Fréttablaðið - 23.11.2012, Qupperneq 62
23. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR| MENNING | 46
OREO
BANANA
SÚKKULAÐIKAKA
Sími: 561 1433
Innihald: Súkkulaðibotnar, súkkulaðimousse, bláberja
sulta
, ba
nan
ar
og
O
re
ok
ex
.
Opnunartími:
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugar- og sunnudaga 8.00 -16.00
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Fréttablaðið efnir til verðlaunasamkeppni um bestu
frumsömdu jólasöguna.
Verðlaunasagan birtist í Fréttablaðinu á aðfangadag,
myndskreytt af Halldóri Baldurssyni teiknara.
Samkeppnin er öllum opin.
Einu skilyrðin eru þau að sagan fjalli um jólin eða fangi
anda jólanna með einum eða öðrum hætti. Lengdarmörk
eru 1.000 til 1.300 orð en að öðru leyti eru efnistök frjáls.
Sögur skal senda á netfangið jolasaga@frettabladid.is.
Skilafrestur er til 5. desember.
Fyrstu verðlaun eru Intel Pentium-fartölva frá Toshiba.
Verðlaun fyrir annað og þriðja sæti eru spjaldtölvur af
gerðinni United.
Sigurlaunin eru frá Tölvulistanum.
Jólasagan þín
„Ég stend vaktina alla helgina í
Dótturfélaginu en er svo heppin
að vera boðin í risa matarboð í
anda þakkargjörðarhátíðarinnar á
laugardaginn. Það verður hápunktur
helgarinnar og ég hlakka mikið til.“
Oddný Jóna Bárðardóttir, annar eigandi
fataverslunarinnar Dótturfélagið.
HELGIN
„Ég held að ég gæti verið búin að
finna spegilmynd mína. Ég ætla
samt ekki að gera mér of miklar
vonir því ég á eftir að hitta hana,“
segir leikkonan Ólöf Hugrún Valdi-
marsdóttir sem opinberaði misstóra
fætur sína í blaðinu í gær.
Hægri fótur Ólafar er í skóstærð
38 en sá vinstri er stærð 40. Mun-
urinn hefur löngum valdið Ólöfu
vandræðum, enda þarf hún yfir-
leitt að kaupa tvö pör af skóm. Því
auglýsti hún eftir einhverjum sem
glímdi við sama vandamál, nema
öfugt, og gæti deilt með henni skó-
kaupum. Í kjölfarið á fréttinni í gær
hefur pósti rignt yfir Ólöfu þar sem
fólk deilir með henni reynslu sinni
af misstórum fótum sínum. „Þetta
hefur vakið mikla athygli og auð-
vitað skemmtun. Vinir mínir hafa
gert mikið grín að mér og skammað
mig fyrir að reka ofan í þá tærnar
með morgunkaffinu,“ segir Ólöf,
sem prýddi forsíðu Fréttablaðsins
í gær.
Í kjölfarið á þessum góðu við-
tökum stofnaði Ólöf Félag misfæt-
linga á Facebook í gær og þegar
í stað skráðu fimm meðlimir sig
í hópinn. „Geturðu ímyndað þér
hversu skemmtilegir hittingar
geta verið hjá félaginu, allir að
bera saman fætur sínar í tíma og
ótíma? Það besta er að ég held að ég
sé búin að para tvo saman sem geta
deilt skókaupum. Mér líður eins og
sambandsmiðlara,“ segir Ólöf kát
og viðurkennir að hún sé fegin að
heyra að hún sé ekki ein með þetta
vandamál. „Ég er viss um að ég hef
stuðlað að ákveðinni vakningu um
misstóra fætur og ég bið misfæt-
linga um að hika ekki við að hafa
samband.“ - áp
Stofnaði Félag misfætlinga vegna viðbragða
Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir gæti hafa fundið fótaspegilmynd sína en hefur enn ekki hitt hana.
STOFNAR SAMTÖK Ólöf Hugrún Valdi-
marsdóttir hefur fengið fjöldann allan
af pósti frá fólki sem er með misstóra
fætur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Ég er gríðarlega sáttur,“ segir
tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds.
Hann hefur gert samning við Uni-
versal og mun þessi útgáfurisi gefa
út næstu plötur hans.
„Þetta voru mjög langar samn-
ingaviðræður. Við erum búin að
vera að semja síðan í apríl til að
reyna að fá eins góðan „díl“ og
hægt er. Ég er með mínar sérþarfir
sem listamaður og vildi ekki fórna
neinu. Það gekk upp á endanum,“
segir Ólafur, hress með nýja samn-
inginn.
Hljómsveitin Of Monsters and
Men er einnig á útgáfusamningi
hjá Universal. „Þau hafa ekki farið
neitt illa með Of Monsters and
Men,“ bætir Ólafur við.
Fyrsta plata hans á vegum Uni-
versal lítur dagsins ljós úti um allan
heim í lok febrúar. „Hún er fram-
hald af því sem ég er búinn að vera
að gera en hún er kannski aðeins
poppaðri,“ segir hann. Arnór Dan
úr Agent Fresco syngur fjögur lög á
plötunni, sem var tekin upp í Hörpu
ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Það var einmitt samningurinn við
Universal sem gerði það að verkum
að hann gat leyft sér þann munað.
„Ég hef möguleika á að gera miklu
stærri hluti en ég hafði áður. Ég gat
eytt miklu meira í þessa plötu og
þess vegna fengum við Sinfóníuna.“
Gerir útgáfusamning
við Universal-risann
Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds átti í mjög löngum samningaviðræðum.
SÁTTUR Ólafur Arnalds er gríðarlega sáttur við nýja útgáfusamninginn við Universal. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Samningurinn við Universal felur ekki sér kvik-
myndatónlist af neinu tagi. Ólafur hefur
undanfarið látið að sér kveða sem
kvikmyndatónskáld samhliða píanó-
skotinni sólótónlist sinni. Hann samdi
tónlistina við myndina Another Happy Day með
Demi Moore í aðalhlutverki, auk þess sem lag
hans Allt varð hljótt hljómaði í stórmyndinni
The Hunger Games í sumar. Upphaflega
var hann í viðræðum um að semja alla
tónlistina í myndinni en ekkert varð
af því. „Ein af ástæðunum fyrir því að
samningurinn tók svona langan tíma var
að ég vildi hafa það algjörlega fyrir utan
þennan samning, því ég er með svo fínan
samning við umboðsmann í Hollywood
fyrir kvikmyndirnar,“ segir Ólafur.
Vildi ekki semja um kvikmyndatónlist
Aðspurður segir Ólafur að samn-
ingurinn sé frábært tækifæri og
opni fyrir sér nýjar dyr. Hann
hefur síðastliðin fimm ár verið á
mála hjá litlu bresku útgáfufyrir-
tæki, Erased Tapes. „Það hefur
gengið rosalega vel en þetta er
bara annar pakki. Að fara frá því
að vera í fyrirtæki þar sem eru
tveir starfsmenn yfir í fyrirtæki
þar sem í hverju einasta landi eru
fimm manns bara að sjá um mark-
aðsmálin.
Hjá indífyrirtækinu telst gott að
selja þrjátíu þúsund plötur en hjá
Universal telst það ekkert sérstak-
lega gott.“
Í tilefni af nýju plötunni heldur
Ólafur útgáfutónleika í nokkrum
löndum þar sem hann spilar með
þarlendum sinfóníuhljómsveitum.
Fyrstu tónleikarnir verða með Sin-
fóníuhljómsveit Lundúna í hinni
virtu tónleikahöll Barbican Hall
í Lundúnum. Svo verður förinni
heitið til Berlínar, New York og
Los Angeles. Að þessum tónleikum
loknum fer Ólafur í þriggja mánaða
hefðbundnari tónleikaferð í vor með
eigin hljómsveit. freyr@frettabladid.is