu sjö um ferðirnar. Tindastóll mætir Þór í fyrri undanúrslitaleik dagsins sem hefst klukkan 18.30. „Tindastóll er lið sem fór seint af stað og eins og svo oft áður þá eru þeir að styrkjast jafnt og þétt. Ég hefði alveg verið tilbúinn að mæta þeim í deildinni fyrir löngu síðan. Ég á þá í desember og veit að ég mun fá þá í sínum besta gír. Þetta verður langt frá því að vera eitthvað auðvelt fyrir Þórsarana,“ sagði Einar Árni. „Ég held að báðir leikirnir verði járn í járn sem er svolítið saga tíma- bilsins. Það hafa fleiri leikir en færri verið jafnir fram á síðustu sekúndur. Ég sé ekki fyrir mér einhverja stór- sigra,“ segir Einar en hvað með upp- gjör Snæfells og Grindavíkur sem mætast klukkan 20.30. „Hólmararnir eru hrikalega erf- iðir á heimavelli. Það er eins og vinstri höndin á Nonna sjái stærri körfu þar. Þeir hitta alltaf svaka- lega vel þar og eru bara gríðar- lega erfiðir heim að sækja,“ sagði Einar Árni og er þarna að tala um Snæfellinginn Jón Ólaf Jónsson sem hefur spilað afar vel í vetur. Snæfell er annað félagið sem fær Lengjubikarúrslitin á heimavelli en Keflvíkingar voru í sömu stöðu árið 2002 og unnu þá titilinn. „Ég held að heimavöllurinn eigi eftir að hjálpa pínulítið í þetta skiptið en ég yrði samt ekkert hissa ef Grindavík tæki sigurinn,“ sagði Einar Árni en Grindavík vann 110- 102 sigur á Snæfelli þegar liðin mættust í 27 þrista leik í Grindavík í október. Úrslitaleikurinn fer fram klukkan 16.00 á morgun en Grind- víkingar gætu þar spilað sinn fjórða úrslitaleik í þessari keppni á síð- ustu fimm árum. Þór hefur aldrei unnið stóran titil í meistaraflokki en Tindastóll vann hins vegar þessa keppni fyrir þrettán árum. - óój Spáir að Ingi og Benni mætist í úrslitaleik Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, fer yfi r undanúrslitaleiki Lengjubikarsins í Hólminum í kvöld. ÞORLEIFUR ÓLAFSSON Getur lyft lengjubikarnum í þriðja sinn á fjórum árum FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ÖNNUR SKOÐUN: Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar Tindastóll-Grindavík „Ég ætla að vera djarfur að spá Tindastól sigri af því að þeir eru á skriði í þessari keppni. Ég held að Grindavík taki Snæfell. Það skiptir Grindavík engu máli þótt þeir séu á útivelli því þeir hitta alveg jafnvel þar,“ sagði Teitur Örlygsson, þjálfari Grindavíkur um hvaða lið hann spáir í úrslita- leik Lengjubikarsins í ár. HANDBOLTI Wetzlar hefur komið liða mest á óvart í þýsku úrvals- deildinni í haust og liðið sendi skýr skilaboð með frábærum útivallar- sigri á Füchse Berlin í fyrrakvöld, 28-27. Með sigrinum höfðu liðin sætaskipti og er Wetzlar komið upp þriðja sætið – nánast öllum að óvörum. Kári Kristján Kristjánsson og Fannar Friðgeirsson eru á mála hjá Wetzlar en sá fyrrnefndi átti stórleik gegn Füchse Berlin. Hann var markahæstur með sjö mörk og skoraði sigurmark sinna manna rúmri mínútu fyrir leikslok. „Þetta var algjör sleggja,“ sagði Kári Kristján í léttum dúr þegar að Fréttablaðið sló á þráðinn til hans í gær. „Því er ekki að neita að við erum í spútnikbransanum þessar vikurnar og höfum komið öllum á óvart – ekki síst okkur sjálfum,“ bætir hann við. Fór á kostum á lokamínútunum Lokamínútur leiksins voru æsi- spennandi. Wetzlar var þremur mörkum yfir en Füchse Berlin náði að jafna metin þegar rúmar tvær mínútur voru eftir. Kári Kristján skoraði sigurmarkið stuttu síðar en þess má geta að línumaðurinn sterki sá alfarið um markaskorun Wetzlar síðustu tíu mínútur leiksins. Þá skoraði hann öll fjögur mörk liðsins. „Ég spáði reyndar ekkert í því fyrr en ég las það eftir leikinn. Og er ég ekki að ljúga neinu um það,“ segir hann og hlær. „Þetta spil- aðist ágætlega fyrir mig síðasta korterið en fram að því hafði ég lítið fengið boltann. Þetta er bara eitthvað sem þróast eftir því sem líður á leikinn og geta verið ýmsar ástæður fyrir því.“ Engin algild skýring á genginu Dagur Sigurðsson er þjálfari Füchse Berlin og hefur náð frá- bærum árangri með liðið. Tvö ár í röð hefur liðið komist í Meist- aradeild Evrópu og fóru Berlínar- refirnir alla leið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu á sínu fyrsta tímabili í keppni þeirra bestu. Það telst því til mikilla tíðinda þegar að lið eins og Wetzlar blandar sér skyndilega í topp- baráttu deildarinnar eins og liðið gerði á miðvikudagskvöldið. Kári segir erfitt að finna eina algilda skýringu fyrir þessu góða gengi. Það sé margt sem komi til. „Við fengum nokkra góða leik- menn fyrir tímabilið en svo hefur okkur tekist að spila mjög vana- fastan og góðan handbolta. Vörnin okkar er mjög sterk og við erum með góðan markvörð, enda höfum við fengið einna fæst mörk á okkur í deildinni. Þetta hefur bara verið heilt yfir nokkuð stöðugt hjá okkur og það skiptir máli,“ segir hann og neitar því ekki að gengi liðsins hafi komið sér á óvart. Getur verið fljótt að breytast „Fjárhagur okkar er ekki í námunda við þessi félög sem eru yfirleitt í toppbaráttu deildarinnar. Þar af leiðandi eru margir hissa á þessu en við vitum líka að þetta getur verið fljótt að breytast. En er á meðan er og ég ætla að njóta augnabliksins. Við höfum engu að tapa og förum í leikina gegn þessum stóru liðum alveg áhyggju lausir. Nú eigum við fram undan leiki gegn liðum sem eru fyrir neðan okkur í töflunni og reynir þá á að sýna að við getum haldið dampi og unnið þau líka,“ segir Kári. Get ekki kvartað Kári Kristján er á sínu þriðja tíma- bili hjá Wetzlar og segist hafa bætt sig á hverju ári. „Ég missti reyndar af öllu undirbúningstíma- bilinu vegna Ólympíuleikanna og því var byrjun tímabilsins hjá mér nokkuð brösótt. En svo hefur þetta gengið ágætlega og ég hef fengið mínar 45-50 mínútur í leik. Ég hef því yfir litlu að kvarta.“ eirikur@frettabladid.is Komið sjálfum okkur á óvart Kári Kristján Kristjánsson átti stórleik þegar að lið hans Wetzlar skaust upp í þriðja sæti þýsku úrvals- deildarinnar í handbolta með sigri á Füchse Berlin á útivelli. Kári skoraði fj ögur síðustu mörk Wetzlar. VÍGALEGUR Kári Kristján í leik með þýska liðinu Wetzlar. NORDICPHOTOS/GETTY Fannar Friðgeirsson er á sínu fyrsta tímabili í Wetzlar en hann kom til liðsins frá B-deildarliðinu Emsdetten þar sem hann var í tvö ár. „Hann hefur komið mjög sterkur inn í okkar lið. Fannar er okkar aðalmaður þegar við spilum framliggjandi vörn og er virkilega sterkur í návígi. Hann átti sérstaklega góðan leik gegn Füchse Berlin, bæði í sókn og vörn, en ég tel að hann eigi samt heilmikið inni. Enda er hann enn að venjast úrvals- deildinni,“ segir Kári Kristján Kristjánsson, liðsfélagi hans. ➜ Fannar er öflugur 50:09 23-25 Kári skorar 50:32 Mark Bult skorar 24-25 52:49 24-26 Kári skorar 56:03 Konstantin Igropulo skorar 25-26 56:44 Torsten Laen skorar 26-26 57:30 26-27 Kári skorar 57:54 Ivan Nincevic skorar 27-27 58:09 Denis Spolijaric fær brottvísun 58:52 27-28 Kári skorar 59:32 Dagur tekur leikhlé 60:00 Leik lokið Síðustu tíu mínúturnar ÚRSLIT N1-DEILD KARLA AKUREYRI 25 (13) FRAM 18 (12) Mörk Akureyrar (skot): Bergvin Þór Gíslason 8 (10), Guðmundur H. Helgason 6 (9), Geir Guð- mundsson 5 (7), Bjarni Fritzsson 4/2 (7/2), Heimir Örn Árnason 1 (1), Hreinn Þór Hauksson 1 (1), Andri Snær Stefánsson (1), Snorri Björn Atlason (1). Varin skot: Jovan Kukobat 9/1 (26/4, 35%). Hraðaupphlaup: 1 (Bjarni 1) Fiskuð víti: 2 (Guðmundur H. 1, Friðrik 1) Utan vallar: 12 mínútur. Mörk Fram (skot): Róbert Aron Hostert 6 (12), Haraldur Þorvarðarson 4/3 (5/4), Stefán Darri Þórsson 2 (6/1), Elías Bóasson 1 (1), Stefán Baldvin Stefánsson 1 (1), Ægir Hrafn Jónsson 1 (2), Garðar B. Sigurjónsson 1/1 (2/2), Ólafur Magnússon 1 (3), Sigurður Eggertsson 1 (3), Arnar Freyr Dagbjartsson (1). Varin skot: Björn Viðar Björnsson 7 (21/2, 33%), Magnús Erlendsson 3 (14, 21%). Hraðaupphlaup: 3 (Róbert 1, Stefán 1, Ægir 1) Fiskuð víti: 7 (Róbert Aron Hostert 1, Haraldur Þorvarðarson 1, Stefán Darri Þórsson 1, Elías Bóasson 2, Stefán Baldvin Stefánsson 1, Ólafur Magnússon 1) Utan vallar: 8 mínútur. AFTURELDING 28 (15) HK 28 (13) Mörk Aftureldingar (skot): Örn Ingi Bjarkason 6/1 (8/1), Jóhann Jóhannsson 5 (10/1), Sverrir Her- mannsson 5 (11), Pétur Júníusson 4 (4), Hilmar Stefánsson 4/1 (6/2), Benedikt R. Kristinsson 3 (5), Helgi Héðinsson 1 (1), Þrándur Gíslason (2). Varin skot: Davíð Svansson 13/3 (35/4, 37%), Smári Guðfinnsson 3 (9/1, 33%). Hraðaupphlaup: 6 ( Jóhann 2, Hilmar 2, Sverrir 1, Pétur 1) Fiskuð víti: 4 (Örn Ingi 2, Þrándur 2) Utan vallar: 10 mínútur. Mörk HK (skot): Bjarki Már Elísson 9/1 (16/3), Garðar Svansson 5 (6), Ólafur Víðir Ólafsson 5/1 (8/1), Atli Karl Bachmann 4 (4), Bjarki Már Gunn- arsson 2 (2), Leó Snær Pétursson 2 (3), Daníel Örn Einarsson 1 (3/1), Eyþór Már Magnússon (2). Varin skot: Arnór Freyr Stefánsson 15/2 (43/4, 35%). Hraðaupphlaup: 5 (Bjarki Már 4, Leó Snær 1) Fiskuð víti: 5 (Bjarki Már 1, Garðar 2, Ólafur Víðir 2) FH 26 (9) VALUR 23 (10) Mörk FH (skot): Ragnar Jóhannsson 5 (8), Ás- björn Friðriksson 5/1 (9/1), Logi Geirsson 4 (6), Sigurður Ágústsson 3 (6), Einar Rafn Eiðsson 3/2 (7/3), Andri Berg Haraldsson 2 (3), Þorkell Magnússon 2 (4), Ari Magnús Þorgeirsson 1 (2), Arnar Birkir Hálfdánsson 1 (2), Magnús Óli Magnússon (1), Bjarki Jónsson (2). Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 17 (40, 43%). Hraðaupphlaup: 8 (Ragnar 1, Ásbjörn 2, Logi 2, Andri Berg 2, Þorkell 1). Fiskuð víti: 4 (Sigurður 2, Ásbjörn 1, Þorkell 1) Utan vallar: 0 mínútur. Mörk Vals (skot): Finnur Ingi Stefánsson 6 (13), Atli Már Báruson 4 (5), Hjálmar Þór Arnarson 3 (3), Adam Seferovic 3 (9), Sigfús Sigurðsson 2 (2), Vignir Stefánsson 2 (5), Valdimar Fannar Þórsson 2 (5/1), Gunnar Kristinn Þórsson 1 (1), Agnar Smári Jónsson (3), Þorgrímur Smári Ólafsson (3). Varin skot: Hlynur Morthens 17/1 (42/3, 40%). Hraðaupphlaup: 9 (Finnur Ingi 4, Seferovic 1, Vignir 2, Valdimar 1, Gunnar 1) Fiskuð víti: 1 (Atli Már 1) Utan vallar: 8 mínútur. STAÐAN Haukar 8 7 1 0 218-175 15 Akureyri 9 5 1 3 224-216 11 ÍR 8 4 1 3 210-209 9 FH 9 4 1 4 217-229 9 HK 9 3 2 4 219-232 8 Fram 9 3 1 5 225-232 7 Valur 9 2 2 5 214-222 6 Afturelding 9 2 1 6 220-232 5 EVRÓPUDEILD UEFA LAZIO 0 TOTTENHAM 0 Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Tottenham. LIVERPOOL 2 YOUNG BOYS 2 1-0 Jonjo Shelvey (33.), 1-1 Raul Bobadilla (52.), 2-1 Joe Cole (72.), 2-2 Elsad Zverotic (88.) NEWCASTLE 1 MARITIMO 1 1-0 Sylvain Marveaux (23.), 1-1 Fidelis (79.). MOLDE 1 FC KAUPMANNAHÖFN 2 Rúrik Gíslason var í byrjunarliði FCK skoraði sigur- mark leiksins á 72. mínútu. Ragnar Sigurðsson var einnig í byrjunarliðinu en Sölvi Geir Ottesen var ekki í leikmannahópunum. AIK 1 NAPOLI 2 Helgi Valur Daníelsson skoraði mark AIK. visir.is ALLT UM LEIKI GÆRKVÖLDSINS SPORT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.