Fréttablaðið - 24.12.2012, Síða 1
GLEÐILEG JÓLMörgum finnst jólin ganga í garð þegar jólaguðsþjón-
ustan hefst í útvarpinu klukkan sex á aðfangadag.
Útvarpað verður frá Dómkirkjunni í Reykjavík
þar sem séra Hjálmar Jónsson predikar og séra
Sveinn Valgeirsson þjónar fyrir altari.
BOÐAR KOMU JÓLASigvaldi hefur í 25 ár les-ið jólakveðjur í útvarpinu og oftsinnis verið á vakt-inni á aðfangadagskvöld. Í ár eru 80 ár síðan lestur jólakveðja hófst í útvarpinu og nú í fyrsta sinn hófst lesturinn að kvöldi 22. desember.MYND/GVA
S igvaldi hafði verið með beinverki og fundið fyrir verk á milli herða-blaða síðustu vikuna fyrir jól.„Í móðurættinni er mikið hjartavesen og mamma hvatti mig til að leita læknis. Ég ætlaði að hrista þetta af mér og tengdi verkinn ekki við hjartað því hann leiddi ekki út í handlegg,“ segir Sigvaldi sem fyrir röð tilviljana hrósaði sönnu lífshappi á vetrarsólstöðum fyrir ári.„Ég hafði nýlokið við að pakka inn jólagjöfum þegar Ásgerður Þórisdóttir, vinkona mín og hjúkrunarfræðingur, hringdi og spurði hvernig ég hefði það. Hún tók af mér loforð um að láta tékka á mér í hjartagátt Landspítalans þegar ég sagðist daufur og lýsti fyrir henni verkjunum.“ Minnugur loforðsins og með fullan bíl af jólagjöfum ákvað Sigvaldi að koma við á spítalanum. „Þar tilkynntu læknar mér að ég væri með kransæðastíflu og þyrfti í hjarta-
þræðingu hið fyrsta. Ég stakk upp á að
ég kæmi þá inn á milli jóla og nýárs,“ segir Sigvaldi, sem uppskar mikinn hlát-
ur læknanna þegar hann stakk líka upp
á að ljúka við að koma út jólagjöfunum.
„Daginn eftir gekkst ég undir þræðingu
og fékk að fara heim á aðfangadag enda
í góðu formi og ljónheppinn að sleppa
við hjartaskemmd. Ég hef stundum grín-
ast með að mánuði áður var ég aleinn á
rjúpu norður í landi og prílandi upp um
fjöll og firnindi. Hefði ég fengið áfall þar
væri ég ekki til frásagnar,“ segir Sigvaldi
þakklátur almættinu.„Ég lít lífið nú öðrum augum og af meira æðruleysi, er duglegur að trimma
og hef minnkað skammtana þótt ég sé mikill nautnamaður í mat.“ Í kvöld gegnir Sigvaldi ábyrgðarhlutverki þegar
hann tilkynnir þjóðinni að jólin séu loks
komin á undan aftansöng.
■ thordis@365.is
ÞAKKLÁTUR LÍFINUBOÐAR KOMU JÓLA Sigvaldi Júlíusson, útvarpsþulur á Rás 1, átti að vera á
vakt á aðfangadagskvöld í fyrra þegar örlögin gripu grimmilega í taumana.
KEEPING UP WITH THE KARDASHIANSE! ENTERTAINMENT ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS
Save the Children á Íslandi
SÉRBLAÐ
Fólk
JÓLASAGAN 18
– Lifið heil
www.lyfja.is
Við höfum
opið um jólin
Opið aðfangadag:
kl. 8-18 í Lágmúla
kl. 8-18 á Smáratorgi
Opið jóladag:
kl. 10-1 í Lágmúla
kl. 9-24 á Smáratorgi
Gleðilega jólahátíð
STEINUNN KETILSDÓTTIR
Nýtt íslenskt dansverk sýnt
í Kassanum, Þjóðleikhúsinu.
FRUMSÝNING 28. DES.
30.DES. 5.JAN. 6.JAN.
9.JAN. & 10.JAN.
JAELSKAN.IS / LEIKHUSID.IS
DEKUR
www.badhusid.is
Gjafakort
Keyptu á heimasíðunni
og prentaðu út.
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
24. desember 2012 | 302. tölublað 12. árgangur | Sími: 512 5000AÐFANGADAGUR
Drifhvít mjöllin skapar friðsæld er hún breiðir mjúka og þykka voð yfir hús og tré á mynd Þóris Ó. Tryggvasonar, málarameistara á Akur-
eyri, sem sigrar í jólamyndakeppni Fréttablaðsins í ár. Eins og sjá má er klukkan tuttugu mínútur gengin í sex og auðvelt að ímynda sér
að brátt heyrist kirkjuklukkur í fjarska hringja inn heilög jól. 16
FISKUR Á
AÐFANGADAGSKVÖLD 20