Fréttablaðið - 24.12.2012, Page 4

Fréttablaðið - 24.12.2012, Page 4
24. desember 2012 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4 BÍLAR Tæplega 7.800 fólksbílar hafa verið nýskráðir hér á landi á þessu ári samkvæmt tölum Umferðarstofu. Þetta er veru- leg aukning miðað við tvö síðustu ár en í fyrra voru rétt rúm- lega 5.000 bílar nýskráðir og um 3.000 árið 2010. Bílamark- aðurinn hefur smám saman verið að taka við sér eftir bankahrun. Hápunktinum var náð árið 2007 þegar um sextán þúsund bílar voru nýskráðir en árið 2009 voru þeir rétt um 2.200. LÖGREGLUMÁL Ekið hefur verið á að minnsta kosti 55 gangandi vegfarendur það sem af er ári á höfuð borgarsvæðinu. Þeim slys- um sem hafa átt sér stað á nótt- unni hefur fjölgað. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær. Á síðustu fjórum árum hafa flest slys, þar sem ekið er á gangandi vegfarendur, orðið yfir vetrar mánuðina. Í langflestum tilvikanna eða 84% var ekið á gangandi vegfar- endur þegar þeir voru á umferð- argötu en aðeins í 7% tilvika á fólk sem var að fara yfir gang- braut. Í um 4% tilvika óku ökumenn burt af vettvangi slyssins. 4% ökumanna stungu af: 55 vegfarendur orðið fyrir bíl Nýjum bílum fjölgar: Um 7.800 nýir bílar á árinu MENNING „Eftir hæga byrjun virðist bóksala hafa verið lífleg síðustu tvær vikur,“ segir Kristján B. Jónasson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda. „Mér skilst á stærri forlögunum að þau séu mjög ánægð með sinn hlut. Sérstaklega hafa skáldsögurnar verið að taka mjög við sér undanfarið.“ Að sögn Kristjáns hafa vinsælustu bækurnar verið að seljast í um 15-20 þúsund eintökum og einhverjar þar yfir, þar á meðal Arnaldur Indriðason, Yrsa Sigurðardóttir og Matreiðslubók Disney. Kristján segir erfitt að skjóta á hvort bóksala sé á pari við síðustu ár en telur þó að veltan verði svipuð í ár, eða í kringum fimm milljarða. - kh Vinsælustu bækurnar fara í um 20 þúsund eintök: Bóksala fór hægt af stað BÓKSALA Það var nóg að gera í bókabúð Máls og menningar við Laugaveg í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI RÓM, AP Mario Monti, sem leitt hefur sérfræðingaríkisstjórn á Ítalíu í rúmt ár, mun ekki bjóða sig fram í þingkosningunum þar í landi í febrúar þrátt fyrir hvatn- ingu til þess. Monti er þó reiðu- búinn til að gegna starfi sínu áfram falist sigurvegarar kosning- anna eftir því og séu þeir tilbúnir til að styðja þá stefnu sem ríkis- stjórn Monti hefur markað. Monti hélt blaðamannafund í gær þar sem hann opinberaði fyrir ætlanir sínar. Sagðist hann ekki geta boðið sig fram í komandi kosningum þar sem hann styddi engan stjórnmálaflokka landsins. Silvio Berlusconi, forveri Monti og leiðtogi hægri flokksins Forza Italia, hafði boðið Monti að vera forsætisráðherraefni flokksins í kosningunum í febrúar. Á blaða- mannafundinum í gær sagðist Monti hins vegar furða sig á boð- inu þar sem flokkur Berlusconi hefði verið mjög gagnrýninn á aðgerðir ríkisstjórnar sinnar. Með tilkynningunni batt Monti enda á margra vikna vangaveltur um fyrirætlanir sínar. Hafði hann víða fengið hvatningu til þess að bjóða sig fram og hafði viðskipta- jöfurinn Luca Cordero di Monteze- molo, stjórnarformaður Ferrari, stofnað miðjusinnaða stjórnmála- hreyfingu sem hann vonaðist til að Monti féllist á að leiða. Ríkisstjórn Monti tók við völd- um í nóvember 2011 þegar síðasta stjórn Berlusconi hrökklaðist frá völdum. Stjórninni var falið það verkefni að rétta af efnahag Ítalíu og endurreisa trúverðugleika landsins í augum fjármálamark- aða. Ríkisstjórnin þykir almennt hafa staðið sig vel þótt vinsældir hennar hafi dvínað eftir því sem liðið hefur á starfstíma hennar. Á sama tíma hafa flokkarnir á ítalska þinginu orðið tregari til að samþykkja stefnu stjórnarinnar. Ríkisstjórn Monti ákvað að fara frá á dögunum þegar flokkur Ber- lusconi hætti að styðja stjórnina en áður naut hún stuðnings allra helstu flokka ítalska þingsins. Stjórnin ákvað þó að klára að koma fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár í gegnum þingið áður en boðað var til kosninganna í febrúar. Samkvæmt skoðanakönnunum nýtur hinn vinstri sinnaði Lýð- ræðisflokkur mests fylgis og er leiðtogi hans, Pier Luigi Bersani, líklegastur til að taka við af Monti. magnusl@frettabladid.is Monti ekki fram en til í að halda áfram Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu, batt í gær enda á vangaveltur um að hann myndi leiða bandalag miðflokka í þingkosningum þar í landi í febrúar. Monti segist reiðubúinn til að halda áfram sem forsætisráðherra en hyggst ekki fara í framboð. MONTI OG BERSANI Mario Monti til vinstri og Pier Luigi Bersani, formaður hins vinstri sinnaða Lýðræðisflokks, sem er talinn líklegasti eftirmaður Monti sem forsætisráðherra Ítalíu. MYNDIR/AP OG AFP/NORDICPHOTOS MATVÆLI Matvælastofnun sá ástæðu til að slá á áhyggjur mat- gæðinga á heimasíðu sinni og tekur af allan vafa um að þjóðlegar aðferðir við að vinna hákarl standa óhaggaðar þrátt fyrir breytingar á matvælalöggjöfinni. Í nýrri löggjöf um matvæli á Evrópska efnahagssvæðinu er þess gætt að sveigjanleiki sé til staðar varðandi framleiðslu, vinnslu og dreifingu matvæla og að löggjöf- in dragi ekki úr fjölbreytileika í evrópskri matargerð og hefðum. Sveigjanleiki í löggjöfinni er sérstaklega mikilvægur varðandi framleiðslu á matvælum sam- kvæmt gamalgrónum hefðum og aðferðum. Vinnsla á hákarli er ein slíkra aðferða sem byggja á sögu- legri hefð. Stefnt er að því að regl- ur um hefðbundna framleiðslu verði gefnar út á komandi ári. Því hafa ekki verið gerðar neinar breytingar á heimildum framleið- enda til að setja á markað hákarl sem unninn hefur verið á hefðbund- inn hátt. - sh Ný löggjöf um matvæli hindrar ekki þjóðlega matvælagerð á Íslandi: Ekkert í vegi fyrir vinnslu á hákarli ÞJÓÐLEGT Sigurður Hólm og nafni hans Tómasson gera sig líklega til að skera hákarl. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SVÍÞJÓÐ Sænska konungsfjöl- skyldan færði sænsku þjóðinni gleðitíðindi í gær þegar hún til- kynnti að Madeleine prinsessa og unnusti hennar, Christopher O‘Neill, ætli að gifta sig í júní. Talsmaður konungsfjölskyld- unnar segir að brúðkaupið verði ekki eins íburðarmikið og brúð- kaup eldri systurinnar, Viktoríu. O‘Neill er bresk-bandarískur bankastjóri en hjúin kynntust í New York í fyrra og trúlofuðu sig í október síðastliðnum. Gleðitíðindi frá Svíþjóð: Madeleine í hnapphelduna 228,8443 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR USD 126,03 204,82 205,82 166,54 167,48 22,319 22,449 22,626 22,76 19,333 19,447 1,4976 1,5064 194,41 195,57 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR GENGIÐ 21.12.2012 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Soff ía Sveinsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Miðvikudagur - annar í jólum 13-18 m/s en hægari inn til landsins. JÓLAVEÐRIÐ verður ólíkt milli landshluta. Norðaustanátt ríkir næstu daga með snjókomu eða éljum norðan- og austanlands en það léttir heldur til syðra. Það kólnar heldur í veðri og á annan í jólum eru líkur á töluverðu frosti, einkum NA-til. -2° 10 m/s -1° 10 m/s -2° 5 m/s 3° 0 m/s Á morgun Víða 10-18 m/s, einkum NV-til. Gildistími korta er um hádegi -8° -10° -7° -10° -11° Alicante Aþena Basel 18° 12° 8° Berlín Billund Frankfurt 10° 4° 12° Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn 13° 4° 4° Las Palmas London Mallorca 24° 13° 20° New York Orlando Ósló 3° 22° -5° París San Francisco Stokkhólmur 12° 13° -4° 0° 4 m/s 3° 11 m/s -1° 7 m/s -1° 12 m/s 0° 5 m/s 0° 9 m/s -6° 6 m/s -4° -8° -4° -7° -9°

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.