Fréttablaðið - 27.12.2012, Side 12
27. desember 2012 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 12
Þúsundir barna í Noregi undir 10 ára aldri hafa eigið bankakort. Nú íhuga
forsvarsmenn nokkurra banka í Svíþjóð að feta í fótspor Norðmanna og
lækka aldurstakmarkið, sem nú er 13 ára. Norski bankinn Sparebank 1
heimilaði í fyrra sjö ára börnum að fá eigið bankakort. Var það í kjölfar
óska margra foreldra. Mörg þúsund ung börn í Noregi hafa nú fengið eigið
bankakort til notkunar, að því er segir í frétt á vef sænska ríkisútvarpsins.
VIÐSKIPTI Ung börn fá að nota bankakort
Neytendasamtökin leggj-
ast gegn auknum álögum
á neysluvörur og er
„sykurskatturinn“ engin
undantekning, að því er
segir í frétt á vef sam-
takanna. Tekið er fram að
ekki sé gert lítið úr mikil-
vægi þess að þjóðin dragi
úr sykurneyslu og bæti
mataræðið. Ef berjast
eigi gegn vaxandi offitu
og öðrum sjúkdómum
sem rekja má til rangs
mataræðis sé þó miklu
nær að yfirvöld tryggi
að merkingar á mat-
vælum séu skiljanlegar.
Það ætti að vera fyrsta
skrefið. Í fréttinni segir að neytendur eigi að geta séð svart á hvítu hvort
vara inniheldur mikið af sykri, salti eða fitu. Þessar upplýsingar séu oft af
skornum skammti. Skora Neytendasamtökin á stjórnvöld að fara að dæmi
bresku matvælastofnunarinnar sem kom á fót svokölluðum umferðarljósa-
merkingum á matvæli en það eru skiljanlegar upplýsingar á umbúðum.
MATVÆLI Neytendur þurfa skiljanlegar merkingar
Frá og með næsta hausti verður ávaxtasafi að vera án
viðbætts sykur samkvæmt reglum Evrópusambandsins,
ESB. Á vef norska ríkisútvarpsins segir að þá verði
jafnframt bannað að auglýsa á umbúðunum að
ávaxtasafinn sé án viðbætts sykurs þótt það sé rétt,
þar sem annars geti neytendur staðið í þeirri trú að
ávaxtasafi sem ekki er merktur þannig innihaldi sykur.
Aðlögunartíminn vegna merkinganna er sagður vera til
haustsins 2016.
MATVÆLI Viðbættur sykur bannaður í ávaxtasafa
Að mörgu þarf að huga þegar
skipta skal þeim gjöfum sem ekki
féllu í kramið hjá landsmönnum
þessi jólin. Sumar verslanir setja
til að mynda þær reglur að ekki
er hægt að skipta vörum fyrr en
janúarútsölum sé lokið. Þá kann-
ast flestir við litla skiptimiða
sem sjást á flestum bóka pökkum
og dýrari gjöfum úr ÁTVR, en
slíkir miðar gefa viðkomandi rétt
á að skipta eða skila vörunni. Þá
ber einnig að huga sérstaklega að
gildistíma gjafabréfa.
Neytendasamtökin eru iðulega
ötul í fræðslu til landsmanna í
kringum hátíðarnar, þá sér í lagi
hvað varðar fyrrnefndar útsölur,
skil og skipti, takmarkanir á inn-
eignarnótum og reglur er varða
gjafabréf.
Samtökin beina þeim tilmælum
til eigenda gjafabréfa sem hafa
læðst í jólapakkann að draga það
ekki of lengi að leysa þau út. Eig-
endaskipti eða gjaldþrot fyrir-
tækis geti gert gjöfina verðlausa.
„Mundu að seljandinn er búinn
að fá greitt fyrir gjafabréfið og
ef hann neitar þér um þjónustu
jafngildir það því að hann taki
gjöfina þína og stingi henni í vas-
ann sinn. Gerðu kröfu um að fá
að nýta gjafabréfið og ef þú færð
neitun leitaðu þá til Neytenda-
samtakanna,“ segir á síðu sam-
takanna.
Þar er einnig vitnað í banda-
ríska rannsókn sem neytenda-
blaðið Consumer Reports birti
í fyrra, þar sem fram kom að
fjórða hvert gjafabréf í Banda-
ríkjunum er aldrei leyst út.
Þá virðist einnig sem norskir
neytendur tapi um 2,5 milljörðum
norskra króna á hverju ári vegna
ónýttra gjafabréfa.
sunna@frettabladid.is
Gjaldþrot geta gert
gjafabréfin verðlaus
Neytendasamtökin beina þeim tilmælum til landsmanna að draga ekki um of að
nýta gjafabréf eftir jólin. Breytingar á skipan fyrirtækja gætu gert þau verðlaus.
Norðmenn tapa um 2,5 milljörðum norskra króna árlega vegna vannýttra bréfa.
MÖRGU SKIPT EFTIR JÓLIN Sumar verslanir hafa þá reglu að ekki sé hægt að skipta eða skila vörum á janúarútsölum en eftir
sex vikur telst útsöluverð þó vera orðið almennt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Samkvæmt neytendalögum telst útsöluverð vera orðið almennt verð eftir
sex vikna útsölu. Þá þarf að lækka verðið aftur ef varan á enn að vera á
útsölu samkvæmt reglum Neytendastofu, sem fer með eftirlit á útsölum.
Neytendastofa skoðar meðal annars hvort auglýst upphaflegt verð sé í
raun það verð sem varan var fyrst seld á. Seljendur hafa ekki alltaf getað
sýnt fram á slíkt með gögnum.
Venjulegt verð eftir sex vikna útsölu
Mundu að seljandinn
er búinn að fá greitt fyrir
gjafabréfið og ef hann
neitar þér um þjónustu
jafngildir það því að hann
taki gjöfina þína og stingi
henni í vasann sinn.
Neytendasamtökin
Vilji svo ólíklega til að einhver opni flösku af kampavíni, eða öðru
freyðivíni, um áramót eða af öðru tilefni, og nái svo ekki klára
úr flöskunni þarf sá hinn sami að hugsa sig aðeins um áður en
hann hellir úr henni í vaskinn. Til er einföld leið til að halda
víninu áfram freyðandi í flöskunni og það allt að sólarhring
lengur, eða svo. Ráðið er að stinga skaftinu á málmskeið ofan í
hálsinn á flöskunni og geyma hana þannig. Skeiðin hefur víst
þau áhrif að loftið í þröngum hálsi flöskunnar kólnar. Við það
myndast „tappi“ af köldu lofti sem dregur úr hraðanum á upp-
gufun gossins úr víninu.
GÓÐ HÚSRÁÐ Vínið látið freyða áfram
Allar starfsstöðvar ríkisskattstjóra
verða opnar um jól og áramót
sem hér segir:
Aðfangadagur 24. des. - LOKAÐ
Fimmtudagur 27. des. - 930 - 1530
Föstudagur 28. des. - 930 - 1530
Gamlársdagur 31. des. - LOKAÐ
Meiri Vísir.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir,
meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf,
meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á vísi.
Á Veiðivísi, nýjum veiðivef Vísis, getur þú nálgast helstu fréttir,
ítarlega umfjöllun og gagnlegar upplýsingar um veiði, hvort heldur
sem er stangveiði eða skotveiði. Fylgstu með í sumar og nýttu þér
allt sem Vísir hefur upp á að bjóða.