Fréttablaðið - 24.12.2012, Síða 32
24. desember 2012 MÁNUDAGUR| MENNING | 28
BAKÞANKAR
Sr. Sigurðar Árna
Þórðarsonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
Hvað verður í pakkanum þínum, já, öllum pökkum kvöldsins? Verða ein-
hverjar skyldugjafir – án hjartahlýju?
Færðu kannski pakka sem kosta lítið en
snerta þig þó samt djúpt af því þeir tjá
ást? Pakkar eru mismunandi og gildi
þeirra líka.
HVAÐ skiptir þig mestu máli í lífinu?
Hugsaðu um hvað þú mátt missa. Eru
það hlutirnir þínir og vinnan eða er það
fólkið þitt? Hvað er það sem þú getur alls
ekki án verið? Ég sperri eyru þegar fólk
á krossgötum lífsins – og stundum við
ævilok – gerir upp stóru málin. Það sem
skiptir máli þegar allt og dýpst er
skoðað er lifandi fólk, maki, börn,
ástvinir – ekki dótið. Oft er
stærsta sorg fólks við ævilok að
hafa ekki haft meira næði til að
vera með ástvinunum.
UNGIR drengir mínir hafa
stundum skrifað okkur
foreldrunum kort og bréf. Þar
eru áhrifaríkar tilkynningar
með stórum og barnslegum
stöfum: „Pappi er bestur“ eða
„Mamma er best í heiminum.“
Þessi bréf eru ekki hlutlægar
lýsingar heldur tjá frekar tengsl
og tilfinningar. Við sem fáum
svona ástarbréf fögnum þeim. Á
snepli, sem ég geymi sem merki-
legasta plagg heimsins, stendur.
„Ég elska þig, pabbi.“ Þessi setning varð-
ar lífshamingju mína. Það er þetta sem
skiptir öllu máli. Það er undur að fá að
elska og vera elskaður. Það sker úr um líf
og hamingju. Miði drengsins myndi ekki
vera metinn til margra króna en er mér
samt óendanlega dýrmætur.
HVERJU leyfum við að komast að
okkur? Erum við til í að opna tilfinn-
ingapakkann líka? Jólaboðskapurinn er
ekki fyrst og fremst um meyjarfæðingu,
vitringa, englaskara eða að Jesús fædd-
ist í Betlehem. Allt þetta kemur við sögu,
en þau mál eru meira rammi en megin-
mál. Aðferð helgisögunnar er að nota stef,
ímyndir og minni sem þjóna boðskap eða
skilaboðum þeirrar sögu. Til að taka eftir
hinu guðlega megum við alveg skræla
burt það sem ekki hefur lengur skiljan-
lega skírskotun. Helgisögur eigum við
ekki að taka bókstaflega heldur alvarlega.
UM hvað er þá jólaboðskapurinn? Að Guð
elskar ákaft og persónulega. Tilveran er
ekki til dauða heldur er nóttin rofin gráti
þess barns sem er merkingarvaki allrar
veraldar. Guð elskar ákaft og tjáir þér
á öllum stundum lífsins, með börnum, í
makafangi og alls staðar: „Ég elska þig.“
HORFÐU svo í augu fólksins þíns og
sjáðu í þeim ást og undur lífsins.
GLEÐILEG JÓL
Ég elska þigLÁRÉTT2. dangl, 6. skóli, 8. spor, 9. angan, 11.
leita að, 12. grastoppur, 14. undireins,
16. skammstöfun, 17. vel búin, 18.
yfirgaf, 20. vörumerki, 21. skraut.
LÓÐRÉTT
1. margskonar, 3. frá, 4. nagdýr, 5.
knæpa, 7. vínandi, 10. ásamt, 13.
útdeildi, 15. svari, 16. bókstafur, 19.
óreiða.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. bank, 6. ma, 8. far, 9. ilm,
11. gá, 12. skegg, 14. óðara, 16. eh, 17.
fín, 18. fór, 20. ss, 21. flúr.
LÓÐRÉTT: 1. ýmis, 3. af, 4. naggrís, 5.
krá, 7. alkóhól, 10. með, 13. gaf, 15.
ansi, 16. eff, 19. rú.
Þú! ég verð að
viðurkenna að ég
hef fylgst með þér í
langan tíma!
Er
það? Já! Ég hef haft þig
í sjónlínunni lengi!
Mig?
Ertu að
grínast?
Nei, nei!
Ég veit meira að
seg ja hvar þú átt
heima!
Ég sá þetta ekki
fyrir, hvað er
næst!
Tja – hérna
kemur
lögreglan!
Þetta er það næsta sem við
höfum komist í samræðum við
kvöldmatinn.
Hvernig
var
dagurinn?
Frábær
kvöld-
matur,
mamma!
Viltu
hjálp
við að
vaska
upp?
Já, ég veit.
Ég fer með hann út tvisvar á
dag og hann skilar aldrei
af sér heldur.
Hvað gerðist,
Hannes?
En þú heldur um
olnbogann.
Já, vegna þess að ég datt
á hjólabrettinu þegar ég var
á leiðinni að seg ja þér frá
því þegar ég datt á hjólinu.
Já, það er auðvitað best
að skýra frá meiðslum í
réttri röð.
Þá ætti ég að byrja
á ökklanum …
Ég datt á hjólinu og
meiddi mig í hnénu.
Kynslóðir elda
með okkur
Fissler pottar, pönnur og önnur
búsáhöld í miklu úrvali.
Einnig vandaðir hraðsuðupottar
sem gera matseldina hraðari
og hollari. Þýsk hágæðavara.
Fissler hefur framleitt hágæða potta
og pönnur í Þýskalandi í 167 ár.
ÚTSÖLUSTAÐIR:
ht.is
SUÐURLANDSBRAUT 26 - REYKJAVÍK - SÍMI 569 1500
Umboðsmenn um land allt
LAUGAVEGI 178. Sími: 568 9955.